Hoppa yfir valmynd
23. september 2020 Utanríkisráðuneytið

SOS Barnaþorpin í samstarf við Bayern München

Ljósmynd: Bundesliga - mynd

Þýska knattspyrnustórveldið Bayern München ætlar að tefla fram stórstjörnum sínum og aðstöðu félagsins fyrir samfélagsverkefni sem gengur út á að draga fram hugrekki og falda hæfileika barna af ólíkum uppruna. Bayern München og barnahjálparsamtökin SOS Barnaþorpin kynntu í dag samstarfsverkefni þess efnis.

Fræðsluverkefnið „Leikvangur breytinga," eða "Arena of change", gengur út á að kalla fram hugrekki barna af ólíkum uppruna og báðum kynjum til að þróa hæfileika sína, ekki aðeins á sviði íþrótta heldur líka lista og vísinda. Börnin læra ekki aðeins hvert af öðru því leikmenn Evrópumeistaraliðs Bayern, auk ungra framtíðarstjarna félagsins, gegna hlutverki fyrirmynda og leiðbeinenda.

Á fyrsta stigi verkefnisins koma 60 börn á aldrinum 8-14 ára saman úr fimm skólum í München og spila fótbolta á æfingasvæði Bayern. Út frá fótboltaiðkuninni fást börnin við margþætt frammistöðumiðuð verkefni með það að leiðarljósi að efla framtíðarmöguleika þeirra. Áhersla verður lögð á að draga fram hugrekki barnanna án þess að leggja á þau þrýsting eða samkeppni milli þeirra.

Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður FC Bayern, segir að markmið félagsins sé að taka þátt í þróun á samfélagslegri sjálfbærni og þetta samstarf sé félaginu afar mikilvægt til að gera það sýnilegra og áhrifaríkara. „SOS Barnaþorpin eru fremst á sviði alþjóðlegra hjálparsamtaka og eiga því fullkomna samleið með FC Bayern," segir Rummenigge í fréttatilkynningu um verkefnið.

SOS Barnaþorpin hafa í 70 ár einblínt á börn án foreldraumsjár og starfa í 137 löndum en starf samtakanna er sérstaklega þekkt og virt meðal almennings í Þýskalandi.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

4. Menntun fyrir öll
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum