Hoppa yfir valmynd
24. september 2007 Utanríkisráðuneytið

III. Ísland á alþjóðavettvangi - skiptum við máli?

Málþing í Háskólanum í Reykjavík, 24. október 2007

Yfirskrift fundarins féll vel að grundvallarhlutverki Háskólans í Reykjavík sem er að auka samkeppnishæfni og lífsgæði með áherslu á alþjóðlega færni á öllum sviðum. Grunnurinn að velgengni íslensks atvinnulífs er aukið sjálfstraust til að sækja fram á alþjóðavettvangi.


Fundarstjóri:
Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík


Skiptum við máli áður fyrr?
Guðni Th. Jóhannesson, sérfræðingur í lagadeild Háskólans í Reykjavík
Ísland hefur haft jákvæð áhrif á sviði alþjóðamála í fortíðinni. Án efa eru tækifærin mikil, en þó er nauðsynlegt að gengið sé fram af hógværð og að við sníðum okkur stakk eftir vexti.


Skiptum við máli í dag?
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra
Ljóst er að Ísland tekur í dag virkari þátt og meiri ábyrgð. Með setu og formennsku í lykilstofnunum, svæðisbundnum og alþjóðlegum, gefst tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á alþjóðavettvangi.


Skiptum við máli í framtíðinni?
Vera Knútsdóttir, háskólanemi og formaður ICEMUN, félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi
Áhugi og þekking ungs fólks á alþjóðamálum og alþjóðaviðskiptum hefur aldrei verið meiri. Þetta fólk lítur á heiminn allan sem sitt athafnasvæði. Það er ekki spurning hvort, heldur hvar og hvernig, áhrifa mun gæta.





Myndbandsupptaka

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum