Hoppa yfir valmynd
18. júní 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 623/2020 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 623/2020

Föstudaginn 18. júní 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 27. nóvember 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. nóvember 2020, um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 25. febrúar 2020. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. nóvember 2020, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans yrði felldur niður í tvo mánuði þar sem ekki hafi náðst í kæranda, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 27. nóvember 2020. Með bréfi, dags. 1. desember 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Með bréfi, dags. 13. janúar 2021, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að hin kærða ákvörðun hefði verið afturkölluð þar sem skýringar kæranda á því hvers vegna hann hafi ekki svarað símtölum stofnunarinnar hafi verið metnar gildar. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. janúar 2021, var óskað eftir afstöðu kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar. Svar barst ekki. 

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. nóvember 2020, um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að stofnunin hefði afturkallað hina kærðu ákvörðun þar sem skýringar kæranda á því hvers vegna hann hafi ekki svarað símtölum stofnunarinnar hafi verið metnar gildar. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar en svar barst ekki.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum