Hoppa yfir valmynd
7. október 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 373/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 373/2021

Fimmtudaginn 7. október 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 21. júlí 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 31. maí 2021, um að synja umsókn hennar um atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun þann 30. apríl 2021. Með ákvörðun Vinnumálstofnunar, dags. 31. maí 2021, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar hefði verið synjað þar sem hún væri með gildan ráðningarsamning og því ekki atvinnulaus í skilningi laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 21. júlí 2021. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 23. júlí 2021, var óskað eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 23. ágúst 2021, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem kom fram að kærandi hefði sótt aftur um atvinnuleysisbætur í byrjun ágúst 2021 og að umsókn hennar hefði verið samþykkt. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 24. ágúst 2021, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 31. maí 2021, um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur með vísan til þess að hún væri með gildan ráðningarsamning og því ekki atvinnulaus í skilningi laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar kemur fram að kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur á ný í byrjun ágúst 2021. Þá kemur fram að umsókn hennar hafi verið samþykkt þann 23. ágúst 2021.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Þar sem Vinnumálastofnun hefur samþykkt umsókn kæranda verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum