Hoppa yfir valmynd
30. mars 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um þjónustusamninga við öldrunarheimili

 

Ríkisendurskoðun hefur birt skýrslu til Alþingis þar sem fylgt er eftir skýrslu stofnunarinnar frá árinu 2013 um gerð þjónustusamninga við öldrunarheimili. Stofnunin telur ekki þörf á að ítreka ábendingar frá árinu 2013 en leggur áherslu á að hraða beri samningsgerðinni.

Í frétt á vef Ríkisendurskoðunar sem birt er með eftirfylgniskýrslunni segir:

,,Einungis hafa verið gerðir þjónustusamningar við 7 af 74 öldrunarheimilum í landinu. Ríkisendurskoðun telur mikilvægt að hraða samningum við heimilin.

Árið 2013 benti Ríkisendurskoðun á að velferðarráðuneytið hefði einungis gert þjónustusamninga við 8 af 73 öldrunarheimilum í landinu. Stofnunin hvatti ráðuneytið til að bæta úr þessu og efla eftirlit sitt með þjónustu og rekstri heimilanna.

Í nýrri eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að samningagerð við öldrunarheimili og eftirlit með þjónustu þeirra og rekstri eru nú lögbundin verkefni Sjúkratrygginga Íslands. Samkvæmt upplýsingum frá þeirri stofnun liggja fyrir drög að rammasamningi við hjúkrunarheimili sem sinna öldrunarþjónustu. Áætlað er að búið verði að semja við heimilin á þeim grundvelli á þessu ári. Af þessum sökum telur Ríkisendurskoðun ekki rétt að ítreka ábendingar sínar frá árinu 2013. Stofnunin bendir þó á að samningagerðin hefur gengið hægt og að nú eru einungis í gildi þjónustusamningar við 7 af 74 öldrunarheimilum í landinu. Stofnunin telur mikilvægt að hraða þessari vinnu."

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum