Hoppa yfir valmynd
11. maí 2001 Heilbrigðisráðuneytið

Framsöguræða heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Jóns Kristjánssonar
Flutt á Alþingi 11. maí 2001

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatrygginar og félagslega aðstoð



Talað orð gildir
Virðulegi forseti.

Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar nr. 117/1993, með síðari breytingum, og lögum um félagslega aðstoð nr. 118/1993, með síðari breytingum.

Eins og þingheimur veit snýst þetta frumvarp um að bæta kjör þeirrra sem minnstar tekjur hafa í samfélaginu. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar var ákveðið að endurskoða almannatryggingakerfið og lögð sérstök áhersla á að bæta kjör þeirra sem hafa lægstar tekjur. Til að undirbúa það var skipuð nefnd árið 1999, sem var fyrirskipað að hraða störfum sínum í janúar sl., - í tengslum við afgreiðslu laga til að bregðast við dómi Hæstaréttar í svokölluðu öryrkjamáli. Nefndin hefur nú skilað áliti og er frumvarp þetta flutt nú á vorþingi til þess að unnt verði að koma kjarabótum til þeirra verst stöddu í hópi aldraðra og öryrkja sem fyrst.

Efnisatriðum þeirra breytinga sem um er að ræða í frumvarpinu má skipta í eftirfarandi meginþætti:

1. Bæta kjör þeirra sem verst eru settir.
2. Jafna kjör hjóna og einhleypra lífeyrisþega.
3. Draga úr áhrifum atvinnutekna öryrkja á bætur þeirra og hvetja þá til atvinnuþátttöku.

Munur á bótarétti einstaklinga annars vegar og hjóna og sambýlisfólks hins vegar í núverandi kerfi er að mínu mati of mikill. Því hefur verið haldið fram að það hvetji til að búa einn og auki á einangrun. Bætur tveggja einstaklinga sem hafa viljað halda heimili saman lækka í núverandi kerfi svo mikið við slíka heimilisstofnun að sumir hverfa frá. Nú er þess freistað að koma í veg fyrir þessi áhrif.

Það hefur lengi verið baráttumál öryrkja að draga úr tengingu bóta við atvinnutekjur. Með þessum tillögum breytist skerðingarhlutfall bóta vegna atvinnutekna öryrkja að því er varðar tekjutryggingu og heimilisuppbót úr 45% í 27%. Með þessu eru bættir möguleikar öryrkja til þess að auka tekjur sínar með því að vinna.
Þetta er einnig hugsað til að draga úr einangrun öryrkja sem ekki hafa farið út á vinnumarkaðinn en geta eitthvað unnið.

Virðulegi forseti.

Einstök efnisatriði frumvarpsins eru sem hér segir:

Í 1. gr. frumvarpsins er 10. gr. laga um almannatryggingar breytt þannig að tekjur öryrkja af atvinnu eru metnar að 60 hundraðshlutum við úreikning á tekjutryggingu í stað 100% samkvæmt núgildandi lögum. Með þessari breytingu hækka bætur til öryrkja sem hafa tekjur af atvinnu mjög verulega. Þá er þeim öryrkjum sem geta unnið, ívilnað sérstaklega vegna aukinna tekna af atvinnu og er það í samræmi við áherslur samtaka öryrkja á undanförnum árum. Vert er að vekja sérstaklega athygli á því að hér er um grundvallar stefnubreytingu að ræða sem helgast auðvitað af því að öryrkjar eru á vinnualdri, eru að koma sér upp heimili og sjá fyrir börnum. Fólk á þessum aldri á almennt þess kost að auka tekjur sínar með aukinni vinnu og með þessum breytingum njóta öryrkjar betur þeirra möguleika sem felast í auknum tekjumöguleikum með aukinni vinnu, eftir getu og aðstæðum hvers og eins.

Í 2. gr. frumvarpsins er hluti af 3. mgr. 11. gr. laga um almannatryggingar felldur brott. Í málsgreininni er kveðið á um að grunnlífeyrir hjóna sem bæði eru lífeyrisþegar nemi 90% af grunnlífeyri einhleypings. Frumvarpið gerir ráð fyrir að grunnlífeyrir hjóna hækki úr 90% af grunnlífeyri í 100%.

Sá hluti 3. mgr. sem fjallaði um búsetuskilyrði er óbreyttur en hann er fluttur í 1. mgr. 11. gr. laganna.

Í 3. gr. frumvarpsins er tveimur nýjum málsgreinum, sem fjalla um tekjutryggingarauka, bætt við 17. gr. laga um almannatryggingar.
Tekjutryggingarauki er nýr bótaflokkur í almannatryggingum og kemur í stað sérstakrar heimilisuppbótar samkvæmt lögum um félagslega aðstoð. Í samræmi
við þessa breytingu eru ákvæði um sérstaka heimilisuppbót felld brott úr lögum um félagslega aðstoð. Þar að auki er ekki lengur gert ráð fyrir því að um heimildarbætur sé að ræða, það er að segja bætur sem byggjast á mati á aðstæðum viðkomandi einstaklings hverju sinni, heldur sé um að ræða skyldu til að greiða tekjutryggingarauka að uppfylltum lögbundnum skilyrðum.

Samkvæmt frumvarpinu eiga allir lífeyrisþegar, jafnt ellilífeyrisþegar sem örorkulífeyrisþegar, rétt á tekjutryggingarauka, óháð hjúskaparstöðu og heimilisaðstæðum öðrum. Þá er dregið verulega úr skerðingu tekjutryggingarauka vegna tekna frá því sem nú gildir um sérstaka heimilisuppbót. Þannig að einungis 67% tekna koma til skerðingar tekjutryggingarauka en allar tekjur, það er að segja 100% koma nú til skerðingar sérstakrar heimilisuppbótar.

Réttur til tekjutryggingarauka verður samkvæmt frumvarpinu óháður hjúskaparstöðu lífeyrisþegans eða því hvort hann heldur heimili með öðrum einstaklingi en séstök heimilisuppbót er nú eingöngu greidd einhleypingum sem eru einir um heimilisrekstur.

Síðast, en ekki síst, þá er lagt til að fjárhæð tekjutryggingarauka, sem áður var sérstök heimilisuppbót, verði hækkuð um tæplega 90% eða úr 7.409 kr. í 14.062 kr. og þeir aldraðir og öryrkjar sem halda heimili með öðrum, til dæmis maka sínum eða systkini, eiga rétt á 10.548 kr. í stað þess að samkvæmt núgildandi reglum eiga þeir engan rétt til þessa bótaflokks.

Frumvarpinu fylgja drög að tveimur reglugerðum. Fyrri reglugerðin hækkar lífeyri og tekjumörk hjá elli- og sjómannalífeyrisþegum. Einnig fellir hún brott sérstök tekjumörk hjá ellilífeyrisþegum vegna tekna úr lífeyrissjóðum og hækkar almenna frítekjumarkið sem því nemur. Síðari reglugerðin felur í sér hækkun á tekjumörkum frekari uppbótar samkvæmt lögum um félagslega aðstoð úr 105.347 kr. í 112.000 kr. til þess að hækkun bóta samkvæmt því frumvarpinu minnki ekki rétt til frekari uppbótar.

Frumvarpinu fylgir einnig sem fylgiskjal álit vinnuhóps um endurskoðun almannatrygginga og samspil þess við skattkerfið og lífeyrissjóði, en frumvarpinu er ætlað að koma þeim tillögum sem þar greinir, til framkvæmda.

Áætluð útgjöld vegna þessa frumvarps eru um 1.350 m. kr. á ári.

Virðulegi forseti.

Ég tel raunhæft, með góðri samvinnu við háttvirt Alþingi að koma þeim úrbótum sem frumvarpið kveður á um, til framkvæmda frá og með 1. júlí nk. Með því tel ég að háttvirt Alþingi geti haft nauðsynlegan tíma til að fjalla um efnisatriði málsins og Tryggingastofnun ríkisins hafi svigrúm til að geta greitt réttar geiðslur hinn 1. júlí nk. Þetta hefur í för með sér viðbótarútgjöld fyrir ríkissjóð að fjárhæð um 675 m.kr. á þessu ári.

Ég vil sérstaklega taka fram að nefndin sem undirbjó þessar tillögur hafði samráð við samtök aldraðra, öryrkja og verkalýðshreyfinguna áður en þær voru frágengnar. Auk þess kallaði ég fulltrúa aldraðra og öryrkja til sérstaks fundar til að fara yfir efnisatriði málsins áður en það var kynnt. Ég hef fullan skilning á að forystumenn þessara samtaka munu áfram vinna að kjarabótum fyrir skjólstæðinga sína.

Þó að talsmenn þessara hópa hafi tekið tillögunum fálega vona ég að við getum verið sammála um að hér er um jákvætt skref að ræða fyrir þá sem eru verst settir.

Ásakanir um hugmyndafræði fátækrahjálpar falla marklausar, það frumvarp sem hér er lagt fram er dæmi um að framfylgt er hugmyndafræði og stefnu sem byggir á frumkvæði og sjálfstæði en einnig samhjálp, dæmi um stöðugleika en líka markviss stefna til að auka félagslegan jöfnuð í samfélaginu.

Ríkisstjórnin er með frumvarpi þessu að framfylgja stefnu sinni, að flytja aðstoð ríkisins í meira mæli til þeirra sem mest þurfa á henni að halda, viðhalda og efla sjálfsbjargarviðleitni einstaklinganna án þess að búa til flókið skattheimtukerfi með enn flóknara endurgreiðslukerfi eins og sumir fræðimenn hafa talið að geti leyst öll vandamál.

Með þessu frumvarpi kemur ríkisstjórnin til móts við ýmis af þeim sjónarmiðum sem samtök öryrkja hafa haldið á lofti á undanförnum mánuðum og misserum.

Virðulegi forseti.

Á undanförnum árum hefur ríkt góðæri í íslensku samfélagi. Það hefur komið fram í kjörum almennings, yfirborgunum og launaskriði á ákveðnum sviðum atvinnulífsins og ákveðnum landsvæðum. Því má ekki gleyma að á þessum tíma hefur ríkið náð samkomulagi við starfsfólk sitt um að færa yfirvinnu og yfirborganir inn í taxtalaun.

Í lögum um almannatryggingar er hækkun bóta tengd fjárlagaafgreiðslu og bætur tengdar launaþróun á almennum markaði. Á síðustu 6 árum hafa bætur gert talsvert betur en fylgja umsömdum launum á almennum vinnumarkaði. Bótagreiðslur hafa gert betur en að fylgja launavísitölu hins almenna markaðar. Lágmarksgreiðslur almannatrygginga hafa gert gott betur en það og þá eru ekki meðtaldar hundruðir milljóna króna sem varið hefur verið til sértækra aðgerðar fyrir aldraða og öryrkja, meðal annars til að hækka frítekjumörk í þeim tilgangi að draga úr áhrifum tekna maka á örorkubætur.

Forystumenn aldraðra og öryrkja hafa að undanförnu haldið því fram að bæði innlendir og erlendir fræðimenn telji íslenska ráðamenn vera á rangri leið.
Stefán Ólafsson, prófessor, sem menn vitna stundum til hefur reynt að greina þann vanda sem við er að etja í almannatryggingakerfinu og snýr að öldruðum.

Hann bendir á að ójöfnuður í röðum ellilífeyrisþega sé meiri hér en annars staðar á Norðurlöndum og skýrir það með mismunandi atvinnutekjum, lífeyrisréttindum og eignatekjum, eins og ég hef vakið athygli á að komi fram í skýrslu endurskoðunarnefndarinnar.

Hann bendir líka á að óánægjan í röðum ellilífeyrisþega sé að mestu leyti sprottin af þessum mismun.

Stefán Ólafsson, prófessor, segir svo í úttekt sinni: "Þegar fjallað er um aðstæður og úrræði vegna lífskjara eldri borgara er því nauðsynlegt að taka tillit til þessa munar á aðstæðum og möguleikum sem er innan hóps eldri borgara hér á landi."

Það er nákvæmlega þetta sem ríkisstjórnin er að gera nú, það er nákvæmlega þetta sem fyrrum heilbrigðisráðherra, Ingibjörg Pálmadóttir, hafði í huga þegar hún lagði til í ríkisstjórn í vetur að endurskoðunarvinnunni yrði hraðað, og það er nákvæmlega þetta sem ríkisstjórnin hafði í huga, þegar mestur þunginn var lagður á að beina aðgerðunum að þeim sem verst eru settir.

Ég leyfi mér því virðulegi forseti að leggja til að frumvarpinu verði vísað til háttvirtrar heilbrigðis- og trygginganefndar og til annarrar umræðu.




Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum