Hoppa yfir valmynd
14. september 2020 Matvælaráðuneytið

Beint streymi: Upplýsingafundur um Matvælasjóð 15. september

Matvælasjóður er byrjaður að taka við umsóknum og af því tilefni er boðið til upplýsingarfundar um sjóðinn og umsóknarferlið.

Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu um land allt. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og rannsóknir einstaklinga og lögaðila.

Markmið sjóðsins er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna. Ráðstöfunarfé Matvælasjóðs samanstendur af fjárveitingu af fjárlögum hverju sinni og öðrum tekjum eftir því sem þeim er til að dreifa.

Nánari upplýsingar um Matvælasjóð á heimasiðu sjóðsins.
Hér má nálgast handbók um Matvælasjóð

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

14. Líf í vatni
15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum