Hoppa yfir valmynd
4. febrúar 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 52/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 4. febrúar 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 52/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU20120040

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I.                    Málsatvik

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála í stjórnsýslumáli nr. KNU18120067, dags. 12. febrúar 2019, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar frá 3. desember 2018 um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Fílabeinsstrandarinnar (hér eftir nefndur kærandi), um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu.

Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 18. febrúar 2019. Þann 21. desember 2020 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku málsins.

Af endurupptökubeiðni kæranda má ráða að krafan byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.                  Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að þann 25. mars 2019 hafi talsmanni hans hjá Rauða krossinum verið tilkynnt um að kærandi væri talinn horfinn. Kærandi hafi núna leitað til talsmanns með beiðni um að mál hans verði endurupptekið í ljósi þess að frestur til endursendingar sé liðinn, sbr. 2. mgr. 29. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Með vísan til þess að liðnir séu meira en 18 mánuðir frá því að kærandi hafi verið lýstur horfinn þá er farið fram á að málið verði endurupptekið, hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og stofnuninni gert að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar hér á landi.

III.                Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans verði tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Kærandi byggir á því að skylda Noregs til að taka við kæranda sé fallin niður þar sem flutningur hans hafi ekki farið fram innan 18 mánaða frests sem er tilgreindur í 2. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Af lestri greinargerðar kæranda er því ljóst að kærandi byggir beiðni sína um endurupptöku á því að atvik hafi breyst verulega frá því að úrskurður í máli hans var kveðinn upp þar sem umræddur frestur leiði til þess að ekki sé lengur heimilt að synja umsókn kæranda um efnismeðferð á grundvelli 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b-, og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverjum samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröðun, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Eins og fram kemur í úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. KNU18120067 frá 12. febrúar 2019 samþykkti Noregur viðtöku á kæranda á þeim grundvelli að hann hefði fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi, sbr. d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Við rekstur máls sem fer samkvæmt fyrirkomulagi Dyflinnarreglugerðarinnar þurfa stjórnvöld að gæta að tilteknum tímafrestum, sbr. m.a. 1. og 2. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar sem fjallar um fyrirkomulag og fresti. Í því ákvæði felst m.a. að flutningur á umsækjanda skal fara fram innan sex mánaða frá því að lokaákvörðun er tekin um kæru eða endurskoðun. Þó er heimilt í undantekningartilvikum að framlengja frest til flutnings í að hámarki 18 mánuði ef hlutaðeigandi einstaklingur hleypst á brott (e. abscond). Ef umræddir frestir líða leiðir það til þess að ábyrgð á viðkomandi umsókn um alþjóðlega vernd færist sjálfkrafa yfir til þess aðildarríkis sem leggur fram beiðni, sbr. til hliðsjónar dómur Evrópudómstólsins í máli C-201/16 Shiri frá 25. október 2017, 26. - 34. mgr. Ef frestir samkvæmt 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar líða er íslenskum stjórnvöldum því ekki lengur heimilt að krefja viðkomandi ríki um viðtöku einstaklings í skilningi c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar, s.s. úrskurði nefndarinnar nr. KNU19040090 frá 9. maí 2019, að þegar mál hefur verið kært til kærunefndar og réttaráhrifum frestað yrði upphafstími þessa frests miðaður við dagsetningu birtingar úrskurðar kærunefndar. Eins og að framan greinir samþykktu norsk stjórnvöld endurviðtökubeiðni íslenskra stjórnvalda þann 10. október 2018. Þá var endanleg niðurstaða á stjórnsýslustigi birt fyrir kæranda þann 18. febrúar 2019.

Í ljósi endurupptökubeiðni kæranda taldi kærunefnd tilefni til að óska eftir nánari upplýsingum frá Útlendingastofnun. Með tölvupósti, dags. 5. janúar 2021, óskaði nefndin eftir upplýsingum um stöðu kæranda hér á landi og atriðum tengdum flutningi hans til Noregs. Svar frá Útlendingastofnun barst kærunefnd 6. janúar 2021 en þar kom m.a. fram að til hafi staðið að flytja kæranda til Noregs þann 20. mars 2019 en þar sem hann hafi ekki fundist hafi hann verið eftirlýstur þann sama dag. Útlendingastofnun hafi í kjölfarið sent tilkynningu þann 20. mars 2019 til Noregs þess efnis að kærandi væri horfinn en í dagbókarskráningu Útlendingastofnunar, dags. 21. mars 2019, komi fram að kærandi hafi ekki mætt í nafnakall hjá Útlendingastofnun síðustu tvær vikur. Þá kom fram að kærandi hafi yfirgefið landið þann 11. mars 2019 og komið aftur hingað til lands þann 13. ágúst 2019, og síðan þá farið huldu höfði. Þann 8. janúar 2021 sendi kærunefnd tölupóst til kæranda þar sem honum var m.a. gefið tækifæri á að koma fram andmælum við svar Útlendingastofnunar í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og barst svar frá kæranda þann 13. janúar 2021. Kærunefnd sendi tölvupóst til Útlendingastofnunar, dags. 14. janúar 2021, þar sem stofnunin var beðin að láta í ljós afstöðu sína til þess sem fram kæmi í greinargerð kæranda og þeim samskiptum sem höfðu átt sér stað við talsmann. Þann 18. janúar 2021 barst svar frá Útlendingastofnun þar sem tilteknum athugasemdum kæranda, sem komu fram í samskiptum kærunefndar við hann, var svarað en engin afstaða tekin til þeirra atriða sem koma fram í greinargerð kæranda og varða málsástæðu hans um að taka eigi mál hans til efnismeðferðar hér á landi vegna þess að 18 mánaða frestur skv. 2. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar sé runninn út.

Líkt og áður hefur komið fram var úrskurður kærunefndar birtur fyrir kæranda þann 18. febrúar 2019 og flutningur til viðtökuríkis hefur ekki enn átt sér stað. Því eru liðnir meira en 18 mánuðir frá því að endanleg niðurstaða á stjórnsýslustigi lá fyrir. Af þeim sökum er íslenskum stjórnvöldum ekki lengur heimilt að krefjast þess að viðtökuríkið taki við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og 2. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Í ljósi þess að flutningur kæranda til viðtökuríkis fór ekki fram innan þeirra tímafresta sem Dyflinnarreglugerðin mælir fyrir um og í ljósi svara Útlendingastofnunar þar sem ekki er gerð efnisleg athugasemd við að málið verði tekið til efnismeðferðar er fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu, er að mati kærunefndar, ekki tilefni til umfjöllunar um aðrar málsástæður kæranda.

 

 

 

Úrskurðarorð

 

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

The appellant‘s request for re-examination of his case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicant‘s application for international protection in Iceland.

 

 

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                                     Þorbjörg I. Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum