Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2020 Innviðaráðuneytið

Útgjaldajöfnunarframlög Jöfnunarsjóðs hækka árið 2021

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um að hækka útgjaldajöfnunarframlag sjóðsins vegna ársins 2021 um 850 m.kr. Áætlað framlag skv. A-hluta framlaganna nemur því 9.200 m.kr. 

Áætlað framlag vegna B-hluta útgjaldajöfnunarframlaga ársins nemur 575 m.kr. en í lok árs 2021 verður úthlutað 175 m.kr. á grundvelli umsókna frá sveitarfélögum vegna íþyngjandi kostnaðar við skólaakstur á árinu 2021 umfram tekjur. Jafnframt er áætlað að 50 m.kr. verði úthlutað vegna akstursþjónustu úr dreifbýli á árinu 2021. 

Samtals nema því áætluð útgjaldajöfnunarframlög 10.000 m.kr. á árinu 2021.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum