Hoppa yfir valmynd
2. september 2021 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu bárust 159 gild tilboð um kaup og sölu á tilboðsmarkaði fyrir greiðslumark mjólkur þann 1. september 2021. Þetta er annar markaður ársins og viðskiptin taka gildi frá 1. janúar sl., þ.e. kaupandi getur nýtt greiðslumarkið á yfirstandandi framleiðsluári.

Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum AFURÐ sem er greiðslukerfi landbúnaðarins og liggur niðurstaða markaðarins nú fyrir.

Hámarksverð greiðslumarks er þrefalt afurðastöðvaverð, sbr. ákvæði reglugerðar nr. 1252/2019 um stuðning við nautgriparækt, sem við lok tilboðsfrests var 305 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverð sem er jafnt hámarksverði, þ.e. 305 kr./ltr.

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 4.
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 155.
  • Tilboð undir jafnvægisverði/hámarksverði voru 12.
  • Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 109.000 lítrar
  • Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru 7.600.000 lítrar
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 109.000 lítrar að andvirði 33.245.000,- kr.
  • Sérstök úthlutun til nýliða er 5% af sölutilboðum eða 5.440 lítrar.   Fjöldi gildra kauptilboða frá nýliðum voru 16.

Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í AFURÐ.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum