Hoppa yfir valmynd
9. nóvember 2017 Innviðaráðuneytið

Reglur um frumkvæðismál vegna stjórnsýslu sveitarfélaga endurskoðaðar

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur gefið út nýjar og endurskoðaðar verklagsreglur um meðferð svonefndra frumkvæðismála skv. 112. gr. sveitarstjórnarlaga.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur eftirlit með því að sveitarfélög gegni skyldum sínum samkvæmt lögum og öðrum löglegum fyrirmælum innan þess ramma sem markaður er í ákvæðum XI. kafla sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011. Eftirlitið tekur einnig til byggðasamlaga sem og til annarra að því leyti sem þeim hefur verið falið að sinna stjórnsýslu á vegum sveitarfélags samkvæmt heimild í lögum. Eftirlit ráðuneytisins tekur hins vegar ekki til ákvarðana sveitarfélaga í starfsmannamálum, gerðar kjarasamninga eða stjórnsýslu sem fram fer á vegum sveitarfélaganna og öðrum stjórnvöldum á vegum ríkisins er með beinum hætti falið eftirlit með.

Samkvæmt 112. gr. sveitarstjórnarlaga ákveður ráðuneytið sjálft hvort tilefni er til að taka til formlegrar umfjöllunar stjórnsýslu sveitarfélags sem lýtur eftirliti þess, óháð því hvort um kæranlega ákvörðun sé að ræða skv. 111. gr. laganna. Þetta frumkvæðiseftirlit ráðuneytisins er mikilvægur þáttur í eftirliti þess með stjórnsýslu sveitarfélaganna og mikilvægt réttarúrræði þegar ekki eru til staðar efnisleg skilyrði þess að taka mál til kærumeðferðar á grundvelli 111. gr. Þá getur meðferð frumkvæðismála einnig gegnt því hlutverki að greiða almennt úr réttaróvissu og veita leiðbeiningu um framkvæmd laga.

Í nýjum verklagsreglum er lögð áhersla á að stjórnsýslueftirlit ráðuneytisins á þessu sviði sé virkt. Kveðið er á um þau viðmið sem horfa skal til við mat á því hvenær hefja skuli frumkvæðismál og lögð er áhersla á að niðurstöður ráðuneytisins séu vel rökstuddar. Þá er einnig kveðið á um það að birta skuli niðurstöðu í a.m.k. þremur slíkum málum á hverju ári. Allt miðar þetta að því að standa vörð um réttaröryggi íbúa sveitarfélaganna, stuðla að samræmdri stjórnsýsluframkvæmd og draga úr réttaróvissu á þessu sviði.

Allir geta lagt fram ábendingu eða kvörtun sem orðið getur tilefni frumkvæðismáls, þ.m.t. íbúar og kjörnir sveitarstjórnarmenn, óháð því hvort þeir teljast aðilar málsins í skilningi stjórnsýsluréttarins. Slík ábending eða kvörtun skal send ráðuneytinu á póstfangið [email protected] og er hægt að nota til þess sérstakt eyðublað sem útbúið hefur verið.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum