Hoppa yfir valmynd
14. október 2010 Utanríkisráðuneytið

Samkomulag við Kanada um samstarf í varnarmálum

O.S.-14OKT-2010

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Peter G. MacKay varnarmálaráðherra Kanada undirrituðu í dag samkomulag um samstarf í varnarmálum. Samkomulagið leggur grunn að frekari samvinnu í varnarmálum milli landanna og nær meðal annars til aukins samráðs, frekari upplýsingasamskipta og menntunar og starfsþjálfunar. Jafnframt gerir samkomulagið ráð fyrir auknu samstarfi er snýr að æfingum og heimsóknum.

Samkomulagið var undirritað til hliðar við sameiginlegan fund utanríkisráðherra og varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins, sem haldinn var í Brussel í dag. Frá árinu 2006 hefur Ísland gert samkomulag um samstarf í varnar- og öryggismálum við Noreg, Danmörk, Bretland og Bandaríkin.

Hér má nálgast samkomulagið.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum