Hoppa yfir valmynd
10. október 2008 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 10. október 2008

FUNDARGERÐ

Ár 2008, föstudaginn 10. október, var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Viðstödd voru Ágústa Þorbergsdóttir, Baldur Sigurðsson og Kolbrún Linda Ísleifsdóttir. Neðangreind mál voru tekin fyrir:

 

1.         Mál nr. 60/2008          Eiginnafn / ritháttur:  Regin  (kk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Öll skilyrði 1., 2. og 3. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:

·          Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. (Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu).

·          Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

·          Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef nafnið brýtur í bág við íslenskt málkerfi, sbr. 2. málslið 1. mgr. 5. gr. sömu laga.

 

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og sem eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

a.   Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.   Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.   Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.   Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;

e.   Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.   Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

3.   Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningar-helgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Karlmannsnafnið Reginn kemur fyrir í elstu íslensku ritheimildum sem dvergsheiti og er ef til vill einnig eitt af heitum Óðins. Það er skylt fleirtöluorðinu regin (hvorugkyn) sem merkir ‚goð‘ eða ‚goðmögn‘, en í þeirri merkingu er orðið ekki notað í eintölu. Nafnið er þekkt annars staðar á Norðurlöndum. Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laga um mannanöfn, sem vitnað er til hér að ofan, skal rita mannanöfn samkvæmt almennum ritreglum íslensks máls og er þá sérstaklega vísað til auglýsingar menntamálaráðuneytisins nr. 132/1974 með breytingum skv. auglýsingu nr. 261/1977. Í 18. grein þeirrar auglýsingar segir:

 

Greinislaus karlkynsnafnorð, mynduð með viðskeytunum -an, -in, -un, skal rita með nn í nf.et., en n í öðrum föllum et. og flt. Dæmi: nf.et. aftann, þf. aftan, þgf. aftni, ef. aftans; nf.flt. aftnar, þf. aftna, þgf. öftnum, ef. aftna; nf. Þórarinn, þf. Þórarin, þgf. Þórarni, ef. Þórarins; nf.et. morgunn, þf. morgun, þgf. morgni, ef. morguns; nf.flt. morgnar, þf. morgna, þgf. morgnum, ef. morgna.

 

Í Stafsetningarorðabók Íslenskrar málnefndar (2006) er fjallað um þetta atriði í 43. grein. Þar er nafnið Reginn tekið sem dæmi og beygt svo: nf. Reginn, þf. Regin, þgf. Regin, ef. Regins.

 

Karlmannsnafnið Reginn er á mannanafnaskrá, ritað með –nn í nefnifalli, skv. íslenskum ritreglum, en með einu n-i í öðrum beygingarmyndum. Ritháttur nafnsins með einu n-i í nefnifalli er ekki heimill skv. lögum nema hefð sé fyrir þeim rithætti.  Samkvæmt gögnum Þjóðskrár eru fjórir karlar skráðir með eiginnafnið Regin sem uppfylla skilyrði ofangreindra vinnulagsreglna og er sá elsti þeirra fæddur árið 1973.  Því telst ekki vera hefð fyrir þessum rithætti. Eiginnafnið og rithátturinn Regin uppfyllir þar af leiðandi ekki öll ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 og því er ekki mögulegt að fallast á það.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um ritháttinn (eiginnafnið) Regin (kk.) er hafnað.

 

 

 

2.         Mál nr. 61/2008          Eiginnafn:        Vinjar  (kk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Vinjar (kk.) tekur beygingu í eignarfalli, Vinjars, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Vinjar (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

3.         Mál nr. 62/2008          Eiginnafn:        Daðína  (kvk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Daðína (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Daðína (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið. 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum