Hoppa yfir valmynd
14. september 2020 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Stefnt að háskólaútibúi á Austurlandi

Einar Már Sigurðarson formaður Austurbrúar, Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra undirrituðu samninginn.    Mynd/Gunnar Gunnarsson - myndMynd/Gunnar Gunnarsson
Samstarfssamningur um undirbúning stofnunar háskólaútibús og kennslu á háskólastigi á Austurlandi var undirritaður á Reyðarfirði um helgina. Markmið samningsins er að tryggja áframhaldandi uppbyggingu þekkingarsamfélags á Austurlandi og er ráðgert að fyrsta skrefið í þá veru verði frumgreinadeild sem taki til starfa haustið 2021.

„Það eru sterkir grunnatvinnuvegir á Austurlandi í sjávarútvegi, áliðnaði og ýmsum verk- og tæknigreinum. Á þeim innviðum verður byggt í þessu verkefni sem vonir standa til að muni efla samfélög og atvinnulíf í fjórðungnum. Ég fagna samvinnu við sveitarfélögin á Austurlandi sem standa saman að í þessu verkefni,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Við skipulag háskólaútibúsins verður horft til þarfa og styrkleika atvinnulífs á Austurlandi og í framhaldi af námi við frumgreinadeild er fyrirhugað að boðið verði upp á grunnnám í hagnýtri iðnaðartæknifræði til B.Sc. gráðu, þriggja og hálfs árs nám til alls 210 ECTS eininga. Sem stendur er ekki boðið upp á tæknifræðinám utan höfuðborgarsvæðisins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum