Hoppa yfir valmynd
26. nóvember 2015 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 192/2015

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 26. nóvember 2015 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 192/2015

í stjórnsýslumáli nr. KNU15090028

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru, dags. 25. september 2015, kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 23. september 2015, um að synja honum um hæli á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga nr. 96/2002 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt hæli sem flóttamaður hér á landi, skv. 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og kæranda verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi hér á landi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi kom til landsins 5. júlí 2015 og sótti um hæli þann 8. júlí s.á. hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Viðtal var tekið við kæranda, að viðstöddum löglærðum talsmanni hans, hjá Útlendingastofnun 11. september 2015. Með ákvörðun dags. 23. september 2015 synjaði Útlendingastofnun kæranda um hæli ásamt því að kæranda var synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærandi kærði þá ákvörðun til kærunefndar útlendingamála við birtingu, þann 25. september s.á. og óskaði hann jafnframt eftir frestun réttaráhrifa á ákvörðun Útlendingastofnunar. Þann 29. september 2015 barst kærunefnd útlendingamála gögn málsins frá Útlendingastofnun. Þann sama dag var fallist á beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa. Þann 5. október 2015 var löglærðum talsmanni kæranda gefinn frestur til að skila inn greinargerð. Greinargerð barst kærunefnd þann 1. nóvember 2015 og þann 3. sama mánaðar bárust athugasemdir við greinargerðina frá Útlendingastofnun og löglærðum talsmanni kæranda.

Kærandi kom, þann 12. nóvember 2015, fyrir kærunefnd útlendingamála og gerði grein fyrir máli sínu, sbr. 5. mgr. 3. gr. b laga um útlendinga.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

 

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi vera í hættu í heimalandi sínu vegna hótana og ofbeldis af hálfu annars manns.

Útlendingastofnun taldi framburð kæranda að mestu trúverðugan. Þó var tekið fram að það þótti ekki trúverðugt að staða þess manns sem kærandi kvaðst óttast kæmi í veg fyrir að hann gæti leitað verndar yfirvalda í […].

Útlendingastofnun taldi ástæður hinna meintu ofsókna er kærandi nefndi ekki verða raktar til þeirra atriða er greinir í 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga og að allar upplýsingar bendi til þess að stjórnvöld og lögregla í […] séu í stakk búin til að veita umsækjanda viðeigandi vernd. Stofnunin taldi atvik þau er kærandi hafði lýst ekki ná þeim alvarleika að þeim yrði jafnað til ofsókna í skilningi 1. mgr. 44. gr., sbr. 44. gr. a, útlendingalaga og ekki yrði því talið að líf hans eða frelsi væri í hættu í heimalandi. Ennfremur væru þær aðstæður sem kærandi lýsti ekki taldar stafa af þeim ástæðum samkvæmt 1. mgr. 44. gr. sömu laga og því ætti ákvæðið ekki við í málinu. Af öllu ofangreindu var það því mat stofnunarinnar að synja bæri um hæli skv. 1. og 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga.

Varðandi kröfu kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f taldi Útlendingastofnun að kærandi væri ekki í þeirri aðstöðu í […] að hann ætti á hættu að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Því þótti ekki ástæða til að veita kæranda dvalarleyfi með vísan til mannúðarsjónarmiða, félagslegra aðstæðna kæranda eða sérstakra tengsla hans við Ísland.

Þá var kæranda vísað frá landinu á grundvelli 3. mgr. 90. gr. reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga sbr. IX. kafla reglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað að kæra myndi ekki fresta framkvæmd ákvörðunar sinnar með vísan til c-liðar 1. mgr. 32. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kveðst kærandi hafa farið frá […] vegna ótta við ofsóknir af hálfu ákveðins manns. Kærandi kveðst hafa hitt manninn á bílastæði fyrir utan matvöruverslun þann […]. Maðurinn hafi verið drukkinn og ráðist á kæranda af litlu tilefni og stungið hann með hníf. Kærandi kveður manninn vera þekktan fyrir ofbeldi og illdeilur, hann hafi m.a. hlotið dóm fyrir að skjóta annan mann í hnakkann en einungis setið í fangelsi í eitt ár vegna þess brots. Kærandi kveðst hafa leitað til læknis í kjölfar árásinnar en ekki þorað að gefa upp nafn árásarmannsins. Kærandi kveðst óttast um líf sitt í […] og taldi sig ekki geta leitað til lögreglu af ótta við að það myndi aðeins gera illt verra.

Í greinargerð kæranda er gerð athugasemd við að í ákvörðun Útlendingastofnunar hafi aðeins verið fjallað almennt um aðstæður í […] og dregin upp jákvæðari mynd af þeim en tilefni sé til. Sneytt hafi verið hjá mikilvægum staðreyndum er varði spillingu í gervöllu stjórnkerfi landsins, hefndarmenningu og háa glæpatíðni. Útlendingastofnun er sögð hafa tekið ákvörðun í málinu eingöngu byggða á þjóðerni kæranda og ekki hafi farið fram einstaklingsbundið og sjálfstætt mat á aðstæðum kæranda í málinu. Það sé brot á 3. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna að mismuna flóttamönnum eftir ættlandi.

Þá kom fram að samkvæmt nýlegum tölum úr opinberum tölfræðigagnagrunni Evrópu (Eurostat) þá væri hlutfall samþykktra hælisumsókna […] í Evrópu [..]% á fyrsta ársfjórðungi 2015 en meðaltalið árið 2014 hafi verið […]%. Í þessu ljósi bæri að taka umsóknir […] alvarlega og kanna hvort þeir sem hingað koma og óska eftir hæli séu í raunverulegri þörf fyrir vernd og einnig hvort þeim stafi hugsanleg hætta af endursendingu til heimalands óháð því hvort viðkomandi teljist flóttamaður eða ekki.

Í greinargerð er Útlendingastofnun sögð hafa brotið gegn rannsóknarskyldu sinni samkvæmt stjórnsýslulögum og lögum um útlendinga með því að staðhæfa að ofbeldisbrot í […] tengist fyrst og fremst skipulagðri glæpastarfsemi en hefði lítil sem engin áhrif á almenning og daglegt líf borgaranna. Ekki hafi verið fjallað um tíðni ofbeldisbrota í […] eða á annan hátt um raunverulegar líkur þess að kærandi eigi á hættu að verða fyrir ofbeldi eða verða myrtur.

Kærandi kveðst hafa orðið fyrir alvarlegum ofbeldisverkum af hálfu ofsækjanda síns og fengið hótanir í kjölfarið. Það hlyti að teljast til athafna sem í eðli sínu feli í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum í skilningi 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga. Kærandi óttist að verða fyrir sambærilegum atvikum í framtíðinni. Kærandi telur stjórnvöld í […] hvorki vilja né geta veitt honum nauðsynlega vernd. […] sé fátækt land þar sem mikil spilling ríki, m.a. innan réttarkerfisins. Barátta stjórnvalda gegn spillingunni hafi lítinn árangur borið og spilltir embættismenn komist því áfram undan refsingu. Spillingin birtist meðal annars í lögregluofbeldi, mútuþægni og mismunun í málsmeðferð almennra borgara hjá lögreglu og dómstólum. Það sé því til lítils að ætlast til þess að kærandi geti leitað ásjár […] yfirvalda og fá þar fullnægjandi vernd þar sem öll gögn bendi til þess að spilling, mútuþægni, skortur á gagnsæi og skipulögð glæpastarfsemi séu landlægt vandamál sem veikt réttar- og löggæslukerfi […] sé á engan hátt í stakk búið til að takast á við.

Kærandi kveður ekki mögulegt fyrir sig að flytja sig um set innan […] þar sem hann gæti ekki verið öruggur. Mikilvægt sé einnig að hafa í huga smæð landsins þegar aðstæður kæranda eru metnar í tengslum við flutning hans innanlands.

Til vara var þess krafist með vísan til alls ofangreinds að kæranda yrði veitt viðbótarvernd skv. 2. mgr. 44. gr. laga um útlendingalaga.

Varðandi þrautavarakröfu kæranda kemur fram í greinargerð að í athugasemdum frumvarps til laga nr. 115/2010, um breytingu á útlendingalögum, segi að með íþyngjandi félagslegum aðstæðum að öðru leyti sé átt við alvarlegar aðstæður í heimaríki, t.d. viðvarandi mannréttindabrot eða þá aðstöðu að stjórnvöld veita ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Með hliðsjón af þessu og því sem kærandi hefur greint frá sé ljóst að kærandi uppfylli skilyrði 12. gr. f útlendingalaga, þar sem […] stjórnvöld annað hvort vilja ekki eða geta ekki veitt þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum af því tagi sem um ræðir, og því beri að veita kæranda dvalarleyfi af mannúðarástæðum.

Að lokum var bent á það í greinargerð að þegar umsækjandi um hæli frá […] hefur dvalið í meira en þrjá mánuði á Íslandi og honum er synjað um hæli í kjölfarið eigi hann einskis annars kost en að verða sendur nauðugur aftur til heimalands. Því beri að skoða vandlega hvort ákvæði 45. gr. laga um útlendinga komi í veg fyrir slíka endursendingu, hvað sem líði skilyrðum flóttamannahugtaksins.

VI. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þegar kærandi sótti um hæli á Íslandi hafi hann framvísað […] vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé […] ríkisborgari.

Landaupplýsingar og […]

[…] er lýðræðisríki með um [...]

Kærunefnd útlendingamála hefur m.a. farið yfir eftirfarandi skýrslur og gögn um […]: [...]

Í ofangreindum gögnum kemur fram að […] stjórnvöld hafa tekið mikilvæg skref til að auka vernd borgara sinna og að […] hafi miðað áfram í málefnum er snerta réttarkerfið, frelsi og öryggi. Sérstaklega höfðu orðið framfarir hvað varðar landamæravörslu, samvinnu í dómskerfinu og í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi.

a. Krafa um hæli

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og breytt á þann veg að kærandi fái réttarstöðu flóttamanns skv. 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna.

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, sbr. flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, eða 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Kærandi byggir kröfu sína á að hann þurfi vernd hér á landi á grundvelli þess að annars verði lífi hans stefnt í hættu.

Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda ástæðuríkan ef hann getur á nægilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimalandi sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í ákvæðinu, eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Þessi sjónarmið þurfa jafnframt ekki endilega að byggjast á persónulegri reynslu umsækjanda, heldur geta ofsóknir sem vinir hans eða ættingjar eða aðrir sem tilheyra sama þjóðfélagshópi hafa orðið fyrir, gefið til kynna að ótti hans við að verða fyrr eða síðar fórnarlamb ofsókna sé ástæðuríkur.

Í 44. gr. a útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir, á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggt og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Til þess að um sé að ræða ofsóknir skv. 1. mgr. 44. gr. verður að vera um að ræða athafnir sem í eðli sínu, eða vegna þess að þær eru endurteknar, fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samansafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 3. mgr. 44. gr. a eru taldir upp þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þar segir að:

Þeir sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eru:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess, og

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið þessarar málsgreinar, þar með talið alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 44. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Þótt fallist sé á að einstaklingur í þessari aðstöðu skuli njóta vafans upp að ákveðnu marki, verður kærandi a.m.k. að sýna fram á að líkur séu á að hans bíði ofsóknir í heimalandi. Samkvæmt meginreglum um túlkun flóttamannahugtaksins sem fram koma í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, er m.a. miðað við það að viðkomandi þurfi almennt að sýna fram á að góðar ástæður liggi til grundvallar ótta við ofsóknir og að hugarástand flóttamannsins skipti ekki eitt máli heldur verði yfirlýsing hans einnig að fá stuðning í hlutlægum og staðreynanlegum aðstæðum (Handbók um réttarstöðu flóttamanna. Um málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna (Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Reykjavík 2008)).

Kærandi hefur staðhæft að hann sé í lífshættu vegna hótana ákveðins manns í heimalandi sínu. Kærandi hefur ekki borið fyrir sig ofsóknir af hálfu […] stjórnvalda eða aðilum tengdum þeim. Kærandi hefur þar að auki ekki borið fyrir sig ofsóknir af ástæðum sem taldar eru upp í 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, þ.e. á grundvelli kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga fyrir veitingu réttarstöðu flóttamanns. Þó svo að kærandi ætti raunverulega á hættu að sæta ofsóknum í heimalandi þá telur kærunefnd að hann gæti þá leitað eftir og fengið aðstoð stjórnvalda í […].

b. Varakrafa kæranda

Til vara krefst kærandi þess að hinni kærðu ákvörðun verði breytt á þann hátt að honum verði veitt viðbótarvernd, sbr. 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga.

Í 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að flóttamaður samkvæmt útlendingalögum telst einnig útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til heimalands. Er hér um að ræða svokallaða viðbótarvernd sem kom inn í útlendingalögin með lögum nr. 115/2010 um breytingar á útlendingalögum. Þeir sem teljast falla undir þessa málsgrein fá stöðu sína viðurkennda eftir málsmeðferðarreglum sem eru sambærilegar að öllu leyti við ákvörðun á því hvort um flóttamann skv. 1. mgr. 44. gr. laganna er að ræða.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu opinberir starfsmenn. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að góðar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita fullnægjandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og frásögn kæranda verður að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N.M. og M.M. gegn Bretlandi í málum nr. 38851/09 og 39128/09).

Í þeim gögnum sem kærunefndin hefur yfirfarið kemur fram að stjórnvöld í […] vinni að því að bæta réttarkerfi landsins og frelsi og öryggi almennings. Hefur þónokkur árangur náðst síðustu ár þó enn sé þörf á frekari umbótum. Kærandi kveðst hafa orðið fyrir árás í september 2012 af hendi manns sem hann kveður þekktan fyrir ofbeldi í heimalandi sínu. Kærandi hefur ekki orðið fyrir frekari ofbeldi af hálfu þessa manns en kveður manninn hafa hótað sér. Kærandi vísar til þess að ofangreindur maður hafi verið dæmdur fyrir að skjóta annan mann en aðeins setið inni í eitt ár. Ekki kemur fram í frásögn kæranda hvenær fyrrgreint atvik hafi átt sér stað en ætla má að það hafi verið áður en hann réðst á kæranda. Þó rétt sé að veikleikar séu á réttarkerfinu í […] þá hafa, líkt og áður hefur komið fram, átt sér stað umbætur á liðnum árum og því er það mat kærunefndar að þó svo kærandi ætti raunverulega á hættu illa meðferð í heimalandi sínu, af hálfu þess aðila sem hann hefur nefnt, þá hafi hann raunhæfan möguleika á að leita sér ásjár stjórnvalda þar. Styðja heimildir ekki þá staðhæfingu kæranda að […] stjórnvöld skorti vilja eða getu til að veita kæranda fullnægjandi vernd óski hann eftir henni við þau.

Í ljósi þess sem að framan er rakið telur kærunefndin að aðstæður kæranda í heimalandi hans séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 44. gr. laganna. Þá telur kærunefndin ekkert fram komið sem bendir til þess að hætt sé við því að kærandi sæti ómannúðlegri og/eða vanvirðandi meðferð við heimkomuna, sbr. 2. mgr. 44. og 1. mgr. 45 gr. laganna.

c. Þrautavarakrafa kæranda

Til þrautavara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f laga um útlendinga.

Samkvæmt 12. gr. f er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt skilyrðum sé annars ekki fullnægt, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að veita má dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Kærunefndin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og teljist því ekki flóttamaður. Þegar framburður kæranda er virtur í heild sinni ásamt gögnum málsins er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi heldur ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 12. gr. f útlendingalaga og að engin sérstök mannúðarsjónarmið standi til þess að honum verði veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum hér á landi. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í […] séu ekki með þeim hætti að rík mannúðarsjónarmið standi til þess að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna skv. 12. gr. f útlendingalaga.

Jafnframt telur kærunefndin kæranda ekki uppfylla skilyrði 12. gr. f útlendingalaga um sérstök tengsl við landið. Eins og fram kemur í gögnum málsins hefur kærandi aðeins dvalið á Íslandi í tengslum við hælisumsókn sína og aðeins í skamman tíma.

Ætlað brot á reglum stjórnsýslulaga

Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, skal Útlendingastofnun sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því og afla í því skyni nauðsynlegra upplýsinga. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í því. Um frekari afmörkun á hversu ítarlega beri að rannsaka mál, ber m.a. að líta til þess hversu mikilvægt það er. Því tilfinnanlegri eða meira íþyngjandi sem stjórnvaldsákvörðun er, þeim mun strangari kröfur verður að gera til rannsóknar á þeim atvikum sem leiða til niðurstöðunnar. Markmið rannsóknarreglunnar er að tryggja að stjórnvaldsákvarðanir verði bæði löglegar og réttar. Í þeim tilvikum þegar ákvörðun stjórnvalds byggist á mati verður að afla þeirra upplýsinga sem nauðsynlegar eru svo hægt sé að beita þeim sjónarmiðum sem ætlun er að byggja stjórnvaldsákvörðun á.

Við mat á því hvort brot á rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga leiði til ógildingar á ákvörðun Útlendingastofnunar er rétt, eins og hér stendur á, að telja ákvörðunina ógildanlega ef sannanlegt er að annmarkinn hafi haft áhrif á efni hennar. Þó fallist verði á það með kæranda að Útlendingastofnun hefði verið rétt að fjalla betur um persónulegar aðstæður kæranda í heimalandi hans verður ekki séð að skortur á slíkri umfjöllun í ákvörðun stofnunarinnar hafi haft áhrif á niðurstöðu hennar. Kærunefnd getur því ekki fallist á það með kæranda að Útlendingastofnun hafi brugðist rannsóknarskyldu sinni skv. stjórnsýslulögum og lögum um útlendinga.

 

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar frá 23. september 2015.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The Directorate of Immigration‘s decision is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

Pétur Dam Leifsson Vigdís Þóra Arnardóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum