Hoppa yfir valmynd
28. október 2014 Innviðaráðuneytið

Áætluð framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á árinu 2015

Innanríkisráðherra hefur samþykkt eftirfarandi tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 24. október síðastliðinn um áætlaðar úthlutanir framlaga á árinu 2015. 

Útgjaldajöfnunarframlög

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga á árinu 2015, sbr.  13. gr. reglugerðar, nr. 960/2010, að fjárhæð 6.000 m.kr.  

Til úthlutunar nú koma  5.825 m.kr. Eftirstöðvar framlaganna að fjárhæð 175 m.kr. koma til úthlutunar í desember 2015 á grundvelli umsókna sveitarfélaga vegna íþyngjandi kostnaðar við skólaakstur úr dreifbýli á árinu.

Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í febrúar 2015 á grundvelli íbúafjölda 1. janúar 2015 og endanlegs álagningarstofns útsvars fyrir árið 2013.

Framlögin verða greidd til sveitarfélaga mánaðarlega, en 10 prósentum er þó haldið eftir af áætluðum framlögum til að mæta því ef ráðstöfunarfjármagn sjóðsins verður minna eða útgjöld meiri en áætlað var. Uppgjör framlaganna fer fram í desember 2015.

Almenn jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða heildarúthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla á árinu  2015, sbr.  3. gr. reglugerðar nr. 351/2002, að fjárhæð samtals 6.263,2  m.kr.  Þar af eru 66 m.kr. vegna áætlaðs uppgjörs framlaga ársins 2013.

Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í febrúar 2015 á grundvelli íbúafjölda 1. janúar 2015, endanlegs álagningarstofns útsvars vegna ársins 2013 og  endurskoðunar á áætluðum útsvarstekjum sveitarfélaga á árinu 2014.

Framlögin koma til greiðslu mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 0,77%  hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar.

Framlög vegna sérþarfa fatlaðra nemenda

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða úthlutun framlaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda á árinu 2015, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 351/2002, að fjárhæð 1.844 m.kr. Þar af nemur framlag til Reykjavíkurborgar vegna reksturs sérskóla og sérdeilda 1.069 m.kr. Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í ársbyrjun 2015.

Framlögin eru greidd mánaðarlega með jöfnum greiðslum.

Framlög vegna sérstakrar íslenskukennslu nýrra Íslendinga

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða úthlutun framlaga vegna sérstakrar íslenskukennslu nýrra Íslendinga á árinu 2015, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 351/2002, að fjárhæð 214 m.kr.  Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í ársbyrjun 2015.

Framlögin  eru greidd mánaðarlega með jöfnum greiðslum.

Framlög til eflingar tónlistarnámi og jöfnunar á aðstöðumun nemenda

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um endurskoðaða áætlun  um  heildarúthlutun framlaga til eflingar tónlistarnámi og jöfnunar á aðstöðumun nemenda skólaárið 2014-2015, sbr. 2. mgr. 1. gr. reglugerðar, nr. 23/2013, að fjárhæð 505 m.kr.  Framlögunum er ætlað að standa straum af  kennslukostnaði í tónlistarskólum vegna söngnáms á miðstigi og söng- og hljóðfæranáms á framhaldsstigi.

Ráðherra hefur jafnframt samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða úthlutun framlaga, sbr. 7. gr. reglugerðar, nr. 23/2013, vegna náms á grunnstigi í söng og grunn- og miðstigi í hljóðfæraleik að fjárhæð 2,3 m.kr.

Framlögin koma til greiðslu með jöfnum mánaðarlegum greiðslum mánuðina september 2014 til ágúst 2015. Uppgjör framlaganna fer fram við lok skólaársins.

Áætluð framlög vegna greiðslu sveitarfélaga á almennum og sérstökum húsaleigubótum

Sveitarfélögin áætla að heildargreiðslur þeirra á almennum húsaleigubótum nemi um 4.982  m.kr. á árinu 2015. Um er að ræða 9,0% hækkun á greiðslum bótanna milli ára sé tekið mið af áætlunum sveitarfélaga um greiðslur á árinu 2014.

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar á grundvelli 2. mgr. 1. gr. reglugerðar, nr. 150/2013, um að áætlað greiðsluhlutfall Jöfnunarsjóðs vegna greiðslu sveitarfélaga á almennum húsaleigubótum nemi 63,2% á árinu 2015. Tekið er  tillit til sérstaks viðbótarframlags á grundvelli frumvarps til fjárlaga 2015 að fjárhæð 1.000 m.kr. vegna aukinna húsaleigubóta. Verði um breytingu að ræða á ráðstöfunarfjármagni sjóðsins þegar fjárlög ársins 2015 liggja fyrir mun ný áætlun verða birt um úthlutun framlaganna.

Sveitarfélögin áætla að heildargreiðslur þeirra á sérstökum húsaleigubótum  nemi um 1.438 m.kr.á árinu 2015. Um er ð ræða áætlun um rúmlega 9,0% hækkun á greiðslum bótanna milli ára sé tekið mið af áætlunum sveitarfélaga um greiðslur á árinu 2014.

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um að áætlað greiðsluhlutfall Jöfnunarsjóðs vegna greiðslu sveitarfélaga á sérstökum húsaleigubótum nemi 60% á árinu 2015, sbr. samkomulag ríkis og sveitarfélaga um húsaleigubætur frá 1. apríl 2008.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum