Hoppa yfir valmynd
21. desember 2020 Utanríkisráðuneytið

Malaví „land ársins“ hjá The Economist

Frá mótmælum í Malaví eftir kosningarnar 2019. Ljósmynd: RF - mynd

Tímaritið The Economist hefur útnefnd Malaví land ársins. Viðurkenninguna fær Malaví fyrir að „endurvekja lýðræðið í landi sem þekkt er fyrir einræðistilburði.“ Stjórnlagadómstóll landsins ógilti fyrr á þessu ári niðurstöðu forsetakosninga árið 2019 vegna kosningasvindls og nýr forseti var kjörinn í kosningum sem haldnar voru í júní.

Að mati The Economist er ákvörðun dómstólsins um ógildingu forsetakosninganna og friðsamleg valdaskipti í framhaldinu „fullkomið dæmi um það hvernig stjórnvöld eiga að fara með lýðræðið,“ eins og segir í tímaritinu.

Kosningarnar árið 2019 hafa verið kallaðar „tipp-ex“ kosningarnar en eins og fram kemur í grein The Economist hafði verið átt við fjöldann allan af atkvæðaseðlum með því að afmá merki á seðlinum með „tipp-ex“ leiðréttingarvökvanum. Þar segir ennfremur að erlendir fulltrúar í kosningaeftirliti hafi samþykkt kosningarnar með semingi. Íbúar Malaví hafi hins vegar hafið fjöldamótmæli og dómarar hafi afþakkað „ferðatöskur af mútugreiðslum“ og ógilt kosningarnar.

Í kosningunum síðastliðið sumar fór Lazarus Chakwera með sigur af hólmi og felldi sitjandi forseta, Peter Mutharika.

Í október hlutu dómarar við stjórnlagadómstólinn í Malaví sérstaka viðurkenningu bresku hugveitunnar Chatham House fyrir „hugrekki og sjálfstæði í þágu lýðræðis,“ eins og sagði í umsögn um verðlaunahafa ársins.

Malaví er eins og flestir vita elsta samstarfsríki Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu en íslensk stjórnvöld hafa allar götur frá 1989 starfað í landinu að margvíslegum verkefnum, lengst af í Mangochi héraði.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum