Hoppa yfir valmynd
8. desember 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Desemberuppbót atvinnuleitenda 2021

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra, hefur undirritað reglugerð um greiðslu desemberuppbótar til atvinnuleitenda. Óskert desemberuppbót er 92.229 krónur. Atvinnuleitendur með börn á framfæri fá jafnframt sérstaka desemberuppbót fyrir hvert barn yngra en 18 ára.

Rétt á fullri desemberuppbót eiga þeir atvinnuleitendur sem hafa verið að fullu tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins, hafa verið skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2021 og hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember 2021. Greiðsla desemberuppbótar til þeirra sem eiga ekki fullan bótarétt reiknast í hlutfalli við rétt þeirra til atvinnuleysisbóta á árinu og fjölda mánaða sem viðkomandi hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Uppbótin verður þó aldrei lægri en sem nemur 23.057 krónum.

Uppbót vegna barns eða barna tekur engum skerðingum, heldur nemur í öllum tilvikum sex prósentum af óskertri desemberuppbót eða 5.532 krónum með hverju barni.

Desemberuppbót atvinnuleitenda verður greidd út eigi síðar en 15. desember næstkomandi.

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum