Hoppa yfir valmynd
13. júlí 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 395/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 13. júlí 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 395/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23040094

 

Kæra [...] og barna hennar

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 25. apríl 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 17. apríl 2023, um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kæranda og barna hennar, [...], fd. [...] (hér eftir A) og [...], fd. [...] (hér eftir B), ríkisborgarar Nígeríu, um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.

Kærandi krefst þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsóknir kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar.

Fyrrgreindar ákvarðanir sættu sjálfkrafa kæru samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

II.        Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 29. október 2022. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum sama dag kom í ljós að fingraför hennar höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Ítalíu. Hinn 11. nóvember 2022 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hennar um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Í tilkynningu Útlendingastofnunar til yfirvalda á Ítalíu, dags. 23. febrúar 2023, kom fram að þar sem þarlend stjórnvöld hefðu ekki svarað viðtökubeiðni stofnunarinnar innan tilskilins frest samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni, liti stofnunin svo á að ítölsk yfirvöld hefðu samþykkt beiðnina, sbr. 2. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 8. desember 2022, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 17. apríl 2023 að taka umsókn kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 25. apríl 2023 og sætti sjálfkrafa kæru til kærunefndar sama dag. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 4. maí 2023.

III.      Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að ítölsk stjórnvöld beri ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Ítalíu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn hennar til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hún flutt til Ítalíu.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barnanna A og B kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í máli móður þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, lög um útlendinga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að hagsmunum þeirra væri ekki stefnt í hættu og þeim sé best borgið með því að fylgja móður sinni til Ítalíu.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Kærandi vísar til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar, viðtals síns hjá stofnuninni og annarra gagna málsins hvað málsatvik varðar. Kærandi greinir frá því að hún hafi komið til Íslands til þess að sækja um alþjóðlega vernd fyrir sig og tvö ófædd börn sín sem hafi fæðst hér á landi. Kærandi hafi dvalið á Ítalíu frá 2008 en umsókn hennar um alþjóðlega vernd á Ítalíu hafi verið synjað og hún hafi búið við bágar aðstæður þar í landi. Kærandi hafi fengið litla sem enga aðstoð frá yfirvöldum og ekki verið veitt húsnæði eða fjárhagsaðstoð. Þá hafi kærandi ekki getað unnið þar sem hún hafi ekki verið með atvinnuleyfi, en hún hafi unnið af og til við þrif. Kærandi hafi búið hjá vinkonu sinni sem hafi jafnframt borgað fyrir flugferð kæranda til Íslands. Ljóst sé að kærandi hafi búið við bág kjör á Ítalíu og hafi ekki fengið nauðsynlega aðstoð. Kærandi hafi ekki átt annan kost en að flýja í leit að öryggi og mannsæmandi lífi fyrir sig og börnin sín. Þá greinir kærandi frá því að hún sé í slæmu líkamlegu ástandi og þjáist af verkjum sem hafi versnað við þungun hennar. Auk þess glími kærandi við þunglyndi og kvíða.

Kærandi fjallar um aðstæður og réttindi flóttafólks á Ítalíu með vísan til alþjóðlegra skýrslna. Möguleikar umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu til þátttöku og aðlögunar að samfélaginu séu takmarkaðir, sérstaklega fyrir einstaklinga með sérþarfir. Þá hafi ítölsk yfirvöld hneppt marga umsækjendur um alþjóðlega vernd í varðhald í þeim tilgangi að hefta för þeirra og stýra flæði flóttamanna inn í landið. Kærandi vísar til þess að hún sé einstæð móðir nýfæddra tvíbura og að möguleikar þeirra til þess að öðlast eðlilegt líf sé takmarkað nema þau fái alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða á Íslandi og fái þannig notið réttinda og verndar hér á landi.

Kærandi byggir á því að hún sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi glími við líkamleg og geðræn vandamál og sé einstæð móðir með tvö nýfædd börn. Kærandi vísar til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga um að taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef sérstakar ástæður mæli með því. Með því sé átt við einstakling sem sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, s.s. vegna heilsufars, sbr. athugasemdir í greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum um útlendinga. Þá vísar kærandi til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum. Kærandi sé illa á sig komin líkamlega sökum verkja og glími við þunglyndi og kvíða. Þá hafi kærandi búið við óviðunandi aðstæður á Ítalíu og hafi ekki haft aðgang að grunnþjónustu. Kærandi hafi þurft að reiða sig á góðmennsku kunningja sinna sem hafi stundum leyft henni að sofa á sófanum hjá sér. Þá hafi aðstæður hennar versnað til muna eftir að kærasti hennar hafi yfirgefið hana þegar hann hafi komist að því að kærandi væri barnshafandi. Því verði ekki annað séð en að kærandi hafi átt erfitt uppdráttar á Ítalíu, staða hennar hafi verið síðri en staða almennings í landinu og leiða megi líkur að því, með hliðsjón af frásögn hennar og landaupplýsingum, að það hafi stafað af stöðu hennar sem umsækjandi um alþjóðlega vernd. Auk þess þurfi kærandi á sálfræðiaðstoð að halda og ekki sé tryggt að hún hafi aðgengi að þeirri þjónustu á Ítalíu.

Þá krefst kærandi þess að umsókn hennar verði tekin til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til 1. mgr. 33. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna og 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. laganna. Kærandi vísar til þess að aðstæður flóttamanna á Ítalíu séu slæmar, þar viðgangist fordómar og mismunun, t.a.m. á vinnumarkaði. Auk þess sé skortur á húsnæði og margir búi á götunni við slæmar aðstæður. Við slíkar aðstæður sé velferð kæranda stofnað í hættu. Þá sé kærandi ósammála mati Útlendingastofnunar í hinni kærðu ákvörðun um að aðstæður í málefnum flóttamanna á Ítalíu feli ekki í sér ómannúðlegar aðstæður sem brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Máli sínu til stuðnings vísar kærandi til niðurstöðu í dómi frá Hollandi þess efnis að ekki hafi verið heimilt að senda tvo flóttamenn til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærandi telji ljóst að aðstæður sem ríki í málefnum flóttamanna á Ítalíu nái því lágmarks alvarleikastigi að falla undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Kærandi vísar til 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar um að hverju aðildarríki sé heimilt að taka til meðferðar umsókn um alþjóðlega vernd þrátt fyrir að það beri ekki ábyrgð á slíkri umsókn samkvæmt þeim viðmiðum sem komi fram í III. kafla reglugerðarinnar. Kærandi vísar til þess að þrátt fyrir að samkvæmt lögum séu mannréttindi flóttamanna tryggð á Ítalíu virðist svo ekki vera í framkvæmd. Ekki sé nóg að umsækjendur um alþjóðlega vernd eigi rétt á grunnþjónustu samkvæmt ítölskum lögum heldur þurfi einnig að líta til þess hvort umsækjendur fái í raun þá nauðsynlegu aðstoð sem lög kveði á um. Kærandi telji fullt tilefni til þess, með hliðsjón af framangreindum landaupplýsingum og aðstæðum kæranda, að íslensk stjórnvöld nýti heimild sína til að taka umsókn kæranda og barna hennar til efnismeðferðar. Þá vísar kærandi til þess að ekkert svar hafi borist frá ítölskum stjórnvöldum um að þau samþykki að taka aftur við kæranda en Útlendingastofnun hafi túlkað það sem samþykki fyrir viðtöku kæranda. Aftur á móti hafi ítölsk yfirvöld gefið út yfirlýsingu til annarra aðildarríkja Dyflinnarreglugerðarinnar, dags. 5. nóvember 2022, þar sem fram komi að ítölsk yfirvöld séu tímabundið hætt að taka á móti flóttamönnum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar sökum álags á flóttamannakerfinu þar í landi. Því verði að telja að þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar sé ekki öruggt að ítölsk yfirvöld taki aftur við kæranda og börnum hennar. Því sé enn frekari ástæða til þess að íslensk stjórnvöld taki umsókn kæranda og barna hennar til efnismeðferðar með vísan til 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar.

Kærandi vísar til handbókar um réttarstöðu flóttamanna þar sem fram komi í greinum 203-205 að umsækjandi eigi að njóta vafans. Það sé oft ómögulegt fyrir umsækjanda að sanna öll atriði í máli sínu. Með þessu séu lagðar ríkar skyldur á íslensk stjórnvöld til að rannsaka mál og sjá til þess að mál séu nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærandi hafi bent á möguleg mannréttindabrot og slæmar aðstæður sem kærandi telji sig þurfa að búa við verði hún endursend til Ítalíu. Kærandi sé best til þess fallin að skýra frá því hvers vegna hún vilji ekki snúa aftur og sömuleiðis verði af vitnisburði hennar best séð hvort hún sé að segja sannleikann eður ei.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kæranda og barna hennar

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi kona á [...] sem er stödd hér á landi ásamt tveimur börnum sínum sem fæddust á fæðingardeild Landspítalans [...]. Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því að hún hafi komið til Ítalíu árið 2008 og lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd þar í landi. Hún hafi dvalið þar í landi þar til hún hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi í október 2022. Gögn málsins bera með sér að kærandi hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd á Ítalíu að nýju í september 2021 en samkvæmt frásögn kæranda sé umsókn hennar enn í vinnslu hjá ítölskum yfirvöldum. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún hafi ekki verið með atvinnuleyfi á Ítalíu og hafi því aðeins starfað 2-3 daga í senn við þrif og önnur tilfallandi störf. Kærandi hafi upphaflega leigt íbúð með vinkonu sinni en síðar kynnst barnsföður sínum sem hafi verið með atvinnu og séð þeim fyrir húsnæði og framfært þeim. Kærandi greindi frá því að barnsfaðir hennar hafi yfirgefið hana eftir að hún hafi tilkynnt honum að hún væri þunguð. Í kjölfarið hafi kærandi misst leiguhúsnæðið. Kærandi greindi frá því að hún hafi ekki haft aðgang að húsnæði eða fengið fjárhagsstuðning frá ítölskum yfirvöldum. Þá hafi kærandi ekki haft aðgang að heilbrigðisþjónustu og ekki leitað eftir henni. Hún hafi þó leitað á bráðamóttöku á Ítalíu og fengið aðhlynningu þar auk staðfestingar á því að hún væri barnshafandi. Auk þess hafi kærandi ekki fengið lögfræðiaðstoð. Kærandi greindi frá því að hún sé óttaslegin vegna aðstæðna sinna en hafi ekki upplifað fordóma á Ítalíu. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún væri verkjuð í líkamanum. Þá greindi kærandi frá því að hún glími við þunglyndi vegna aðstæðna sinna. Kærandi hefur ekki lagt fram heilsufarsgögn varðandi A og B.

Réttarstaða barna kæranda

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skuli það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins þ. á m. viðtal við kæranda hjá Útlendingastofnun. Gögn málsins bera ekki annað með sér en að A og B séu við góða heilsu og eigi í góðum tengslum við móður sína. Það er því mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum A og B sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða A og B verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Börnin A og B eru í fylgd móður sinnar og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b-, c- og d-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. Kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Ítalíu á umsókn kæranda er byggð á 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem ítölsk stjórnvöld hafi ekki svarað beiðni um endurviðtöku innan tilskilins frests. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja ítölsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í greinargerð vísar kærandi til beiðni ítalskra yfirvalda frá 5. desember 2022 þess efnis að ítölsk yfirvöld hafi beðið önnur aðildarríki um að stöðva endursendingar til ríkisins á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærandi vísar jafnframt til þess að dómstóll í Hollandi hafi ekki talið unnt að senda tvo einstaklinga til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærunefnd vísar til þess að fyrrgreind beiðni ítalskra yfirvalda frá desember 2022 um stöðvun á endursendingum til ríkisins hafi verið vegna tímabundins ástands. Líkt og fram kemur í neðangreindum heimildum eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á úthlutuðu plássi í gistirýmum í móttökumiðstöðvum en vegna fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi hafi þó ekki allir umsækjendur aðgengi að slíku rými. Með lagabreytingu árið 2023 var móttökukerfinu á Ítalíu, SAI (e. System of reception and integration), breytt með þeim hætti að það sé nú einungis ætlað handhöfum alþjóðlegrar vernda og umsækjendum um alþjóðlega vernd sem hafa verið skilgreindir sem einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Undir skilgreininguna sérstaklega viðkvæm staða falla m.a. einstæðir foreldrar með ung börn á sínu framfæri. Þá benda heimildir ekki til annars en að ítölsk stjórnvöld vinni að lausn á vandanum og muni standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar varðandi móttöku, þjónustu og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi. Kærunefnd vísar jafnframt til þess að við framkvæmd flutnings kæranda og barna hennar til Ítalíu þurfi íslensk stjórnvöld að eiga í samskiptum við ítölsk stjórnvöld, s.s. með hliðsjón af 29., 31. og 32. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Þá gerir kærandi athugasemd við að Útlendingastofnun hafi ekki tekið umsókn kæranda til efnismeðferðar á grundvelli undanþáguákvæði 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Framangreint ákvæði er undanþáguákvæði frá meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram komi í reglugerðinni. Kærunefnd hefur í neðangreindri umfjöllun lagt mat á einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og aðstæður í viðtökuríki um hvort taka beri umsókn kæranda til efnismeðferðar. Þá eru íslensk stjórnvöld jafnframt bundin af jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga við mat á því hvort umsókn skuli tekin til efnismeðferðar. Þar sem kærandi er með umsókn til meðferðar hjá ítölskum stjórnvöldum og gögn málsins bera m.a. með sér að hún hafi farið í viðtal og fengið tímabundið dvalarleyfi þar í landi, er það mat kærunefndar að ítölsk yfirvöld skuli beri ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd.

Aðstæður á Ítalíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum. Þá hefur kærunefnd jafnframt kynnt sér þær skýrslur sem kærandi vísar til í greinargerð sinni og litið til efnis þeirra við mat á aðstæðum í viðtökuríki.

  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Italy (United States Department of State, 20. mars 2023);
  • Amnesty International Report 2022/2023 – Italy (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2021 (European Asylum Support Office, 28. júní 2022);
  • Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, uppfært 31. maí 2023);
  • Asylum Information Database. Housing out of reach. The reception of refugees and asylum seekers in Europe (European Council on Refugees and Exiles, 31. maí 2019);
  • Concluding observations of the Committee on the Elimination of Racial Discrimination (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 17. febrúar 2017);
  • ECRI Report on Italy (European Commission against Racism and Intolerence, 7. júní 2016);
  • Freedom in the World 2023 – Italy (Freedom House, mars 2023);
  • Italy: A new system of reception and integration (European Web Site on Integration - Migrant Integration Information and good practices, 25. janúar 2021);
  • Italy: How has the reception system for asylum seekers and refugees changed (European Web Site on Integration - Migration Integration Information and good practices, 4. febrúar 2021);
  • The Journey of Hope: Education for Refugee and Unaccompanied Children in Italy (Education International Research, 31. maí 2017);
  • Mutual Trust is Still Not Enough. The situation of persons with special reception needs transferred to Italy under the Dublin III Regulation (Danish Refugee Council og Swiss Refugee Council, 12. desember 2018);
  • Parental responsibility – child custody and contact rights – Italy (European Judicial Network in civil and commercial matters, síðast uppfært 21. júlí 2022),
  • Reception conditions in Italy. Updated report on the situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees, in Italy (Swiss Refugee Council, janúar 2020);
  • Reception conditions in Italy. Updated report on the situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees, in Italy (Swiss Refugee Council, 21. janúar 2020);
  • Report of mission to Italy on racial discrimination, with a focus on incitement to racial hatred and discimination (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, 2019);
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, desember 2019);
  • The ELENA Index (Elena, European legal network on asylum og European Council on Refugees and Exiles, uppfært febrúar 2019);
  • UNHCR Guidelines L’identificazione delle vittime di tratta tra i richiedenti protezione internazionale e procedure di referral (UNCHR, janúar 2021)
  • Country profiles – Italy: Policies and progress towards investing in children: (European Commission, 11. júní 2021);
  • Upplýsingar af vefsíðu Amnesty International (www.amnesty.org);
  • Upplýsingar af vefsíðu ítalska flóttamannaráðsins (í. Consiglio Italiano per I Rifugiati – (http:www.cir-onlus.org/en/);
  • Upplýsingar af vefsíðu OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (www.hatecrime.osce.org/italy) og
  • World Report 2023 – Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023).

Ítalía er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Ítalía verið aðili að Evrópuráðinu frá 5. maí 1949 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu 16. október 1955. Ítalía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 12. janúar 1989 og fullgilti samninga Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978 og barnasáttmálann árið 1991. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 15. nóvember 1954.

Í skýrslu European Council on Refugee and Exciles (ECRE) kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd séu sendir til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geti þeir lagt fram umsókn hjá lögreglunni (í. Questura) eða hjá landamæralögreglunni (í. Polizia di Frontiera) hafi þeir ekki áður lagt fram umsókn þar í landi. Fái umsækjandi um alþjóðlega vernd synjun á umsókn sinni geti hann áfrýjað þeirri niðurstöðu. Þá eigi hann kost á því að bera synjunina undir dómstóla (í. Tribunale Civile). Jafnframt eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun samkvæmt 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða að um meðferð sé að ræða sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu. Þá kemur fram í skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins að umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem fengið hafi endanlega synjun á umsókn sinni hjá ítölskum yfirvöldum, eigi þess kost að leggja fram viðbótarumsókn á grundvelli nýrra gagna í máli þeirra hjá lögreglunni og njóti þá sömu almennu réttinda og aðrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.

Fyrir liggur að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Íslandi sem falla undir ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar eru sendir til baka til meginlandsins með flugi. Í framangreindum gögnum, s.s. skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins, kemur fram að á stærstu flugvöllum landsins, í Róm og Mílanó, séu frjáls félagasamtök til staðar sem veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd ráðgjöf og þjónustu. Umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu eigi almennt ekki rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð þegar þeir leggi fram umsókn um alþjóðlega vernd en frjáls félagasamtök veiti gjaldfrjálsa lögfræðiaðstoð í umsóknarferlinu.

Í skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd sem sendir séu til baka á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar eigi rétt á þjónustu og gistirýmum í tilteknum móttökumiðstöðvum. Ef engin pláss séu til staðar í slíkum móttökumiðstöðvum séu til staðar gistirými í móttökumiðstöðvum sem nefnist CAS (í. Centro di accoglienza straordinaria). CAS miðstöðvarnar hafi upphaflega einungis verið ætlaðar til tímabundinnar dvalar en vegna mikils fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu nýtur meirihluti umsækjenda um alþjóðlega vernd eingöngu þjónustu í CAS miðstöðvunum. Umræddar miðstöðvar hafa verið gagnrýndar fyrir afskekktar staðsetningar og fyrir að vera yfirfullar og skorta hreinlæti. Samkvæmt upplýsingum af vefsíðu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins tóku ný lög nr. 130/2020 gildi árið 2020 sem kveða á um breytingar á móttökumiðstöðvum og búsetuúrræðum fyrir flóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd. Samkvæmt ákvæðum laganna hefur móttöku- og húsnæðiskerfið SIPRIOMI, sem áður var einungis ætlað þeim sem hlotið hafa alþjóðlega vernd og fylgdarlausum börnum, verið endurskipulagt og fengið nýtt nafn, SAI (e. System of reception and integration). Búsetuúrræðinu var skipt í tvennt; annars vegar móttökumiðstöðvar og búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og hins vegar búsetuúrræði og þjónustu fyrir þá sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu. Samkvæmt lagabreytingum sem tóku gildi í maí 2023 verður móttökukerfinu SAI breytt í undirkerfi og er einungis ætlað handhöfum alþjóðlegrar verndar og umsækjendum um alþjóðlega vernd sem hafa verið skilgreindir sem einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu eða hafa komið til Ítalíu í gegnum löglegar leiðir.

Af framangreindum gögnum, s.s. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins, má sjá að ítölsk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Af skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins má ráða að í ítalska hæliskerfinu sé ekki skimað kerfisbundið eftir því hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd teljist vera viðkvæmir einstaklingar. Hins vegar geti greining á þolendum pyndinga eða alvarlegs ofbeldis átt sér stað á öllum stigum umsóknarferlisins um alþjóðlega vernd. Svokallaðar svæðisnefndir (í. Commissione territoriale per il riconoscimento della protezione internazionale) taki ákvörðun á fyrsta stigi málsmeðferðar og geti þær m.a. óskað eftir því að umsækjandi fari í sérstaka læknisskoðun þar sem fram fari mat á því hvaða áhrif ofsóknir og ofbeldi hafi haft á umsækjanda. Slíkt mat sé framkvæmt í samræmi við leiðbeiningarreglur sem gefnar hafa verið út af heilbrigðisráðuneytinu varðandi þjónustu handa flóttamönnum sem þjást af andlegum veikindum og/eða eru þolendur pyndinga, nauðgana eða annars konar andlegs, líkamlegs og kynferðislegs ofbeldis.

Á grundvelli framangreindra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér, s.s. skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins, verður ráðið að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu, bæði börn og fullorðnir, eigi sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Þeir þurfi þó að skrá sig inn í heilbrigðiskerfið en við slíka skráningu fái þeir útgefið tryggingarkort sem veiti þeim m.a. rétt á meðferð sérfræðilækna, s.s. val á barnalækni. Þá geri tryggingakortið umsækjendum kleift að verða sér út um tiltekið vottorð til þess að fá aðgang að leikskóla. Fyrir útgáfu tryggingarkortsins eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd þó rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Skortur á sérhæfingu í málefnum flóttamanna og tungumálakunnátta geri þó sumum umsækjendum um alþjóðlega vernd erfitt fyrir að sækja sér viðunandi heilbrigðisþjónustu, einkum einstaklingum í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Umsækjendur um alþjóðlega vernd fái aðgang að ítalska vinnumarkaðnum tveimur mánuðum eftir að þeir hafi lagt fram umsókn sína. Þó kemur fram í framangreindum gögnum að atvinnuleysi á Ítalíu hafi verið mikið á undanförnum árum og erfitt hafi reynst fyrir marga, jafnt ítalska ríkisborgara sem og umsækjendur um alþjóðlega vernd, að finna atvinnu.

Á heimasíðu ítalska menntamálaráðuneytisins kemur fram að foreldrar barna á aldrinum þriggja mánaða til tveggja ára geti sótt um aðgang að vöggustofum en aðgengi að þeim sé stjórnað af hverju sveitarfélagi fyrir sig. Börn á aldrinum þriggja til sex ára hafi aðgang að leikskólum sem séu hluti af samfelldri menntastefnu landsins og opinberir leikskólar séu gjaldfrjálsir. Í skýrslu ECRE og skýrslu samtakanna Education International Research kemur m.a. fram að ítölsk lög kveði á um skólaskyldu til 16 ára aldurs. Öll börn sem dvelja á ítölsku yfirráðasvæði eigi því rétt á skyldubundinni menntun frá sex til 16 ára aldurs, til jafns við ítalska ríkisborgara, án tillits til réttarstöðu þeirra á Ítalíu og án endurgjalds. Þá eigi erlend börn rétt á sérstakri aðstoð hafi þau sérþarfir og jafnframt bjóði sumir skólar upp á sérstakt undirbúningsnámskeið til að aðstoða erlenda nemendur við að aðlagast skólanum. Þegar erlend börn leggi fram umsókn um skólavist þá sé krafist sömu upplýsinga um barnið og hjá ítölskum börnum en skortur á framlagningu gagna komi ekki í veg fyrir að barn sé skráð í skólann.

Af fyrrnefndum skýrslum, s.s. skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins og samtakanna Human Rights Watch, verður jafnframt ráðið að fordómar í garð fólks af erlendum uppruna séu vandamál á Ítalíu. Í skýrslu Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna, sem gefin var út í kjölfar sendifarar til Ítalíu sem farið var í árið 2019 til þess að meta aukna mismunun á grundvelli kynþáttar, kemur fram að í ítalskri löggjöf sé kveðið á um vernd gegn mismunun á grundvelli kynþáttar. Þá sé í stjórnarskrá landsins kveðið á um vernd ákveðinna hópa, þ. á m. útlendinga. Ítölsk yfirvöld hafi tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum. Á Ítalíu sé starfrækt stofnun (í. Ufficio Nazionale Antidiscriminazioni Razziali (UNAR)) sem hafi það hlutverk að berjast gegn hvers kyns mismunun. Einstaklingar sem telji sig hafa orðið fyrir mismunun þ. á m. vegna kynþáttar eða kynhneigðar og þurfa á aðstoð eða ráðgjöf að halda geti leitað til stofnunarinnar og tilkynnt hvers kyns mismunun í gegnum vefsíðu hennar. Þá reki lögreglan stofnun sem hafi það hlutverk að bæta forvarnir og aðgerðir lögreglu við hatursglæpum (í. Osservatorio per la Sicurezza Contro gli Atti Discriminatori (OSCAD)) sem vinni náið með UNAR. Stofnuninni sé m.a. ætlað að auka þjálfun lögreglufólks og stuðla að því að hatursglæpir séu tilkynntir og skráðir. Stofnunin sé með netfang þar sem unnt sé að tilkynna mismunun á grundvelli m.a. kynþáttar, ríkisfangs og trúar. Þær tilkynningar sem teljist geta falið í sér glæpsamlegt athæfi séu áframsendar lögreglu til rannsóknar en aðrar séu áframsendar til UNAR. Þá standi dómstólar landsins styrkum fótum sem hafi stuðlað að virkri framkvæmd hluta löggjafar um vernd gegn mismunun á grundvelli kynþáttar. Framangreindar skýrslur bera enn fremur með sér að almenningur á Ítalíu geti leitað sér aðstoðar ítalskra löggæsluyfirvalda vegna ofbeldisbrota og hótana. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kveður stjórnarskrá Ítalíu á um að dómsvald skuli vera sjálfstætt. Þá er einnig kveðið á um rétt til réttlátrar og opinberrar málsmeðferðar. Sakborningar séu álitnir saklausir uns sekt er sönnuð og eigi þeir rétt á að vera viðstaddir réttarhöld í máli sínu og njóta aðstoðar lögmanns. Þá geti þeir krafist réttarúrræða fyrir innlendum dómstólum vegna mannréttindabrota og farið með mál fyrir Mannréttindadómstól Evrópu vegna mannréttindabrota stjórnvalda hafi þeir nýtt sér þau réttarúrræði sem þeim standi til boða innanlands.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með „aðild Íslands að Dyflinnarsamstarfinu hefur ríkið skuldbundið sig til að fylgja og virða þær reglur sem felast í Dyflinnarreglugerðinni“ og að „íslensk stjórnvöld sem starfa að útlendingamálum [beiti] ákvæðum reglugerðarinnar við mat á því hvaða ríki beri ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd sem lagðar eru fram hér á landi.“ Ákvæði 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. byggir á heimild í 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og felur í sér frávik frá þeirri meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram koma í reglugerðinni.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, eins og efnahagslegar ástæður, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Kærandi er einstæð kona sem er stödd hér á landi ásamt tveimur börnum sem hún eignaðist hér á landi [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún væri verkjuð í öllum líkamanum og hafi verið undanfarin fjögur ár. Einkennin hafi versnað við þungun hennar en hún hafi ekki fengið greiningu eða meðhöndlun við einkennum sínum. Kærandi hafi farið í blóðprufu hér á landi sem hafi komið eðlilega út. Þá greindi kærandi frá því að hún glími við þunglyndi vegna aðstæðna sinna. Kærandi hafi orðið fyrir ofbeldi á leið sinni til Ítalíu. Við meðferð málsins hefur kærandi lagt fram meðgönguskrá frá Heilsugæslunni Firði og gögn vegna þungunar frá Ítalíu. Í máli kæranda liggur jafnframt fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 16. nóvember 2022, þar sem kemur fram að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnarlaga. Þá hefur kærandi hvorki lagt fram gögn varðandi fæðingu barnanna né heilsufarsgögn vegna þeirra.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 8. desember 2022, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt og barna hennar, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hennar hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 26. apríl 2023, um framlagningu frekari gagna. Engin frekari gögn hafa borist. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda, A og B og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður þeirra. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar þeirra geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda, A eða B sé með þeim hætti að þau teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður á Ítalíu verður ráðið að kærandi geti fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu þar í landi, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda, A eða B tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda, A eða B geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verið fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Við meðferð málsins hefur kærandi lagt fram afrit af ítölsku sjúkratryggingakorti með gildistíma til 8. febrúar 2023. Þá lagði kærandi fram bréf frá ítölskum yfirvöldum vegna útgáfu sjúkratryggingakortsins þar sem m.a. kemur fram að unnt sé að endurnýja kortið. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að heilbrigðisstarfsfólk hafi tjáð henni að hún ætti rétt á mæðravernd þar í landi. Þá hefur kærandi greint frá því hún hafi notið bráðaheilbrigðisþjónustu á Ítalíu en að öðru leyti hafi hún ekki leitað sér heilbrigðisþjónustu þar í landi. Kærunefnd áréttar að samkvæmt 31. og 32. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar skuli miðla upplýsingum um heilsufar umsækjenda um alþjóðlega vernd til yfirvalda í viðtökuríki, að uppfylltum skilyrðum ákvæðanna, þannig að flutningur viðkomandi fari fram með þeim hætti að heilsufari þeirra verði ekki stefnt í hættu.

Kærandi hefur ekki greint frá því að hún hafi mátt þola fordóma á Ítalíu. Framangreindar heimildir bera með sér að fordómar viðgangist á Ítalíu en að löggæslan sé virk og kærandi geti leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra yfirvalda óttist hún um öryggi sitt eða telji sér ógnað. Af framangreindum gögnum verður jafnframt ráðið að ítölsk yfirvöld hafi tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum. Lögreglan á Ítalíu reki m.a. stofnun sem hafi það hlutverk að bæta forvarnir og aðgerðir lögreglu við hatursglæpum (í. Osservatorio per la Sicurezza Contro gli Atti Discriminatori). Stofnunin sé með netfang þar sem unnt sé að tilkynna mismunun á grundvelli m.a. kynþáttar, ríkisfangs og trúar.

Kærandi hefur borið fyrir sig að hún hafi ekki fengið húsnæðis- eða fjárhagsaðstoð á Ítalíu. Kærandi greindi frá því að hafa haft fyrir sér með þrifum og öðrum tilfallandi störfum auk þess sem hún hafi leigt herbergi með vinkonu þar í landi. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður á Ítalíu kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd sem sendir séu til baka á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar eigi rétt á þjónustu og gistirýmum í tilteknum móttökumiðstöðvum. Það er jafnframt mat kærunefndar með hliðsjón af þeim heimildum sem nefndin hefur kynnt sér að þær aðstæður sem hafi verið til staðar í móttökukerfinu á Ítalíu undanfarið séu tímabundnar. Þá bendi umræddar heimildir ekki til annars en að ítölsk stjórnvöld vinni að lausn á vandanum og muni standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar varðandi móttöku, þjónustu og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi.

Kærunefnd telur að gögn málsins, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, beri ekki með sér að kærandi eða börn hennar muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að þau geti af sömu ástæðu vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður hennar í viðtökuríki séu slíkar að viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hennar til efnismeðferðar hér á landi.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma jafnframt fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast. Sem fyrr segir eru fjölskyldur sem leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd á Ítalíu almennt vistaðar saman. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að leyst sé úr umsóknum þeirra m.t.t. meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar.

Samkvæmt framangreindum heimildum kveða ítölsk lög á um að öll börn á ítölsku yfirráðasvæði eigi rétt á skyldubundinni menntun frá sex til sextán ára aldurs, til jafns við ítalska ríkisborgara, án tillits til réttarstöðu þeirra á Ítalíu og án endurgjalds. Þá hafi börn á aldrinum þriggja til sex ára aðgang að leikskólum sem séu hluti af samfelldri menntastefnu landsins og opinberir leikskólar séu gjaldfrjálsir. Líkt og komið hefur fram þurfa umsækjendur um alþjóðlega vernd að skrá sig inn í heilbrigðiskerfið og njóta þá sömu réttinda til heilbrigðisþjónustu og ítalskir ríkisborgarar. Samkvæmt skýrslu ECRE veitir skráning m.a. aðgang að barnalæknum, ljósmæðrum og kvensjúkdómalæknum. Þá eiga börn á Ítalíu rétt á heilbrigðisþjónustu, þ. á m. bólusetningum og er almenn læknisþjónusta tryggð fyrir börn til 16 ára aldurs.

Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í máli kæranda og umfjöllunar um aðstæður barna sem sækja um alþjóðlega vernd á Ítalíu er það mat kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til Ítalíu samrýmist hagsmunum barnsins þegar litið er m.a. til öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja beiðni um að taka til efnismeðferðar umsóknir barna kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi, og fallist á að senda þau til Ítalíu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum barna kæranda að umsóknir þeirra verði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hennar verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 8. desember 2022 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málanna sem bendir til þess að hún hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að þau sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en þau lögðu fram umsóknir sínar 29. október 2022.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið að til að stuðla að einsleitinni framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar á meðal aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins sé rétt að líta til dóma Evrópudómstólsins í málum sem tengjast framkvæmd reglugerðarinnar.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm í máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tiltekni lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 251. mgr., og dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012, 97. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallin að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Dómstóllinn hefur talið að 3. gr. mannréttindasáttmálans verði ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 249. mgr.

Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er vísað til þess að framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar verði að vera í samræmi við sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og er þar fyrst og fremst vísað til 4. gr. sáttmálans sem, í þeim atriðum sem máli skipta, er sambærileg 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., og Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr. Dyflinnarreglugerðin er byggð á nefndri meginreglu um gagnkvæmt traust og miðar að því að hraða og straumlínulaga afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd til hagsbóta fyrir umsækjendur og aðildarríki samstarfsins. Því verði að gera ráð fyrir því að meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins samrýmist þeim kröfum sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, flóttamannasáttmálinn og Mannréttindasáttmáli Evrópu gera, sbr. dóm Evrópudómstólsins í N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 78.-80. mgr. Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika við framkvæmd reglugerðarinnar sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. áðurnefndan dóm í máli N. S. o.fl., 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, verði hann fluttur til viðtökuríkis. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmálans um grundvallarréttindi. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda aðildarríkis Dyflinnarsamstarfsins hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Hátt stig óöryggis eða veruleg hnignun lífsskilyrða viðkomandi umsækjanda myndi þar af leiðandi ekki ná þessu alvarleikastigi nema ofangreindar aðstæður efnislegrar sárafátæktar séu fyrir hendi. Sama á við þó að umsækjanda skorti það félagslega stuðningsnet, eins og t.d. fjölskyldutengsl, sem vegur á móti afleiðingum ófullnægjandi félagslegs kerfis aðildarríkis, sbr. Jawo, 93. og 94. mgr. Ennfremur, það eitt að lífsskilyrði séu ákjósanlegri í endursendingarríki en í viðtökuríki getur heldur ekki leitt til þess að um brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé að ræða, sbr. til hliðsjónar Jawo, 97. mgr.

Eins og ráða má af ofangreindu þurfa annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans að ná mjög háu alvarleikastigi til að endursending teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og tekur beiting 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga mið af því.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins jafnframt með sér að í viðtökuríki sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Í því sambandi hefur kærunefnd einkum litið til þess að gögnin benda til þess að meðferð stjórnvalda viðtökuríkis á umsóknum um alþjóðlega vernd sé með þeim hætti að lagt sé einstaklingsbundið mat á aðstæður einstaklinga. Telur kærunefnd að gögn málsins gefi ekki til kynna að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins.

Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði á Ítalíu, bæði að landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hún verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Að mati kærunefndar eru einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barna hennar ekki slíkar að vegna stöðu þeirra sem umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu verði endursending þeirra þangað talin ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð. Þá er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður sem mæli gegn endursendingu kæranda og barna hennar til Ítalíu.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsókna kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur þeirra til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við ákvarðanir Útlendingastofnunar og reglur stjórnsýsluréttar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir við ákvarðanir Útlendingastofnunar, þ. á m. við rannsókn stofnunarinnar á einstaklingsbundnum aðstæðum hennar og mati stofnunarinnar á aðbúnaði umsækjenda um alþjóðlega vernd í viðtökuríki.

Vegna umfjöllunar kæranda um mat Útlendingastofnunar á sérstaklega viðkvæmri stöðu hennar, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, sbr. 25. gr. sömu laga, vill kærunefnd árétta að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið og á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Í 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur m.a. fram að við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun tryggja, eins fljótt og kostur er, að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Sé hann í slíkri stöðu skal stofnunin meta hvort hann hafi einhverjar sérþarfir, t.d. þörf á tiltekinni heilbrigðisþjónustu. Þá er tekið fram í 2. mgr. sama ákvæðis að ákvæði IV., V. og VII. kafla stjórnsýslulaga um andmælarétt, um birtingu ákvörðunar, rökstuðning o.fl. og um stjórnsýslukæru og viðeigandi ákvæði I. og IX. kafla laga um útlendinga gilda ekki um ákvörðun um sérstaklega viðkvæma stöðu samkvæmt 1. mgr. Skilgreining á stöðu samkvæmt 1. mgr. hefur ekki önnur réttaráhrif en þau sem sérstaklega er getið í lögum eða reglugerð. Kærunefnd telur því ljóst að mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem fram fer hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum eða reglugerð. Kærunefnd leggur þannig áherslu á að ákvörðun um hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu er annað en mat á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda þó svo að þessi hugtök skarist nokkuð. Að því er varðar mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda tekur kærunefnd fram að kæranda var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, en í viðtali var henni leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hún teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hennar hjá Útlendingastofnun. Við meðferð málsins hjá kærunefnd hefur kæranda auk þess verið leiðbeint um framlagningu frekari heilsufarsgagna í málinu. Við meðferð málsins hefur kærandi grein frá líkamlegum verkjum og að hún glími við þunglyndi. Líkt og fram hefur komið benda heimildir til þess að kærandi og börn hennar eigi sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu á Ítalíu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Þegar litið er til þeirra viðmiða sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga setur fram er ljóst að þau gögn sem liggja fyrir í málinu benda ekki til þess að frekari gagnaöflun geti haft áhrif á niðurstöðu málsins. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á þeim einstaklingsbundnu aðstæðum kæranda og barna hennar sem horfa beri til við mat á því hvort rétt sé að taka umsóknir kæranda og barna hennar til efnismeðferðar hér á landi.

Kærunefnd telur að Útlendingastofnun hafi litið til og lagt til grundvallar ákvæði sem kærandi vísar til og varða réttindi barna, m.a. 2. mgr. 10. gr. og 2. mgr. 25. gr. laga um útlendinga auk ákvæða barnaverndarlaga og samnings sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Þá telur kærunefnd að Útlendingastofnun hafi uppfyllt rannsóknarskyldu sína við meðferð máls kæranda og barna hennar og ekki gerst brotleg við 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir að öðru leyti og telur ekki tilefni til að gera athugasemdir við þær.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands 29. október 2022 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hún  því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hún verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hennar hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal flutt til Ítalíu innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Ljóst er að ítölsk stjórnvöld bera ábyrgð á afgreiðslu umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda hana til Ítalíu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru því staðfestar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðun með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

 

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                            Sandra Hlíf Ocares

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum