Hoppa yfir valmynd
17. nóvember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 116/2021 Úrskurður 17. nóvember 2021

Mál nr. 116/2021                  Eiginnafn:     Geitin (kvk.)

 

 

Hinn 17. nóvember 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 116/2021 en erindið barst nefndinni 31. ágúst.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Í þessu máli reynir á skilyrði nr. tvö hér að ofan. Í greinargerð með lögum um mannanöfn, nr. 45/1996, segir að íslenskt málkerfi sé samsafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli og að skilyrðið um að nafn megi ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi sé m.a. ætlað að koma í veg fyrir nýmyndanir sem brjóta í bág við íslenskar orðmyndunarreglur.

Eiginnafnið Geitin (kvk.) fer gegn hefðbundnum reglum um myndun nafna þar sem ekki er hefð fyrir því að nöfn beri ákveðinn greini. Nafnið telst þess vegna brjóta í bág við íslenskt málkerfi.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Geitin (kvk.) er hafnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum