Hoppa yfir valmynd
31. ágúst 2010 Heilbrigðisráðuneytið

Hert löggjöf gegn áfengisauglýsingum

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu heilbrigðisráðherra og dómsmála- og mannréttindaráðherra um að áfengislögum verði breytt þannig að bann við áfengisauglýsingum verði  virt.

Samkvæmt 20. grein núgildandi áfengislaga eru hvers konar auglýsingar á áfengi bannaðar, en mikill misbrestur er á að farið sé eftir banninu. Áfengisauglýsingar blasa alls staðar við og má t.d. nefna hversu áberandi þær voru í tengslum við HM í knattspyrnu á RÚV.

Breyta á núgildandi lögum þannig að komið verði í veg fyrir að áfengisframleiðendur auglýsi drykki undir þeim formerkjum að verið sé að auglýsa óáfenga drykki þó í raun sé verið að höfða til áfengra drykkja. Þá ber í síauknum mæli á því að áfengisframleiðendur kosti viðburði eða dagskrárliði í fjölmiðlum í auglýsingaskyni.  Því er talið nauðsynlegt að bann við áfengisauglýsingum nái jafnframt til kostunar.

Dómsmála- og mannréttindaráðherra mun á næstunni ljúka undirbúningi málsins, þ.á.m kalla eftir athugasemdum hagsmunaaðila. Frumvarp verður lagt fyrir haustþing.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum