Hoppa yfir valmynd
6. apríl 2005 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mál nr. 12/2005. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 6. apríl 2005

í máli nr. 12/2005:

F & S á Íslandi,

SIA

og

Izoterms

gegn

Skagafjarðarveitum ehf.

Með bréfi, dags. 3. apríl 2005, sem barst kærunefnd útboðsmála 4. apríl s.á., kæra F & S á Íslandi, SIA og Izoterms, útboð Skagafjarðarveitna ehf., auðkennt sem „Efnisútboð 2005 Einangruð stál- og plaströr."

Kærandi gerir eftirfarandi kröfur í málinu

Aðallega:

Að stöðvuð verði samningsgerð á grundvelli hins kærða útboðs.

Að ákvörðun kærða „verði felld úr gildi eins og við getur átt samkvæmt einingarlið NR. 1-2 og 3 á tilboðsblaði og i tilboði, að afhendingartími vöru seinki sem nemur töfum vegna málsmeðferðar þessarar hjá [kærunefnd útboðsmála] frá 15.03.2005 að telja."

Að kærendur fái úrskurðaða þóknun vegna verktafa og kostnaðar vegna kæru þessarar.

Til vara:

Að kærða verði gert með viðurkenningu og umsögn í úrskurði að greiða kærendum skaðabætur.

Kærandi hefur í máli þessu krafist stöðvunar samningsgerðar, sbr. heimildir kærunefndar útboðsmála samkvæmt 80. gr. laga um opinber innkaup nr. 94/2001. Í 1. mgr. 54. gr. laganna kemur fram að tilboð skuli samþykkja skriflega innan gildistíma þess og er þá kominn á bindandi samningur á grundvelli útboðsgagna og tilboðs bjóðanda. Þó skal gera sérstakan samning um kaup á vöru, þjónustu eða verki á grundvelli útboðsins þegar við á eða annar aðili óskar þess. Í 1. mgr. 83. gr. laga um opinber innkaup nr. 94/2001 kemur fram að eftir að samningur hefur verið gerður verður hann ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt. Í 3. mgr. sömu greinar segir að um gildi samninga, sem stofnað er til samkvæmt lögunum, fari að öðru leyti eftir almennum reglum.

Í kæru kemur fram að kærði hafi tilkynnt að tekin hafa verið ákvörðun um að taka tilboði frá öðrum en kæranda. Þá hefur kærði sent kærunefnd útboðsmála bréf hans til SET ehf., dags. 31. mars 2005, þar sem kemur fram að ákveðið hefði verði að taka tilboði félagsins. Líta verður því svo á að kominn hafi verið á bindandi samningur milli kærða og þessa aðila. Brestur kærunefnd útboðsmála því heimild til að verða við kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar á grundvelli hins kærða útboðs.

Ákvörðunarorð:

Kröfu kærenda, F & S á Íslandi, SIA og Izoterms, um stöðvun samningsgerðar vegna útboðs kærða Skagafjarðarveita ehf., auðkennt sem „Efnisútboð 2005 Einangruð stál- og plaströr", er hafnað.

Reykjavík, 6. apríl 2005.

Páll Sigurðsson

Stanley Pálsson

Sigfús Jónsson

Rétt endurrit staðfestir,

Reykjavík, 6. apríl 2005.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum