Hoppa yfir valmynd
4. október 2016 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 334/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 4. október 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 334/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU16070017

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 20. júlí 2016 kærði [...] fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 4. júlí 2016, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um hæli á Íslandi og endursenda hann til Hollands.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um hæli til efnislegrar meðferðar, sbr. 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga nr. 96/2002, sbr. 1. mgr. 17. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin).

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um hæli á Íslandi þann 8. júní 2016. Við leit að fingraförum kæranda í svokölluðum Eurodac gagnagrunni, þann 14. júní 2016, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Þýskalandi og Hollandi. Þann 15. júní 2016 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um hæli beint til yfirvalda í Hollandi, sbr. 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Þann 21. júní 2016 barst svar frá hollenskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 4. júlí 2016 að taka ekki umsókn kæranda um hæli hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Hollands. Kærandi kærði ákvörðunina þann 20. júlí 2016 til kærunefndar útlendingamála auk þess að óska eftir frestun réttaráhrifa á hinni kærðu ákvörðun á meðan mál hans væri til meðferðar. Fallist var á frestun réttaráhrifa á meðan málið væri til kærumeðferðar með bréfi kærunefndar, dags. 20. júlí 2016. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 17. ágúst 2016.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að hælisumsókn kæranda yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Hollands. Lagt var til grundvallar að Holland virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Hollands ekki í sér brot gegn 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi sótt um alþjóðlega vernd í Hollandi en fengið synjun. Í viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun hafi komið fram að kærandi vilji ekki fara aftur til Hollands þar sem samfélagið sé ómannúðlegt og landið sé ekki góður staður til að búa á. Þá hafi í viðtalinu jafnframt komið fram að kærandi kveðst ekkert og engan að óttast í Hollandi en vilji fremur fara til [...] þar sem fjölskylda hans búi.

Í greinargerð kæranda segir að þeir sem hafi fengið synjun á umsókn sinni um vernd í Hollandi og sæki aftur um hæli þar eigi ekki rétt á húsnæði eða annarri félagslegri aðstoð sem hælisleitendum sé annars veitt í landinu. Verði kærandi sendur til Hollands þurfi hann því að búa á götunni þar til hann verði sendur úr landi. Sé þetta meðal annars gagnrýnt í skýrslu nefndar sem hafi eftirlit með framkvæmd félagsmálasáttmála Evrópu (e. European Committee on Social Rights) en þar komi fram að hollenskum stjórnvöldum beri að sjá til þess að hælisleitendur sem fái synjun á beiðni sinni um vernd fái húsaskjól, fatnað og mat. Að mati nefndarinnar stríði það gegn mannlegri reisn að sjá ekki til þess að viðeigandi móttökuskilyrði séu til staðar fyrir þennan hóp hælisleitenda.

Þrátt fyrir að hælisleitendum bjóðist lögfræðiaðstoð í Hollandi í tengslum við vernd og, eftir atvikum, kæru ákvörðunar þá telji sumir lögfræðingar sig ekki fá greitt í samræmi við þá vinnu sem þeir leggi í hvert mál og það geti leitt til þess að mál séu ekki undirbúin nægjanlega vel og geti það haft áhrif á úrlausn hælismála.

Í ljósi þeirra aukningar sem orðið hafi undanfarið í hælisumsóknum í Hollandi sé óljóst hvort útlendingayfirvöld í landinu muni koma til með að geta sinnt öllum hælisleitendum m.t.t. viðeigandi móttökuaðstæðna og móttökuskilyrða.

Þá sé einnig gríðarlega erfitt fyrir hælisleitendur að finna sér atvinnu og séu atvinnurekendur ekki áfjáðir í að gera ráðningarsamninga við hælisleitendur vegna ýmissa kerfislegra hindrana og þá eigi hælisleitendur einungis rétt á að starfa að hámarki í 24 vikur á hverju tólf mánaða tímabili.

Í greinargerð kæranda er vísað til d-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga og lögskýringagagna að baki þeim. Vísað sé til þess að ákvæði 1. mgr. 46. gr. a kveði á um heimild til að synja um efnismeðferð en ekki skyldu. Þá sé á það bent að kerfisbundinn galli á aðbúnaði og meðferð hælisleitenda í aðildarríki sé ekki ákvörðunarástæða fyrir því að umsókn sé tekin til meðferðar í öðru aðildarríki en því sem ber ábyrgð skv. Dyflinnarreglugerðinni. Það fái stoð í greinargerð innanríkisráðuneytisins um endursendingar hælisleitenda til Ítalíu, frá desember 2015. Þar komi meðal annars fram að nýlegir dómar Mannréttindadómstóls Evrópu hafi skýrt að það sé ekki nauðsynlegt að sýna fram á kerfislæga annmarka á málsmeðferð eða móttöku hælisleitenda í viðtökulandinu heldur skuli miða við það hvort veruleg ástæða sé til að ætla að hlutaðeigandi einstaklingur standi frammi fyrir raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð í viðtökuríkinu sem samrýmist ekki 3. gr. mannréttindasáttmálans.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Fyrir liggur í máli þessu að hollensk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Úrlausnarefni kærumáls þessa er að skera úr um hvort rétt sé að taka ekki umsókn kæranda um hæli til efnismeðferðar og vísa honum til Hollands.

Í máli þessu gilda aðallega ákvæði laga um útlendinga nr. 96/2002, með síðari breytingum, ákvæði reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga, með áorðnum breytingum og ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Auk þess ber að taka mið af ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar en Ísland skuldbatt sig til að fylgja henni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um hæli sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla hennar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á hælisumsókn. Jafnframt ber að líta til annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í d-lið 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga kemur fram að stjórnvöld geti, með fyrirvara um ákvæði 45. gr. laganna, synjað að taka til efnismeðferðar hælisumsókn ef krefja megi annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda (Dyflinnarmál). Þó kemur fram í 2. mgr. 46. gr. a sömu laga að ekki skuli endursenda flóttamann til annars ríkis hafi hann slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða sérstakar ástæður mæli annars með því. Samkvæmt 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga má heldur ekki senda útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir sem gætu leitt til þess að hann skuli teljast flóttamaður eða ef ekki er tryggt að hann verði ekki sendur til slíks svæðis. Samsvarandi verndar skal útlendingur njóta sem vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Við mat á því hvort beita skuli þessum ákvæðum í Dyflinnarmálum þarf einkum að kanna hvort aðstæður hælisleitenda í því ríki, sem endursenda á hælisleitanda til samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni, kunni að brjóta gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Sé svo er óheimilt að senda hælisleitandann þangað og skal þá taka hælisumsókn viðkomandi til efnismeðferðar hér, sbr. einnig undanþágureglu 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Eftir atvikum þarf enn fremur að skoða hvort slíkur ágalli sé á málsmeðferð þess ríkis, sem endursenda á til, að það brjóti í bága við 13. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu getur sú staða komið upp að óheimilt sé að endursenda hælisleitendur til einstakra ríkja vegna ástands í viðkomandi móttökuríki. Aðildarríki mannréttindasáttmálans verða að vera meðvituð um alvarlega galla sem kunna að vera á meðferð hælisumsókna eða móttöku hælisleitenda í því aðildarríki sem endursenda skal til á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Verður því að skoða aðstæður hælisleitenda og málsmeðferð í Hollandi.

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Hollandi m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Asylum Information Database, National Country Report: The Netherlands (European Council on Refugees and Exiles, nóvember 2015)
  • Amnesty International Report 2015/16 – Netherlands (Amnesty International, 2016)
  • Freedom in the World 2016 – Netherlands (Freedom House, 18. ágúst 2016)
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2015 (European Asylum Support Office, 8. júlí 2016)
  • Endursendingar hælisleitenda til Ítalíu: Greinargerð innanríkisráðuneytisins (Innanríkisráðuneytið, desember 2015)
  • The Netherlands 2015 Human Rights Report (United States Department of State, 16. apríl 2016)
  • Bréf Dr. K.H.D.M. Dijkhoff, ráðherra öryggis- og dómsmálaráðuneytisins, til umsækjenda um alþjóðlega vernd (Birt á vefsíðu hollenska öryggis- og dómsmálaráðuneytisins, 23. maí 2016)

Samkvæmt ofangreindum skýrslum geta þeir hælisleitendur í Hollandi sem hafa fengið synjun í hælismáli sínu hjá útlendingastofnun Hollands (h. Immigratie- en Naturalisatiedienst/IND) kært niðurstöðuna til svæðisdómstóls og þeim dómi er unnt að áfrýja til Ríkisráðsins (e. Council of State). Fái umsækjandi um hæli endanlega synjun á umsókn sinni á hann möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn (e. subsequent application) um hæli hjá útlendingastofnun. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst í máli hans eða verulegir annmarkar voru á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Umsækjendur um hæli geta borið mál sitt undir svæðisdómstól og Ríkisráðið sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á hæli hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.

Hælisleitandi á rétt á húsaskjóli á meðan viðbótarumsókn er til meðferðar. Hafi viðbótarumsókn um hæli verið hafnað getur hælisleitandinn áfrýjað þeirri niðurstöðu og óskað eftir frestun réttaráhrifa á meðan viðbótarumsóknin er tekin fyrir á kærustigi. Í slíkum tilvikum er hælisleitanda úthlutað húsnæði á meðan málið er í kærumeðferð, sem og í 28 daga eftir endanlega niðurstöðu málsins. Sé ákvörðun útlendingastofnunar um synjun á viðbótarumsókn endanlega staðfest þá býðst hælisleitanda aðstaða í gistiskýli í tilteknum fjölda sveitarfélaga fram að brottflutningi frá Hollandi. Skilyrði þess að fá að dvelja í gistiskýli er að hælisleitandi sýni samstarfsvilja við málsmeðferðina vegna brottflutnings frá Hollandi.

Þegar umsækjandi leggur fram viðbótarumsókn um hæli hefur hann rétt á lögfræðiþjónustu sér að kostnaðarlausu bæði á fyrsta stigi og á áfrýjunarstigi. Hollenska dómsmálaráðuneytið hefur sett á laggirnar nefnd um lögfræðiráðgjöf (e. Legal Aid Board). Umsækjendur um hæli hafa rétt á því að fá lögmann tilnefndan af nefndinni en mega einnig velja sér lögmenn sem ekki eru á lista nefndarinnar. Jafnframt útvegar hollenska flóttamannaráðið hælisleitendum lögfræðiaðstoð. Lögmaður umsækjanda um hæli getur ákveðið að leggja ekki fram neinn rökstuðning fyrir hönd hælisleitandans ef hann telur að áfrýjun sé ekki vænleg til árangurs. Þegar lögmaður tekur slíka ákvörðun þarf hann að tilkynna hana til framangreindrar nefndar um lögfræðiráðgjöf og getur umsækjandi beðið um annað álit sem getur leitt til þess að annar lögfræðingur taki málið að sér.

Athugun kærunefndar á aðstæðum hælisleitenda í Hollandi hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði hælisleitenda þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda til Hollands brjóti í bága við 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, verði hann sendur þangað. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Hollandi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Ennfremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu hælisleitenda til Hollands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 1. júlí 2016 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Þá benda gögn ekki til þess að aðstæður hans séu að öðru leyti svo sérstakar að ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga eigi við. Verður því ekki talið að ástæða sé til að taka mál kæranda til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra tengsla við Ísland eða annarra sérstakra ástæðna, sbr. framangreint ákvæði. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er fjallað um fyrri hluta 2. mgr. 46. gr. a sem lítur að tengslum kæranda við Ísland. Engin bein umfjöllun er hins vegar um síðari hluta málsgreinarinnar er lítur að öðrum sérstökum ástæðum sem kunna að kalla á að íslensk stjórnvöld taki mál kæranda til efnismeðferðar. Kærunefnd hefur litið til þess að þrátt fyrir þennan annmarka fjallar ákvörðunin um þær ástæður sem gætu leitt til þess að mál yrði tekið til efnismeðferðar þó svo að stofnunin vísi ekki beint til síðari hluta 2. mgr. 46. gr. a. Kærunefnd telur því að þessi ágalli sé ekki svo verulegur að vísa beri málinu til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun eins og hér stendur sérstaklega á.

Í máli þessu hafa hollensk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um hæli á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er fallist á að Útlendingastofnun hafi verið rétt að synja um efnismeðferð á umsókn kæranda um hæli hér á landi og ákveða að senda kæranda til Hollands með vísan til d-liðar 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga.

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar útlendingamála að staðfesta beri ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir, varaformaður

Erna Kristín Blöndal Þorbjörg Inga Vigfúsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum