Hoppa yfir valmynd
16. október 2018 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 80/2018 Úrskurður 16. október2018

Mál nr. 80/2018                    Millinafn:       Dór

 

 

Hinn 16. október 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 80/2018 en erindið barst nefndinni 28. september.

Til þess að hægt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru þessi:

 

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.

  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.

  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Nafnið Dór hefur aðeins unnið sér hefð í íslensku máli sem eiginnafn karla og er skráð sem slíkt á mannanafnaskrá. Þess vegna er ekki hægt að fallast á millinafnið Dór.

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Dór er hafnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum