Hoppa yfir valmynd
27. apríl 2022 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðuneytið hlýtur gullvottun í jafnréttisúttekt UNDP

Ísland hefur hlotið gullvottun frá Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (United Nations Development Programme, UNDP) fyrir vinnu á sviði jafnréttismála og þróunarsamvinnu. Ísland er jafnframt fyrsta framlagsríkið sem undirgengst slíka vottun. 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tók formlega við viðurkenningunni úr höndum Achim Steiner, yfirmanni UNDP, við sérstaka athöfn í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í gær. Markmið vottunarinnar er meðal annars að efla stjórnendur og starfsfólk utanríkisráðuneytisins, einkum á sviði þróunarsamvinnu, í stefnumótun og framkvæmd verkefna í jafnréttismálum, og styrkja áherslur á sviði jafnréttismála í samvinnu við stjórnvöld í samstarfsríkjum Íslands.

„Um 2,5 milljarðar kvenna og stúlkna búa í löndum þar sem í gildi eru lög sem fela í sér mismunun á grundvelli kynferðis,“ sagði Achim Steiner við athöfnina. „Gullvottunin sem Ísland hlýtur hér í dag undirstrikar frumkvöðlastarf Íslands á sviði jafnréttismála og drifkraft við að brjóta niður þær hindranir sem enn standa í vegi fyrir jafnrétti á heimsvísu. Ísland er lykilsamstarfsaðili UNDP í jafnréttismálum, en jafnrétti kynjanna er undirstaða sjálfbærrar þróunar og forsenda þess hægt sé að útrýma fátækt í heiminum.“

Meðal þeirra atriða sem voru nefnd sérstaklega framúrskarandi í úttekt UNDP vegna jafnréttisvottunarinnar má nefna frumkvæði Íslands innan mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um árlegan jafnlaunadag sem haldinn hefur verið hátíðlegur frá árinu 2020, vinnu Íslands á sviði þróunarsamvinnu í Malaví þar sem unnið er heildstætt með samfélögum við að stuðla að kyn- og frjósemisheilbrigði og starfi í Úganda þar sem Ísland aðstoðar héraðsyfirvöld við útrýma skaðlegum samfélagsviðhorfum varðandi tíðir kvenna og þar með auka aðgengi stúlkna að menntun. 

„Við erum afar stolt af því að hafa fengið gullvottun í jafnréttisúttekt UNDP. Ferlið hefur verið lærdómsríkt fyrir starfsfólk utanríkisráðuneytisins og göngum við frá borði með ýmis tól og hugmyndir í farteskinu sem munu styrkja enn frekar vinnu okkar á sviði jafnréttismála,“ segir Þórdís Kolbrún. „Jafnréttismál eru sennilega mikilvægasta mannréttindamálið. Gullið undirstrikar leiðtogahlutverk Íslands á sviði jafnréttismála og hlökkum við til frekara samstarfs við UNDP á þessu sviði.“

Jafnréttisvottunarverkefni UNDP veitir stofnunum viðurkenningu samkvæmt alþjóðlegum stöðlum sem mæla jafnrétti. Stofnanirnar sem gangast undir vottunina geta fengi brons-, silfur- eða gullvottun. Ferlið er virt á alþjóðavettvangi og mælir hæfni og árangur stofnanna á sviði jafnréttismála og valdeflingar kvenna út frá settum árangursviðmiðum. Alþjóða- og þróunarsamvinnuskrifstofa utanríkisráðuneytisins hefur unnið með UNDP að vottuninni frá árinu 2019.

  • Utanríkisráðuneytið hlýtur gullvottun í jafnréttisúttekt UNDP - mynd úr myndasafni númer 1

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum