Hoppa yfir valmynd
18. mars 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Mál nr. 2/2020 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 2/2020

Miðvikudaginn 18. mars 2020

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Anna Rut Kristjánsdóttir lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 2. janúar 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 9. október 2019 um upphafstíma milligöngu um greiðslu framlags vegna náms.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um milligöngu um framlag vegna náms frá Tryggingastofnun ríkisins frá 10. mars 2018 með umsókn 22. september 2019. Með bréfi, dags. 9. október 2019, samþykkti stofnunin að greiða kæranda framlag vegna náms frá 1. september 2018 til 10. mars 2020 en synjaði kæranda um greiðslur lengra aftur í tímann á þeirri forsendu að ekki væri heimilt að greiða framlag vegna náms lengra en eitt ár aftur í tímann.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 2. janúar 2020. Með bréfi, dags. 7. janúar 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Greinargerð Tryggingastofnunar barst með bréfi, dags. 17. janúar 2020. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 21. janúar 2020, var greinargerð Tryggingastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að kæran varði skerðingu á menntunarframlagi þar sem málið hafi dregist vegna seinagangs hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Úrskurðarorð Sýslumannsins séu þau að faðir kæranda skuli greiða henni fjárframlag vegna menntunar, sem nemi fjárhæð einfalds meðlags á mánuði, frá 10. mars 2018, stundi hún sannanlega nám.

Sýslumaðurinn hafi tekið sér tíu mánuði að úrskurða í málinu og því hafi ekki verið greitt menntunarframlag fyrir tímabilið frá 10. mars til 31. ágúst 2018 þar sem Tryggingastofnun hafi einungis greitt menntunarframlag eitt ár aftur í tímann frá því að úrskurður Sýslumanns hafi borist en hann hafi ekki legið fyrir fyrr en 18. september 2019.

Farið sé fram á að greiðsla menntunarframlags verði leiðrétt í samræmi við úrskurð Sýslumanns, að menntunarframlag verði greitt frá 10. mars 2018 eins og úrskurðurinn segi til um en ekki frá 1. september 2018, enda liggi orsök á skerðingunni í því hversu langan tíma það hafi tekið Sýslumann að úrskurða í málinu.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar kemur fram að kærð sé ákvörðun stofnunarinnar um milligöngu framlags vegna náms til kæranda eingöngu 12 mánuði aftur í tímann.

Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 9. október 2019, hafi verið samþykkt að hafa milligöngu á framlagi vegna náms til kæranda 12 mánuði aftur í tímann eða frá 1. september 2018. Kærandi hafði óskað eftir milligöngu Tryggingastofnunar á framlaginu frá 10. mars 2018.

Ákvæði 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar kveði á um það að hver sá sem fái úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni sem hann hafi á framfæri sínu, eða um aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003 geti snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. 

Í 4. mgr. sömu greinar segi síðan að Tryggingastofnun sé einungis heimilt að greiða meðlag aftur í tímann í allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berist stofnuninni.

Í 67. gr. barnalaga nr. 76/2003 sé kveðið á um greiðsluskyldu Tryggingastofnunar. Þar segi að Tryggingastofnun sé skylt að greiða rétthafa greiðslna, samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.

Í 6. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar segi að heimilt sé að setja reglugerð um framkvæmd greinarinnar. Það hafi verið gert með reglugerð nr. 945/2009 um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærsluframlaga. 

Í 7. gr. reglugerðarinnar í III. kafla segi að heimilt sé að greiða meðlag í allt að 12 mánuði aftur í tímann, talið frá byrjun þess mánaðar sem gögn samkvæmt 5. gr. berist Tryggingastofnun, þ.e. umsókn og meðlagsákvörðun.

Í 10. gr. reglugerðarinnar sé síðan fjallað um framlag vegna menntunar eða starfsþjálfunar. Þar segi að Tryggingastofnun skuli greiða ungmenni á aldrinum 18 til 20 ára framlag til menntunar eða starfsþjálfunar ef ungmennið leggi fram úrskurð sýslumanns eða samning staðfestan af honum um að foreldri þess skuli greiða því framlag til menntunar eða starfsþjálfunar. Um framkvæmd og greiðslufyrirkomulag fari samkvæmt II. og III. kafla reglugerðarinnar.

Kærandi hafi sótt um milligöngu Tryggingastofnunar á framlagi vegna náms með rafrænni umsókn móttekinni þann 22. september 2019. Kærandi hafi óskað eftir greiðslum í samræmi við úrskurð Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 18. september 2019, sem hafi borist á sama tíma og umsókn. Í úrskurðarorði komi fram að faðir kæranda skuli greiða henni framlag vegna náms frá 10. mars 2018 til 20 ára aldurs. 

Samkvæmt ofangreindum laga- og reglugerðarákvæðum sé Tryggingastofnun einungis heimilt að hafa milligöngu um framlag vegna náms 12 mánuði aftur í tímann talið frá byrjun þess mánaðar sem nauðsynleg gögn, þ.e. umsókn og meðlagsákvörðun, berist Tryggingastofnun. Þar sem umsókn kæranda og úrskurður Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu hafi borist Tryggingastofnun í september 2019 hafi stofnunin einungis heimild til að hafa milligöngu um greiðslu framlags vegna náms frá 1. september 2018, eða 12 mánuði aftur í tímann. Vegna þessara skýlausu ákvæða hafi Tryggingastofnun ekki heimild til að breyta ákvörðun um að hafa eingöngu milligöngu á framlagi vegna náms frá 1. september 2018.

Að gefnu tilefni beri að taka það fram að ákvörðun Tryggingastofnunar hafi engin áhrif á skyldu föður kæranda samkvæmt úrskurðinum til að greiða henni framlag vegna náms fyrir tímabilið frá 10. mars 2018 til 1. september 2018. Kærandi geti því sótt þær greiðslur samkvæmt almennum reglum úr hendi föður síns.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 9. október 2019 um upphafstíma milligöngu um greiðslu framlags vegna náms kæranda. Kærandi krefst þess að Tryggingastofnun hafi milligöngu um greiðslur framlags vegna náms í samræmi við úrskurð Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu frá 18. september 2019. Í úrskurðinum kemur fram að kærandi eigi rétt á framlagi vegna menntunar frá föður sínum frá 10. mars 2018 til 20 ára aldurs.

Í 67. gr. barnalaga nr. 76/2003 er kveðið á um skyldu Tryggingastofnunar ríkisins til þess að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla laganna, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji. Í 62. gr. barnalaga, sem er að finna í IX. kafla laganna, segir að heimilt sé að úrskurða foreldri til að greiða barni sínu framlag til menntunar eða starfsþjálfunar samkvæmt kröfu þess frá 18 ára aldri og allt til þess er það nær 20 ára aldri.

Ákvæði 1. mgr. 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar hljóðar svo:

„Hver sá sem fær úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni sem hann hefur á framfæri sínu, eða um aðrar greiðslur skv. IX. kafla barnalaga, nr. 76/2003, getur snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama skal gilda þegar lagt er fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur skv. IX. kafla barnalaga. Fyrirframgreiðsla meðlags frá Tryggingastofnun skal ávallt vera innan þeirra marka sem 20. gr. laga þessara setur um fjárhæð greiðslna og aldur barna.“ 

Samkvæmt 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar er Tryggingastofnun  heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berst stofnuninni.

Reglugerð nr. 945/2009 um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærsluframlaga hefur verið sett með stoð í 6. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar. Í 1. gr. reglugerðarinnar er kveðið á um gildissvið hennar. Þar segir að hún taki til framkvæmdar Tryggingastofnunar ríkisins á fyrirframgreiðslu meðlags og öðrum framfærsluframlögum samkvæmt meðlagsákvörðun, samkvæmt barnalögum nr. 76/2003, innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar nr. 100/2007 setji. Í II. kafla reglugerðarinnar er fjallað um greiðslur meðlags og annarra framfærsluframlaga og í III. kafla hennar er fjallað um tímabil greiðslna. Í 7. gr. reglugerðarinnar segir að heimilt sé að greiða meðlag í allt að 12 mánuði aftur í tímann, talið frá byrjun þess mánaðar sem gögn samkvæmt 5. gr. berast Tryggingastofnun. Þau gögn sem vísað er til eru umsókn og meðlagsákvörðun, sbr. 5. gr. reglugerðarinnar. Í 10. gr. reglugerðarinnar segir að Tryggingastofnun skuli greiða ungmenni á aldrinum 18 til 20 ára framlag til menntunar eða starfsþjálfunar ef ungmennið leggi fram úrskurð sýslumanns eða samning staðfestan af honum um að foreldri þess skuli greiða því framlag til menntunar eða starfsþjálfunar. Þá segir í greininni að um framkvæmd og greiðslufyrirkomulag fari samkvæmt II. og III. kafla reglugerðarinnar.

Af framangreindum ákvæðum laga og reglugerðar má ráða að Tryggingastofnun er ekki heimilt að hafa milligöngu um greiðslur framlags vegna náms lengra aftur í tímann en tólf mánuði frá því að nauðsynleg gögn berast stofnuninni, sbr. 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar og 7. og 10. reglugerðar nr. 945/2009. Umsókn kæranda um milligöngu Tryggingastofnunar og úrskurður Sýslumanns barst stofnuninni 22. september 2019. Tryggingastofnun samþykkti milligöngu um greiðslur framlags vegna náms frá 1. september 2018, þ.e. tólf mánuði aftur í tímann frá því að framangreind gögn bárust. Tryggingastofnun er ekki heimilt að hafa milligöngu um greiðslu framlags vegna náms til kæranda lengra aftur í tímann.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um upphafstíma milligöngu á greiðslu framlags vegna náms.

Úrskurðarnefndin telur rétt að benda kæranda á að hún geti sótt greiðslu framlagsins úr hendi föður síns samkvæmt almennum reglum kröfuréttar. Samkvæmt 66. gr. barnalaga má gera fjárnám á grundvelli dóms, dómsáttar eða úrskurðar fyrir meðlagi og öðrum greiðslum sem sýslumaður úrskurðar samkvæmt IV. og IX. kafla barnalaga. Kæranda er því bent á að hún geti leitað aðfarar til tryggingar kröfu sinni á hendur hinum meðlagsskylda í samræmi við lög nr. 90/1989 um aðför.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um upphafstíma milligöngu um greiðslu framlags vegna náms til A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum