Hoppa yfir valmynd
11. október 2010 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra hvetur kínversk stjórnvöld til að sleppa Liu Xiaobo

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hvetur kínversk stjórnvöld til að sleppa Liu Xiaobo, handhafa friðarverðlauna Nóbels í ár, úr haldi. Segir ráðherra engan eiga að sitja í fangelsi fyrir skoðanir sínar. 

Utanríkisráðherra segir að Nóbelsverðlaunanefndin norska hafi tekið ákvörðun sína að vel ígrunduðu máli.  Liu Xiaobo sé verðugur handhafi Nóbelsverðlauna og að þau séu mikilvæg viðurkenning á framlagi hans og baráttu fyrir mannréttindamálum í Kína.

Ráðherra leggur áherslu á að íslensk stjörnvöld eigi hreinskiptin samskipti við Kína eins og önnur ríki. Íslenskir stjórnmálamenn hafi margoft tekið upp mál sem tengist mannréttindum í samtölum sínum við kínverska ráðamenn.  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum