Hoppa yfir valmynd
18. febrúar 2019 Utanríkisráðuneytið

Stuðningur aukinn við flóttafólk frá Venesúela

Guðlaugur Þór hitti Oswaldo Perez og Maríu Carolinu Osorio frá Venesúela - myndUtanríkisráðuneytið
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur ákveðið að verja þrjátíu milljónum króna til aðstoðar við flóttafólk frá Venesúela með stuðningi við starfsemi Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Er það til viðbótar tuttugu milljóna króna framlagi sem var ráðstafað til hjálpar flóttafólki frá Venesúela í samstarfi við SOS-Barnaþorp í lok janúar.

Fyrr í dag ræddi Guðlaugur við Juan Guaidó, forseta þjóðþings Venesúela, þar sem hann greindi honum frá stuðningi ríkisstjórnar Íslands við hann sem forseta til bráðabirgða og framlagi Íslands til mannúðaraðstoðar. „Við ræddum almennt um stöðuna í Venesúela og mikilvægi þess að alþjóðasamfélagið beiti sér áfram fyrir frjálsum og friðsamlegum kosningum í Venesúela. Það var gott að geta greint frá fjárhagsstuðningi okkar við flóttafólk frá Venesúela, enda þörfin brýn,“ sagði Guðlaugur Þór. 

Þeir Guðlaugur Þór ræddu einnig áframhaldandi friðsæl mótmæli í Venesúela og aðgerðir stjórnar Nicolasar Maduro, sem meðal annars hefur komið í veg fyrir að mannúðaraðstoð berist þeim sem á þurfa að halda.

Áður hafði Guðlaugur Þór rætt við Oswaldo Perez og Maríu Carolinu Osorio frá Venesúela en þau eru búsett er hér á landi. Þau höfðu sína sögu að segja um hvernig ástandið hefur hríðversnað í Venesúela. Hitabeltissjúkdómar sem ekki hafa sést í landinu láta nú á sér kræla og vannæring og lyfjaskortur veldur aukinni tíðni dauðsfalla bæði meðal barna og fullorðinna. 

Eins og fram hefur komið lýsti Guðlaugur Þór yfir stuðningi íslenskra stjórnvalda við Juan Guaidó sem bráðabirgðaforseta Venesúela þann 4. febrúar síðastliðinn, um leið og hann skoraði á þarlend stjórnvöld að efna til frjálsra og lýðræðislegra kosninga í samræmi við vilja þjóðarinnar.
 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum