Hoppa yfir valmynd
21. september 2020 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 79/2020 Úrskurður 21. september 2020

Mál nr. 79/2020                     Millinafn:       Óldal

 

 

 

Hinn 21. september 2020 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 79/2020 en erindið barst nefndinni 31. ágúst.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:

  • millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • ·nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • millinafn má eki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Auk þess má mafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.

Millinafnið Óldal er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn karla né kvenna. Nafnið Óldal uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga. Nafnið er heldur ekki ættarnafn í skilningi laganna.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Óldal er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum