Hoppa yfir valmynd
27. maí 2021 Heilbrigðisráðuneytið

Ráðstefna 1. júní: Heilbrigðisþjónusta nýrra tíma

Heilbrigðisráðuneytið og Landspítali efna til ráðstefnu undir yfirskriftinni „Heilbrigðisþjónusta nýrra tíma" um þróun heilbrigðisþjónustu á tímum breytinga 1. júní kl. 14–16. Ráðstefnan er liður í nýsköpunarviku sem nú stendur yfir. 

Nýsköpunarvikan 26. maí - 2. júní 2021 er hátíð þar sem fyrirtækjum og frumkvöðlum gefst kostur á að standa fyrir nýsköpunartengdum viðburðum þar sem spennandi sóknarfæri og frjóar hugmyndir geta sprottið upp. Hátíðin vekur athygli á nýsköpun sem á sér stað innan stofnana, fyrirtækja og sprotafyrirtækja þar sem framúrstefnulegar lausnir, ólík sköpunarferli og kraftmiklir frumkvöðlar fá notið sín. Nýsköpunarvikan er þannig vettvangur fyrir innlenda jafnt sem erlenda aðila til að kynnast nýsköpun á Íslandi, tengjast sprotum, fjárfestum og frumkvöðlum og mynda ný viðskiptasambönd og tengsl.

Nýsköpun í heilbrigðisþjónustu hefur blómstrað undanfarin misseri, þar sem snerpa, sveigjanleiki og samstarf eru hugtök sem gegna lykilhlutverki í að móta nýjar leiðir þegar kemur að því að veita heilbrigðisþjónustu. Styrkir til nýsköpunar hafa gert stofnunum, fyrirtækjum og sprotum kleift að hrinda í framkvæmd verkefnum og breytingum sem eru til hagsbóta fyrir þá sem þurfa á þjónustunni að halda samhliða því að auka öryggi og hagkvæmni þjónustunnar.

Heilbrigðisráðuneytið stendur ásamt Landspítala að ráðstefnu þriðjudaginn 1. júní kl. 14-16 þar sem 6 nýsköpunarverkefni í heilbrigðisþjónustu og 13 styrkhafar nýrra gæða- og nýsköpunarverkefna verða kynnt. Því til viðbótar verður slegið á þráðinn út á landsbyggðina og forvitnast um nýsköpunarverkefni í heilbrigðisþjónustu á Austurlandi. Ráðstefnan er lokuð gestum af sóttvarnaraðstæðum og því streymt í beinni útsendingu og hún er síðan aðgengileg í upptöku eftir á. Viðburðurinn er unninn í samstarfi við Landspítala sem sendir hann út í streymi á vef sínum og samfélagsmiðlum.

Hægt er að fylgjast með viðburðinum hér: https://www.facebook.com/landspitali og verður opnað fyrir beina útsendingu rétt fyrir viðburðinn.

DAGSKRÁ

14:00
Setningarávarp: Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra

14:10
Atferlisþjálfun ungmenna
Beanfee-verkefnið
Helgi Karlsson

14:25
Öðruvísi göngudeildarþjónusta: Covid-göngudeildin
Runólfur Pálsson, Landspítala

14:40
Teymisvinna í göngudeildarþjónustu: Eiríksstaðir og brjóstamiðstöðin

Lilja Stefánsdóttir, Landspítala

14:55
Landspítalaappið: Stuðningur við sjúklinga í sjúkrahúslegu
Arnar Þór Guðjónsson, Landspítala

15:10
Meðvera í Heilsuveru: Skráning á eigin sjúkrasögu
Kristín Skúladóttir Landspítala og Guðrún Auður Harðardóttir embætti landlæknis

15:25
Fjarheilbrigðislausnir á Austurlandi: Nýsköpun í heilbrigðisþjónustu
Guðjón Hauksson, Heilbrigðisstofnun Austurlands

15:40
Afhending styrkja heilbrigðisráðuneytis til 13 nýrra gæða- og nýsköpunarverkefna í heilbrigðisþjónustu

15:55
Lokaorð: Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala

16:00
Ráðstefnulok

Fundarstjóri: Ásta Valdimarsdóttir, ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum