Barði ehf., kærir ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. júlí 2012, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun af byggðakvóta Þingeyrar í Ísafjarðarbæ fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátsins Heru ÍS-104, skipaskrárnúmer 6194.
Stjórnsýslukæra
Kæruheimild er í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.
Kröfur kæranda
Málsatvik
Kærandi sótti um byggðakvóta fyrir bátinn Heru ÍS-104 (6194) með umsókn til Fiskistofu, dags. 22. febrúar 2012.
Hinn 6. júlí 2012 tilkynnti Fiskistofa eigendum og útgerðaraðilum báta á Þingeyri í Ísafjarðarbæ ákvarðanir sínar um úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa eða höfnun umsókna um úthlutun. Ákvarðanir Fiskistofu voru byggðar á 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, ákvæðum reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012 og auglýsingu (VI) nr. 534/2012, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta. Samkvæmt hinni kærðu ákvörðun Fiskistofu í máli þessu, dags. 6. júlí 2012, var hafnað umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðárið 2011/2012 til bátsins Heru ÍS-104 (6194). Í ákvörðuninni kom fram að samkvæmt staflið a 1. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, verði fiskiskip að hafa gilt leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, við lok umsóknarfrests til að koma til greina við úthlutun. Skipið Hera ÍS-104 (6194) hafi ekki haft almennt leyfi til veiða í atvinnuskyni síðan 16. ágúst 2010. Af framangreindu leiði að ekki komi til úthlutunar byggðakvóta til skipsins.
Þá kom fram í hinni kærðu ákvörðun Fiskistofu að hún væri kæranleg til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindri tilkynningu Fiskistofu um höfnun umsóknar um úthlutun.
Málsástæður í stjórnsýslukæru o.fl.
Í bréfinu gerir kærandi grein fyrir starfsemi kæranda við veiðar og fiskverkun á Þingeyri í Ísafjarðarbæ frá árinu 2009 og að kærandi hafi á tilteknum tíma keypt bátinn Heru ÍS-104 (6194). Þar sem báturinn hafi verið með haffærisskírteini og strandveiðileyfi hafi kærandi talið að báturinn væri með gild leyfi til veiða og ef kæmi til úthlutunar byggðakvóta þá myndi kærandi koma til með að sitja við sama borð og aðrir bátar í byggðarlaginu sem höfðu landað við sömu bryggju.
Með bréfi, dags. 25. júlí 2012, óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu um stjórnsýslukæruna, staðfestu afriti af hinni kærðu ákvörðun auk annarra gagna sem Fiskistofa kynni að hafa um málið.
Í umsögn Fiskistofu, dags. 3. september 2012, segir m.a. að umsókn um byggðakvóta vegna bátsins Heru ÍS-104 (6194) hafi borist Fiskistofu en báturinn hafi ekki uppfyllt skilyrði a-liðar 1. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012, um að hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða við lok umsóknarfrests.
Eftirtalin gögn fylgdu umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins í ljósritum: 1) hin kærða ákvörðun Fiskistofu, dags. 6. júlí 2012, 2) umsókn kæranda, dags. 22. febrúar 2012, 3) auglýsing Fiskistofu, dags. 21. júní 2012, o.fl.
Með bréfi, dags. 28. september 2012, sendi ráðuneytið kæranda ljósrit af framangreindri umsögn Fiskistofu og veitti honum kost á að gera athugasemdir við hana. Ekkert svar barst ráðuneytinu frá kæranda vegna framangreinds bréfs.
Rökstuðningur
II. Kæra í máli þessu er byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, en samkvæmt ákvæðinu er kærufrestur í málinu tvær vikur. Kæran barst ráðuneytinu með tölvubréfi þann 24. júlí 2012, eða fjórum dögum eftir að kærufrestur vegna hinnar kærðu ákvörðunar Fiskistofu, dags. 6. júlí 2012, rann út samkvæmt framangreindu ákvæði.
Það er mat ráðuneytisins að ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, gildi einnig um meðferð þessa máls að því leyti sem ekki eru sérstök ákvæði um það í framangreindum lögum nr. 116/2006. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 eru m.a. ákvæði um hvernig eigi að fara með þegar kæra berst að liðnum kærufresti. Þar segir að hafi kæra borist að liðnum kærufresti skuli vísa henni frá, nema: 1) afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr eða 2) veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar. Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.
Ákvörðun Fiskistofu í máli þessu var tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 6. júlí 2012. Stjórnsýslukæra í máli þessu barst ráðuneytinu hins vegar með tölvubréfi þann 24. júlí 2012, eða fjórum dögum eftir að kærufrestur rann út samkvæmt 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006. Ekki hafa komið fram skýringar af hálfu kæranda um ástæður þess að kæran barst ekki innan kærufrests samkvæmt framangreindu ákvæði.
Með vísan til framanritaðs er það niðurstaða ráðuneytisins að vísa beri frá stjórnsýslukæru í máli þessu.
Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær er að rekja til mikilla anna í ráðuneytinu.
Úrskurður
Stjórnsýslukæru Barða ehf. í máli þessu er vísað frá.