Hoppa yfir valmynd
4. júlí 2022 Heilbrigðisráðuneytið

Auglýst eftir rekstraraðila fyrir nýja heilsugæslustöð í Reykjanesbæ

Sjúkratryggingar Íslands, fyrir hönd heilbrigðisráðuneytisins, hefur auglýst eftir rekstraraðila til að reka nýja heilsugæslustöð í Reykjanesbæ. Um er að ræða heilsugæslustöð í 1.050 m2 húsnæði að Aðalgötu 60 í Reykjanesbæ.

Íbúum Suðurnesja hefur fjölgað hratt undanfarin ár og er fjölgunin langt umfram spár. Það er því mikil þörf á aukinni heilsugæsluþjónustu á svæðinu.
Ríkið leggur til húsnæði undir starfsemina sem verður innréttað í samráði við verksala, en miðað er við að verksali leggi til húsbúnað og lækningatæki. Gengið er út frá samningi til fimm ára.

Um er að ræða fyrstu sjálfstætt starfandi heilsugæslustöðina utan höfuðborgarsvæðisins og er fjármögnun skv. fjármögnunarlíkani fyrir heilsugæslu á landsbyggðinni.
Áætlað er að hin nýja heilsugæslustöð geti þjónað allt að 11.000 íbúum svæðisins. 

Einnig er stefnt að áframhaldandi uppbyggingu heilsugæsluþjónustu á svæðinu og er vinna við undirbúning á byggingu nýrrar 1.350 fermetra heilsugæslustöðvar í Innri- Njarðvík í fullum gangi.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum