Hoppa yfir valmynd
24. ágúst 2010 Heilbrigðisráðuneytið

Taka þarf á brotum gegn banni við áfengisauglýsingum

Taka þarf harðar á brotum gegn banni við áfengisauglýsingum á Íslandi. Þetta kom m.a fram í setningarávarpi heilbrigðisráðherra á norrænni ráðstefnu um áfengis- og fíkniefnarannsóknir, sem sett var í Reykjavík í gær.

Norræna velferðarstofnunin (NVC) og rannsóknarnetið MISCHMASCH standa fyrir ráðstefnunni, en NordForsk styður hana. Ráðstefna sem þessi er haldin á tveggja ára fresti, en þemað í ár er neysluvenjur og lífsstíll.

Í ávarpi sem Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra flutti við setningu ráðstefnunnar benti hún meðal annars á að áfengisneysla á hvern íbúa, 15 ára og eldri, hefði næstum tvöfaldast á Íslandi frá 1980 til 2007, en það ár neytti hver landsmaður að meðaltali 7,5 lítra af hreinu áfengi. Í heilbrigðisáætlun til ársins 2010 hefði það verið eitt af helstu markmiðunum að minnka neysluna í fimm lítra á hvern landsmann. Þótt þetta markmið hefði ekki náð fram að ganga hefði sá árangur náðst að undanfarin ár hefði dregið úr áfengisneyslu ungmenna.

„Í stuttu máli verður það jafnframt eitt af meginmarkmiðum nýrrar heilbrigðisáætlunar til ársins 2020 að koma í veg fyrir misnotkun áfengis- og fíkniefna. Það er skoðun mín að við þurfum að finna aðrar leiðir og grípa til árangursríkari aðgerða til þess að ná markmiðum okkar. Við þurfum til dæmis að taka harðar á brotum gegn banni& við áfengisauglýsingum. Þetta bann er ekki virt eins og þið getið víða séð þegar þið litist um í Reykjavík eða fylgist með sjónvarpi eða dagblöðum,“ sagði ráðherra við setninguna.

Ráðstefnan er haldin á Grand Hótel en henni lýkur á morgun.

Um ráðstefnuna

Ávarp heilbrigðisráðherra við setningu ráðstefnunnar

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum