Hoppa yfir valmynd
28. febrúar 2009 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurður 28. febrúar 2009

FUNDARGERÐ

Ár 2009, laugardaginn 28. febrúar, var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Viðstödd voru Kolbrún Linda Ísleifsdóttir, Ágústa Þorbergsdóttir og Veturliði S. Óskarsson. Neðangreint mál var tekið fyrir:

1.         Mál nr. 25/2009          Eiginnafn:        Mikkel  (kk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Mikkel (kk.) tekur beygingu í eignarfalli, Mikkels, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Mikkel  (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá ásamt eignarfallsmynd þess, Mikkels, og sem ritmynd eiginnafnsins Mikael.

  

 

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum