Hoppa yfir valmynd
4. febrúar 2021 Utanríkisráðuneytið

Beirút: Mikið verk óunnið hálfu ári eftir sprenginguna

Ljósmynd: Rauði krossinn. - mynd
Hálfu ári eftir sprenginguna miklu við höfnina í Beirút í Líbanon heldur Rauði krossinn í Líbanon áfram að styðja við samfélagið, meðal annars með aukinni fjárhagsaðstoð til íbúa. Um 45 prósent þeirra lifa undir fátæktarmörkum. Forgangsverkefni Rauða krossins er að finna leiðir til þess að halda áfram að bjóða upp á gjaldfrjálsa heilbrigðisþjónustu og hefta útbreiðslu kórónuveirunnar.

Í sprengingunni létust um 200 manns, um sex þúsund slösuðust og um 300 þúsund misstu heimili sín. Í frétt Rauða krossins á Íslandi segir að aðstæður í Líbanon séu erfiðar og gríðarleg fjölgun hafi verið í COVID-19 smitum á síðastliðnum vikum. Minnt er á að í Líbanon sé flest fóttafólk miðað við höfðatölu, fyrst og fremst frá nágrannaríkjunum Palestínu og Sýrlandi.

Rauði krossinn í Líbanon hefur dreift hjálpargögnum á svæðinu, safnað blóði og sinnt sjúkraflutningum til rúmlega 250 þúsund einstaklinga auk fjölda annarra verkefna.

„Almenningur og utanríkisráðuneytið studdu myndarlega við neyðarsöfnun Rauða krossins á Íslandi í ágúst sl. en alls söfnuðust rúmlega 16 milljónir króna sem runnu til Rauða krossins í Líbanon. Ljóst er að enn er mikið verk fyrir höndum og heimsfaraldur gerir uppbygginguna ekki auðveldari,“ segir í fréttinni.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
16. Friður og réttlæti
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum