Hoppa yfir valmynd
7. mars 2022 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2022

Athygli er vakin á því að opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2022.

Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Ein verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi skóla- og frístundastarf, ein verðlaun veitt framúrskarandi kennara og ein verðlaun veitt framúrskarandi þróunarverkefni, auk sérstakra hvatningarverðlauna.

Sérstök athygli er vakin á því að í ár bætist við nýr verðlaunaflokkur: Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun, ein verðlaun veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- eða menntastofnun fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar. Þessi nýi flokkur er til orðinn að frumkvæði Samtaka iðnaðarins sem nú hafa gengið til liðs við þá aðila sem að verðlaununum standa.

Tilnefningar þurfa að berast fyrir 1. júní. Viðurkenningarráð velur þrjár til fimm tilnefningar í hverjum flokki til kynningar á alþjóðadegi kennara 5. október. Verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn í nóvember og mun RÚV sýna frá afhendingunni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum