Hoppa yfir valmynd
17. desember 2014 Innviðaráðuneytið

Framlag til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts 

Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun framlags til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts fyrir árið 2014, skv. reglugerð nr. 80/2001. Endurskoðunin tekur mið af auknu ráðstöfunarfjármagni  sjóðsins til greiðslu framlagsins.

Heildarúthlutun framlagsins í ár nemur um 3.621,0 m.kr. Nú þegar hafa 3.416,1 m.kr. komið til greiðslu. Eftirstöðvar framlagsins að fjárhæð um 204,9 m.kr. koma til greiðslu fimmtudaginn 18. desember nk.

Tekjujöfnunarframlög 2014

Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga fyrir árið 2014, skv. 12. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 960/2010. Við endurskoðunina var tekið mið af endanlegum útsvarsstofni sveitarfélaga  vegna tekna á árinu 2013.

Heildarúthlutun tekjujöfnunarframlaga í ár nemur  um 1.248,2 m.kr. Um 3/4 hlutar framlaganna að fjárhæð 853,3 m.kr.  komu til greiðslu í  október. Eftirstöðvar framlaganna að fjárhæð  um 394,9 m.kr. koma til greiðslu á fimmtudag, 18. desember nk.

Útgjaldajöfnunarframlög 2014

Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun útgjaldajöfnunarframlaga fyrir árið 2014, skv.13. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 960/2010. Við endurskoðunina var tekið mið af leiðréttum hámarkstekjum á íbúa í hverju sveitarfélagi.

Heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga í ár hefur hækkað um 712,4 m.kr frá áætlun ársins og nema framlögin samtals 6.762,4 m.kr. Þar af eru framlög vegna skólaaksturs úr dreifbýli á árinu samtals að fjárhæð 762,4 m.kr. Til greiðslu á árinu hafa komið samtals 4.846,9 m.kr. Eftirstöðvar framlaganna að fjárhæð 1.915,5 m.kr. koma til greiðslu á fimmtudag, 18. desember nk. Meðtalin í þeirri greiðslu eru viðbótarframlög vegna íþyngjandi kostnaðar við skólaakstur úr dreifbýli á árinu 2014 umfram tekjur að fjárhæð 187,4 m.kr.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum