Hoppa yfir valmynd
8. september 2021 Matvælaráðuneytið

Styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna búgreina

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna í garðyrkju, samkvæmt VIII. kafla reglugerðar nr. 1273/2020 um stuðning við garðyrkju, þróunarverkefna í sauðfjár- og nautgriparækt, samkvæmt VIII. kafla reglugerðar nr. 430/2021 um almennan stuðning í landbúnaði.

Fjármunum til þróunarverkefna er ætlað að styðja við kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og þróun í greinunum svo sem ráðgjafar-, kynningar-, rannsókna- eða tilraunaverkefni sem og, vöruþróunar- og endurmenntunarverkefni.  Fagráð hverrar búgreinar veitir umsögn um allar umsóknir sem berast í þróunarsjóð hennar.

Umsókn skal skila rafrænt á mínum síðum (eyðublaðavef) Stjórnarráðsins.

Sérstök umsókn er fyrir hverja búgrein þ.e. garðyrkju, nautgriparækt og sauðfjárrækt og umsækjendur eru beðnir að gæta að því.

Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2021.

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk skrifstofu landbúnaðarmála í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Senda má fyrirspurnin á tölvupóstfang [email protected].

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum