Hoppa yfir valmynd
18. október 2023 Matvælaráðuneytið

Innanlandsvog kindakjöts 2024

Innanlandsvog kindakjöts 2024 - myndiStock/george mkheidze

Matvælaráðuneytið hefur gefið út innanlandsvog kindakjöts. Hlutverk vogarinnar er að skilgreina þarfir og eftirspurn innanlandsmarkaðar eftir kindakjöti, m.a. með það að markmiði að álagsgreiðslur vegna gæðastýringar skiptist á þann hluta heildarframleiðslunnar sem ætluð er fyrir innanlandsmarkað.

Til grundvallar útreikningum á innanlandsvog liggja upplýsingar um sölu kindakjöts eftir skrokkhlutum síðastliðna 24 mánuði og spá um líklega söluþróun. Innanlandsvog er birt í tvennu lagi, þ.e. annars vegar fyrir dilkakjöt og hins vegar fyrir kjöt af fullorðnu fé. Á grundvelli þessa líkans liggur áætlun framleiðsluársins áranna 2023 – 2024 nú fyrir.

Samhliða innanlandsvoginni hefur matvælaráðuneytið gert spá um framleiðslu sem byggir á fjölda vetrarfóðraðra kinda og framleiðslu pr vetrarfóðraða kind síðustu fjögur ár. Með því er einnig hægt að áætla um útflutningsþörf á komandi framleiðsluári.

Innanlandsvog fyrir dilkakjöt framleiðsluárið 2023 – 2024 er 6.946 tonn. 

Það er sú framleiðsla sem þarf til að mæta eftirspurn eftir heilum skrokkum og skrokkhlutum, þ.e. frampörtum, hryggjum, lærum og slögum. Það er eftirspurn eftir lærum sem ræður magninu en til þess að fullnægja henni er umframframleiðsla/útflutningsþörf á frampörtum, hryggjum og slögum, alls 727 tonn.

Áætluð heildarframleiðsla á dilkakjöti er 7.126 tonn og miðað við hana er útflutningsþörf alls 907 tonn.

Innanlandsvog 2024

Dilkakjöt Tonn

Framleiðsla vegna eftirspurnar innanlands

6.946

Áætluð heildarframleiðsla

7.126

Útflutningsþörf

907

Innanlandsvog fyrir kjöt af fullorðnu fé framleiðsluárið 2023 – 2024 er 1.112 tonn.

Það er sú framleiðsla sem þarf til að mæta innanlandseftirspurn eftir heilum skrokkum og skrokkhlutum. Eftirspurn eftir frampörtum ræður framleiðsluþörfinni fyrir innanlandsmarkað. Spá um heildarframleiðslu er 1.150 tonn og heildarútflutningsþörf 183 tonn.

Innanlandsvog 2024

Fullorðið fé

Framleiðsla vegna eftirspurnar innanlands

1.112

Áætluð heildarframleiðsla

1.150

Útflutningsþörf

183

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum