Hoppa yfir valmynd
2. september 2019 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 60/2019 Úrskurður 2. september 2019

Mál nr. 60/2019                     Eiginnafn:      Maia

 

 

Hinn 2. september 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 60/2019 en erindið barst nefndinni 8. júlí. Málið var fyrst tekið fyrir á fundi 7. ágúst en afgreiðslu þess frestað.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Mannanafnanefnd hefur þrisvar sinnum tekið fyrir og hafnað beiðni um að eiginnafninu Maia sé bætt á mannanafnaskrá, sbr. úrskurði nr. 63/1999, 44/2001 og 100/2005.

Ritháttur nafnsins Maia getur ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem i er ekki ritað á milli tveggja sérhljóða í íslensku. Þess vegna er einungis hægt að fallast á ritháttinn Maia ef hann telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli.

Við túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 19. janúar 2015 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

 

  1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
  2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
  3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
  4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;
  5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

 

2.  Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

3.  Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands ber ein kona, sem uppfyllir skilyrði vinnulagsreglnanna, eiginnafnið Maia. Hún er fædd árið 2000. Nafnið kemur fyrir í þremur manntölum frá 1703–1920, þ.e. í manntölunum 1840, 1880 og 1910. Þess vegna telst nafnið hafa unnið sér hefð í íslensku máli.

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Maia er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritháttur nafnsins Maja.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum