Hoppa yfir valmynd
20. júní 2006 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mál nr. 13/2006. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 20. júní 2006

í máli nr. 13/2006:

Sportrútan ehf.

gegn

Eyjafjarðarsveit

Með bréfi 8. júní 2006 kærir Sportrútan ehf. útboð Eyjafjarðarsveitar auðkennt sem ,,Skólaakstur fyrir Hrafnagilsskóla“.

Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála stöðvi samningsgerð kærða við SBA-Norðurleið, sbr. 1. mgr. 80. gr. laga nr. 94/2001 um opinber innkaup. Þá krefst kærandi þess að felld verði úr gildi eða breytt ákvörðun kærða um að hafna tilboði kæranda í leið 4 í hinu kærða útboði. Þess er jafnframt krafist að nefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu kærða gagnvart kæranda, sbr. 2. mgr. 81. gr. laga nr. 94/2001.

Kærði krefst þess að kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar verði hafnað.

Kærunefnd útboðsmála telur rétt að taka afstöðu til kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar þegar í stað. Úrlausn um kröfur kæranda að öðru leyti bíður hins vegar endanlegs úrskurðar.

I.

           Í febrúar 2006 óskaði kærði eftir tilboðum í skólaakstur með nemendur í Hrafnagilsskóla og var útboðið auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Um var að ræða sex akstursleiðir með samtals um 150 nemendur og var heimilt að bjóða í einstakar leiðir, nokkrar saman eða allar.  Skólaaksturinn var boðinn út til fjögurra ára með möguleika á framlengingu um eitt ár í senn að hámarki tvisvar sinnum. Í lið 1.2.1 í útboðslýsingu var fjallað um kröfur til hæfis bjóðenda. Kom þar fram að bjóðendur þyrftu að hafa jákvætt eigið fé, að minnsta kosti tveggja ára reynslu af akstri fólksflutninga sambærilegum þeim sem tilboð þeirra næði til og sýna fram á með vottorðum frá þar til bærum yfirvöldum að bifreiðar þeirra væru útbúnar samkvæmt lögum og reglugerðum. Tilboð voru opnuð 19. apríl 2006 og skiluðu sjö bjóðendur inn tilboðum. Kærandi bauð í leiðir 4, 5 og 6 og var tilboð hans í leið 4 lægst. Í bréfi kærða, dags. 4. maí 2006, um niðurstöðu á úrvinnslu tilboða kemur fram að tilboð frá kæranda og Norðlenskum húsum ehf. hafi verið dæmd ógild þar sem þau hefðu ekki staðist þær kröfur sem gerðar væru um reynslu bjóðenda í lið 1.2.1 í útboðslýsingu. Var jafnframt tekið fram að gengið yrði til viðræðna við SBA-Norðurleið á grundvelli frávikstilboða 1 og 2 sem hljóði upp á 511.840 krónur á viku í allan akstur skólans. Með bréfi, dags. 8. maí 2006, gerði kærandi athugasemdir við að tilboði hans hefði verið hafnað vegna þess að fyrirtækið stæðist ekki kröfur útboðslýsingar um starfsreynslu. Meðal annars var tekið fram að þeir sem standi að fyrirtækinu hafi minnst þriggja ára starfsreynslu í hópferðaakstri og aðrir allt að þrjátíu ára starfsreynslu í hópferða- og leigubílaakstri. Sé fyrirtækið í meirihlutaeigu Farm-Inn ehf., sem hafi flutt íþróttahópa á öllum aldri síðastliðin þrjú ár, og hafi keypt kæranda á síðasta ári sem hafi þá tekið yfir alla hópferðaakstursdeild þess. Með bréfi kærða til kæranda, dags. 16. maí 2006, var tilkynnt að sveitarstjórn kærða hefði samþykkt tillögu skólanefndar um að samið yrði við SBA-Norðurleið um skólaakstur við Hrafnagilsskóla.

II.

Kærandi byggir á því að ekki hafi verið staðið rétt að málum við hið kærða útboð og framkvæmd þess. Í fyrsta lagi sé ákvæði liðar 1.2.1 í útboðslýsingu óljóst að því er varði reynslu af akstri. Ekki komi fram hvort átt sé við að kennitala þess fyrirtækis sem geri tilboð skuli hafa yfir að ráða þeim tveggja ára reynslutíma sem áskilinn sé eða hvort átt sé við reynslu þeirra einstaklinga sem stjórni fyrirtækinu eða jafnvel aki bifreiðum. Megi því ætla að reynsla í akstri sé eðlilegt viðmið. Sé um að ræða bjóðanda sem reki bifreiðar á eigin kennitölu geti sú kennitala varla ráðið heldur reynsla og akstursferill. Svo virðist sem kennitala kæranda hafi ráðið, en fyrirtækið hafi verið stofnað með eigin kennitölu 28. maí 2004 og vanti því aðeins tæpan mánuð upp á tvö ár. Meiru skipti þó sú reynsla og bakgrunnur sem fyrirtækið hafi og glöggt komi fram í bréfi forsvarsmanns kæranda til sveitarstjórnar 8. maí 2006. Í öðru lagi megi ráða af fundargerð skólanefndar kærða 4. maí 2006, þar sem fram komi að ,,við fyrstu skoðun virðist tveir bjóðendur ekki standast kröfu um starfsreynslu“, að engin frekari skoðun hafi farið fram til að afla upplýsinga um þetta. Samt sem áður hafi í lið 1.1.11 í útboðslýsingu verið gert ráð fyrir að aflað yrði frekari upplýsinga. Af niðurstöðu kærða um úrvinnslu tilboða megi ráða að tilboð kæranda hafi strax verið ,,dæmt ógilt“ og hafi þar með verið brotið gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 sem gildi í þessu tilviki, sbr. meðal annars 5. mgr. 79. gr. laga nr. 94/2001. Hafi borið að kanna þetta betur og virðist raunar felast í fundargerð skólanefndar að aðeins hafi farið fram fyrsta skoðun og síðan ekki verið aðhafst meir. Í þriðja lagi hafi með ákvörðun kærða um að dæma tilboð kæranda ógilt verið brotið gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga. Sé gengið út frá því að markmið kærða um reynslu af viðlíka akstri sé lögmætt hafi átt að leita frekari upplýsinga og meðal annars taka tillit til þess að sá akstur sem boðinn var út hafi ekki átt að hefjast fyrr en nú í haust. Hefði verið eðlilegt að meta stöðu og reynslu kæranda út frá því. Að mati kæranda eigi eðlilegar kröfur um reynslu að byggjast á raunverulegri akstursreynslu þeirra sem á bifreiðunum starfi. Komi meðal annars fram í bréfi kæranda frá 8. mai 2006 að Farm-Inn ehf. eigi meirihluta í kæranda, en fyrirtækið hafi flutt íþróttahópa á öllum aldri síðastliðin þrjú ár. Sömu bifreiðastjórar starfi nú að mestu hjá kæranda, en kærandi hafi tekið yfir hópferðaakstursdeild Farm-Inn ehf. Sé þarna um að ræða sambærilega reynslu og eigi við um akstur nemenda í grunnskóla. Eigi kærði rétt á að taka hvaða tilboði eða tilboðum sem sé eða hafna öllum, enda komi slíkur fyrirvari skýrt fram í lið 1.2.4 í útboðslýsingu. Að baki slíkri ákvörðun þurfi þó að búa vönduð vinnubrögð og þurfi að gæta skýrleika í útboðslýsingu. Þá þurfi að ganga úr skugga um bakgrunn og hæfni bjóðenda af vandvirkni. Hafi skort á þetta við framkvæmd hins kærða útboðs. Loks er tekið fram að kærandi hafi boðið í skólaakstur í nálægum sveitarfélögum en svör ekki borist þaðan. Þar sem oft séu náin samskipti milli sveitarfélaga sé hætta á að niðurstaða kærða um tilboð kæranda kunni að skaða önnur tilboð hans. Hafi kærandi bæði haft kostnað og ama af þátttöku í hinu kærða útboði og eigi að minnsta kosti rétt á skaðabótum, enda hafi hann átt raunhæfa möguleika á að verða valinn í ljósi tilboðs síns í leið 4.

III.

            Kærði krefst þess að kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar verði hafnað þar sem undirritaður hafi verið samningur við SBA-Norðurleið á grundvelli hins kærða útboðs 24. maí 2006. Hafi samningurinn þegar tekið gildi og sé því ekki unnt að verða við kröfu kæranda.

IV.

Kærandi hefur í máli þessu krafist stöðvunar samningsgerðar, sbr. heimildir kærunefndar útboðsmála samkvæmt 80. gr. laga nr. 94/2001. Í 1. mgr. 54. gr. laganna kemur fram að tilboð skuli samþykkja skriflega innan gildistíma þess og er þá kominn á bindandi samningur á grundvelli útboðsgagna og tilboðs bjóðanda. Þó skal gera sérstakan samning um kaup á vöru, þjónustu eða verki á grundvelli útboðsins þegar við á eða annar aðili óskar þess. Í 1. mgr. 83. gr. laganna kemur fram að eftir að samningur hefur verið gerður verði hann ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt. Í 3. mgr. sömu greinar segir að um gildi samninga, sem stofnað er til samkvæmt lögunum, fari að öðru leyti eftir almennum reglum.

Í máli þessu liggur fyrir þjónustusamningur á milli kærða og SBA- Norðurleiðar vegna hins kærða útboðs. Samningurinn er dagsettur 24. maí 2006 og verður að líta svo á að á því tímamarki hafi verið kominn á bindandi samningur milli kærða og SBA-Norðurleiðar. Brestur kærunefnd útboðsmála því heimild til að verða við kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar á grundvelli hins kærða útboðs. Með vísan til framangreinds verður að hafna kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar.

 

Ákvörðunarorð:

Kröfu kæranda, Sportrútunnar ehf.., um stöðvun samningsgerðar vegna útboðs kærða, Eyjafjarðarsveitar, auðkennt sem ,,Skólaakstur fyrir Hrafnagilsskóla“, er hafnað.

 

                                                               Reykjavík, 20. júní 2006.

 

                                                                          

                                                                          

 

 

Rétt endurrit staðfestir,

Reykjavík, 20. júní 2006.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum