Hoppa yfir valmynd
19. september 2016 Utanríkisráðuneytið

Ráðherra fundar með Ban Ki-moon

Lilja Alfreðsdóttir og Ban Ki-moon. - mynd

Jafnréttismál, staða flóttamanna og umhverfismál voru meðal þess sem Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra og Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna ræddu á fundi sínum í höfuðstöðvum SÞ seinnipartinn í gær. Umræður á allsherjarþingi SÞ hefjast á morgun en það sækja margir helstu ráðamenn heims til að ræða brýnustu áskoranir alþjóðasamfélagsins, og því mikið um að vera í höfuðstöðvunum þessa vikuna.

Ban Ki-moon færði Íslendingum sérstakar þakkir fyrir að tala fyrir jafnréttismálum og leggja SÞ lið í því mikilvæga verkefni.

Lilja upplýsti hann um þingsályktunartillögur um fullgildingu Íslands á Parísarsamkomulaginu og samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks, sem hún lagði fyrir Alþingi fyrr í mánuðinum. Báðar tillögurnar verða teknar til síðari umræðu á Alþingi í dag.

Þá ræddu þau norðurslóðamál og loftslagsmál sem Ban Ki-moon hefur látið sig miklu varða. Þau verða meðal þess sem rætt verður á Hringborði Norðurslóða í byrjun október í Reykjavík en framkvæmdastjórinn er væntanlegur til Íslands, m.a. til að taka þátt í því.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum