Hoppa yfir valmynd
28. maí 2020 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins

Með vísan til samnings milli Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglugerðar nr. 494/2020 um úthlutina, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á landbúnaðarvörum, upprunnum í ríkjum Evrópusambandsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. júlí – 31. desember 2020:

Vöruliður:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

kg

%

kr./kg

0201/0202

Kjöt af dýrum af nautgripakyni, nýtt, kælt eða fryst

01.07. - 31.12.20

273.500

0

0

0203

Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst

01.07. - 31.12.20

350.000

0

0

0207

Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst

01.07. - 31.12.20

428.000

0

0

ex0207

Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu

01.07. - 31.12.20

100.000

0

0

0210

Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum

01.07. - 31.12.20

50.000

0

0

ex 0406

Ostur og ystingur (**)

01.07. - 31.12.20

92.500

0

0

0406

Ostur og ystingur

01.07. - 31.12.20

152.500

0

0

1601

Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum

01.07. - 31.12.20

125.000

0

0

1602

Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum

01.07. - 31.12.20

200.000

0

0

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla

Úthlutun er ekki framseljanleg. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði 10. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt reglugerð nr. 448/2012, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vörunnar. Við útboð tollkvótans verða hæstu verðtilboð í tiltekið magn valin þar til magni tollkvóta sem til ráðstöfunar er hefur verið náð. Verð tollkvótans ræðst af verði lægsta valda tilboðsins í hverjum vörulið.

Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, að Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, bréflega eða á [email protected], fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 4. júní 2020.

Reykjavík 28. maí 2020

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum