Hoppa yfir valmynd
21. nóvember 2001 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs fyrstu tíu mánuði ársins 2001. Greinargerð 21. nóvember 2001

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar - október 2001 (PDF 24K)

Nú liggja fyrir tölur um afkomu ríkissjóðs fyrstu tíu mánuði ársins. Uppgjörið hér á eftir sýnir sjóðhreyfingar og er sambærilegt við almenn sjóðstreymisyfirlit. Tölurnar eru því ekki sambærilegar við ríkisreikning eða fjárlög ársins sem eru sett fram á rekstrargrunni.

Heildaryfirlit
Fyrstu tíu mánuði ársins var handbært fé frá rekstri neikvætt um 1,2 milljarða króna, samanborið við 10,4 milljarða króna jákvæða stöðu í fyrra. Heildartekjur ríkissjóðs hækka um tæplega 12,5 milljarða króna frá sama tíma í fyrra, einkum vegna aukinnar innheimtu tekjuskatta. Útgjöld hækka hins vegar um 24 milljarða króna, eða 15,2%. Þar munar mestu um áhrif kjarasamninga og gengisþróunar eða um 6 milljörðum króna. Greiðslur til fæðingarorlofssjóðs námu 2 milljörðum og hækkun framlaga til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga nam 1,8 milljörðum króna. Þá nemur hækkun vaxtagreiðslna um 1,2 milljörðum, sérstakar greiðslur til öryrkja nema 1,3 milljörðum króna, 1 milljarður stafar af auknum greiðslum til Tryggingastofnunar ríkisins vegna lífeyristrygginga. Þá voru 0,8 milljarðar nýttir til uppkaupa á fullvirðisrétti bænda. Rétt er að vekja athygli á að hluti af þessari hækkun kemur ekki til gjalda á rekstrargrunni á þessu ári.


Hreinn lánsfjárjöfnuður var neikvæður um 2,1 milljarð króna sem er tæplega 12 milljörðum króna lakara en í fyrra. Skýringin er, auk þess sem áður er nefnt, að á árinu 2000 komu til greiðslu 5,5 milljarðar króna vegna sölu á hlutabréfum í ríkisbönkunum á árinu 1999. Á fyrstu tíu mánuðum þessa árs var auk þess greiddur 10S milljarður króna í Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins til að grynnka á framtíðarskuldbindingum ríkissjóðs, en samkvæmt fjárlögum 2001 er áformað að greiða til hans 15 milljarða.

Tekjur
Heildartekjur ríkissjóðs námu rúmlega 181 milljarði króna á fyrstu tíu mánuðum ársins. Hækkunin milli ára nemur 12,5 milljörðum, eða 7,4%. Skatttekjur hækka um svipað hlutfall. Til samanburðar má nefna að hækkun skatttekna á sama tíma í fyrra nam tæplega 11% og 16% árið þar á undan.


Aukin innheimta skatta á launa-, fjármagnstekjur og hagnað einstaklinga og fyrirtækja skýrir að langmestu leyti tekjuauka ríkissjóðs frá fyrra ári. Samanlagt eru skattar á tekjur og hagnað ásamt tryggingagjaldi tæplega 8,5 milljörðum króna umfram áætlun. Eignarskattar eru rúmlega 300 miljónum umfram áætlun.

Þróun veltuskatta er á annan veg, en þeir lækka um tæplega S milljarð króna frá sama tíma í fyrra og eru rúmlega 6 milljörðum undir áætlun. Þessi þróun endurspeglar áfram umtalsverðan samdrátt að raungildi milli ára, eða sem nemur rúmlega 6%. Sem fyrr má einkum rekja þessa þróun til veru-legs sam-dráttar í neysluútgjöldum milli ára, ekki síst kaupum á bílum og ýmsum varanlegum neysluvörum, svo sem heimilistækjum. Sem dæmi má nefna að vörugjöld af inn-flutningi bifreiða hafa lækkað um 40% milli ára, eða sem nemur 1,8 milljörðum króna. Vörugjöld af bensíni lækka einnig milli ára, eða um 2,6%. Virðisaukaskattur hækkar lítillega í krónum talið frá sama tíma í fyrra, en dregst saman um rúmlega 5% að raungildi.

Þegar á heildina er litið eru tekjur ríkissjóðs fyrstu tíu mánuði ársins rúmlega 2S milljarði króna umfram áætlun fjárlaga.

Gjöld
Heildargreiðslur ríkissjóðs námu 182,7 milljörðum króna fyrstu tíu mánuði ársins. Gjöldin hækka um 24 milljarða frá fyrra ári og vega þar sjö tilefni þyngst, sbr. umfjöllun í yfirlitskaflanum hér að framan.


Almenn mál. Útgjöld til almennra mála, hækka um rúmar 800 m.kr. eða 4,6% milli ára. Af einstökum hækkunartilefnum munar mestu um kaup á nýjum upplýsingakerfum ríkisins en um 450 m.kr. eru komnar til greiðslu vegna endurnýjunar kerfanna. Þá hækka greiðslur til utanríkisþjónustunnar um 440 m.kr. mili ára eða 17%, sem skýrist að miklu leiti af gengislækkun íslensku krónunar. Á móti vegur að greiðslur vegna æðstu stjórnar ríkisins lækka um tæpar 400 m.kr., m.a. vegna þess að á síðasta ári urðu töluverð útgjöld vegna 1000 ára afmælis kristnitökunnar sem ekki koma til í ár. Greiðslur löggæslu- og öryggismála hækka aðeins um 2% eða 160 m.kr. í heild, þrátt fyrir 700 m.kr. hækkun til reksturs löggæslu og dómstóla þar sem á móti vegur 750 m.kr. lækkun á greiðsluþörf Ofanflóðasjóðs til byggingar snjóflóðavarnargarða.

Félagsmál. Um 60% af útgreiðslum á tímabilinu runnu til ýmissa félagsmála, svo sem fræðslu- menningar-, heilbrigðis- og tryggingamála. Útgjöld til þessa málaflokks hækka í heild um 15,2 milljarða króna milli ára. Hækkun vegna fræðslumála nam 2,6 milljörðum króna. Þar af hækka greiðslur til framhalds- og sérskóla um 1.200 m.kr. eða 19%, sem m.a. skýrist af viðbótaryfirvinnu eftir lok verkfalls framhaldsskólakennara, auk launahækkana í kjölfar kjarasamnings. Af einstökum málum munar mestu um 400 m.kr. hækkun greiðslna til Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Þá hækka greiðslur til Háskóla Íslands um 330 m.kr. Loks hækka greiðslur vegna menningarmála um tæpar 500 m.kr. milli ára.

Framlög til heilbrigðismála nema 45,3 milljörðum króna og hækka um 4,9 milljarða króna. Þar munar mestu um rekstrarframlög til sjúkrastofnana sem hækka um 2,9 milljarða króna, eða 13,4% milli ára. Þar af eru 2,1 milljarður hjá stóru sjúkrahúsunum í Reykjavík og á Akureyri. Hlutfallslega er þó mesta hækkunin hjá öldrunar- og endurhæfingarstofnunum, 1,5 milljarðar króna, eða 23,8%. Er það að mestu í samræmi við áætlanir fjárlaga þar sem ný hjúkrunarheimili bættust við á tímabilinu, auk þess sem daggjöld hækka og greiðslur færast meira yfir á fyrri hluta ársins.

Greiðslur almannatrygginga hækka um 6,2 milljarða, eða 21,4%. Greiðslur vegna lífeyristrygginga og bóta skv. lögum um félagslega aðstoð hækka um 2,9 milljarða milli ára. Þar munar mestu um áður greinda 1.300 m.kr. greiðslu vegna dóms Hæstaréttar í málefnum öryrkja, auk breytinga á lögum um almannatryggingar sem leiða til hækkunar. Ný lög um fæðingarorlof hafa leitt til 2.040 m.kr. greiðslu það sem af er árinu. Greiðslur til Atvinnuleysistryggingasjóðs hækka um 220 m.kr. milli ára.

Atvinnumál. Útgjöld til atvinnumála hækka samtals um 4,2 milljarða króna, sem er 16,9% hækkun frá því í fyrra. Greiðslur til samgöngumála hækka um 1,6 milljarða króna. Þar af er 1,1 milljarðs króna. hækkun til Vegagerðarinnar og tæplega 600 m.kr. til Siglingastofnunar. Hækkanirnar eru í samræmi við vega- og hafnaáætlanir. Greiðslur landbúnaðarmála hækka einnig um 1,6 milljarða. Af einstökum tilefnum munar mestu um uppkaup ríkisins á fullvirðisrétti bænda, en 800 m.kr. eingreiðsla fór til þess verkefnis í ársbyrjun. Þá eru greiðslur Jarðasjóðs um 150 m.kr. hærri en á sama tíma í fyrra.

Vaxtagreiðslur hækka um 1,2 milljarða króna, eða 8,4%. Mestu munar um áhrif gengislækkunar krónunnar, en vaxtagjöld vegna erlendrar lántöku hækka um 1,7 milljarða króna. Greiðslur vaxta vegna spariskírteina lækka hins vegar S milljarð milli ára.

Önnur útgjöld hækka um 2,7 milljarða króna milli ára, eða 46,3% að mestu vegna tveggja tilefna. Greiðslur til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hækka um 1,8 milljarða og greiðslur uppbóta á lífeyri sem renna til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins hækka um rúmar 700 m.kr.

Lánahreyfingar
Fjármunahreyfingar voru neikvæðar um 0,9 milljarða króna fyrstu tíu mánuði ársins, en á sama tíma í fyrra voru þær neikvæðar um 0,5 milljarða króna.

Afborganir lána ríkissjóðs námu 22,7 milljörðum króna og eru að stærstum hluta vegna erlendra lána. Í febrúar var á innlausn flokkur spariskírteina frá árinu 1990 og hafa bréf í þeim flokki verið innleyst fyrir um 9 milljarða króna að innlausnarvirði, en þar af voru afborganir 5 milljarðar. Auk þess hafa spariskírteini verið forinnleyst úr þremur spariskírteinaflokkum fyrir 4 milljarða króna að innlausnarvirði. Þar af nema afborganir 2,4 milljörðum. Uppkaup með þessum hætti beinast að þeim flokkum spariskírteina sem ekki eru nægilega seljanlegir á eftirmarkaði eða stutt eftir að gjalddaga þeirra.

Ákveðið hefur verið að ráðstafa hluta lánsfjárafgangs ríkissjóðs til greiðslu lífeyrisskuldbindinga hans hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Greiðslur til sjóðsins námu 11,3 milljörðum króna samanborið við 5 milljarða í fyrra.

Lántökur ríkisins námu um 64,1 milljarði króna. Þar af voru erlendar lántökur 51,8 milljarðar, en um 26,8 milljarða króna lán var tekið í október til þess að styrkja erlenda stöðu Seðlabankans auk þess að leggja bankanum til aukið stofnfé í samræmi við ný lög um Seðlabanka Íslands er gera ráð fyrir eflingu eiginfjárstöðu hans. Önnur erlend lántaka hefur að stærstum hluta runnið til endurfjármögnunar erlendra skulda. Það sem af er árinu hefur stofn ríkisvíxla stækkað um 6 milljarða króna, auk þess sem seld hafa verið ríkisbréf í nýjum 6 ára flokki fyrir um 6,1 milljarð króna.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum