Hoppa yfir valmynd
5. febrúar 2021 Utanríkisráðuneytið

Barnaheill: Ríkar þjóðir bregðist við neyðinni í Afríku vegna COVID

Ljósmynd: Save the Children - Barnaheill. - mynd

Barnaheill - Save the Children hvetja ríkar þjóðir til þess að bregðast við þeirri neyð sem nú ríkir í Afríku, í annarri bylgju COVID-19, með því að liðka fyrir aðgengi að súrefni og bóluefni. Samtökin hvetja einnig stjórnvöld í lágtekjuríkjum til þess að fara eftir leiðbeiningum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) um forgangsröðun þeirra sem fá bóluefni. Það feli í sér að kennarar verði meðal þeirra fyrstu í bólusetningu, ásamt öðrum forgangshópum, eins og heilbrigðisstarfsmönnum í framlínu.

Samtökin eru mjög áhyggjufull yfir áhrifum heimsfaraldursins á menntun barna til lengri tíma. Til þess að tryggja börnum áframhaldandi menntun þurfi að bólusetja kennara og opna skólana á nýjan leik. „Því lengur sem börn eru utan skóla, því minni líkur eru á að þau snúi aftur. Rannsóknir Save the Children á síðasta ári leiddu í ljós að um 10 milljónir barna muni aldrei snúa aftur í skólann,“ segir í frétt frá samtökunum.

„Allar tafir á bólusetningu heilbrigðisstarfsmanna gegn COVID-19 geta raskað nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu í Afríkuríkjum“, segir í fréttinni. Varað er við því að líf þúsunda barna í Afríku sé í hættu og samtökin óttast að mörg Afríkuríki verði neydd til þess að bíða í marga mánuði eftir bóluefni. „Í Afríku eru sex af tíu löndum með hæstu tíðni af staðfestum COVID-19 tilfellum. Dánartíðni í álfunni vegna COVID-19 er nú einnig hærri en meðaltal á heimsvísu.“ 

Í fréttinni kemur enn fremur fram að Malaví hafi nú næsthæsta hlutfall fjölgandi smita í heiminum, en tilfellin tvöfölduðust á aðeins tólf dögum síðari hluta janúarmánaðar. „Samkvæmt Global Health Index Security 2019 er Malaví í hópi þeirra landa í heiminum sem er hvað verst undirbúið að bregðast við veirunni, en þar er mikill skortur á súrefni og gjörgæsluplássi í landinu fyrir þá sem veikjast. Hætta er á að heilbrigðiskerfið nái ekki að takast á við vaxandi álag vegna COVID-19, sem bitnar á getu þess til að bregðast við öðrum veikindum eins og lungnabólgu hjá börnum, sem hægt er að fyrirbyggja auðveldlega ef réttu tólin eru til staðar.“

Framkvæmdastjóri Save the Children í Malaví, Kim Koch segir álagið hafa margfaldast í kjölfar heimsfaraldurs. „Starfsfólk okkar vinnur sleitulaust að því að veita börnum stuðning við sífellt erfiðari aðstæður. Það leggur sig í hættu og þarf að aðlaga verkefni sín að faraldrinum. Það var mikið álag á starfsfólk fyrir heimsfaraldur, þar sem heilbrigðiskerfið hér er mjög veikt, og nú hefur álagið margfaldast.“

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
4. Menntun fyrir öll

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum