Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 568/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 18. nóvember 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 568/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21100050

 

Beiðni [...]um endurupptöku

I.       Málsatvik

Þann 15. apríl 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 18. janúar 2021, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og endursenda hann til Grikklands. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 19. apríl 2021.

Þann 19. október 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust kærunefnd frá Útlendingastofnun og stoðdeild ríkislögreglustjóra þann 20. október 2021. Athugasemdir bárust frá talsmanni kæranda þann 3. nóvember 2021.

Beiðni kæranda um endurupptöku máls hans byggir á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Í beiðni kæranda kemur fram að samkvæmt 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 eigi aðili máls rétt á því að fá mál sitt tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin. Kærandi hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi þann 18. október 2020. Vegna þess tíma sem nú hafi liðið frá því að hann sótti um alþjóðlega vernd hafi atvik í máli hans breyst verulega frá því að úrskurður kærunefndar var birtur kæranda og því beri kærunefnd að endurupptaka mál hans. Kærandi telur að stjórnvöldum sé skylt að taka mál hans til efnismeðferðar hér á landi með vísan til síðari málsliðar 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Sé litið til stjórnsýsluframkvæmdar hafi afgreiðsla umsóknar í skilningi framangreinds ákvæðis miðast við umsóknardag annars vegar og hins vegar þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis. Þar sem þessir 12 mánuðir séu nú liðnir og kærandi sé enn á Íslandi telur hann að stjórnvöldum sé nú skylt samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar.

III.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 18. október 2020 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti þann 18. október 2021. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þann 20. október 2021 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild. Sneri fyrirspurn nefndarinnar að því hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort tafir væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í svari Útlendingastofnunar sem barst þann sama dag, kemur fram Útlendingastofnun líti ekki svo á að kærandi hafi tafið mál sitt.  Í svari stoðdeildar, dags. 20. október 2021, kemur fram að verkbeiðni hafi borist stoðdeild frá Útlendingastofnun þann 27. apríl 2021. Þann 30. apríl 2021 hafi verið rætt við kæranda og honum tjáð að hann væri kominn í ólöglega dvöl á Íslandi. Kæranda hafi verið boðið að fara sjálfviljugur til Grikklands. Kærandi hafi neitað allri samvinnu við stoðdeild og greint frá því að vilja ekki fara til Grikklands. Þann 10. maí 2021 hafi verið rætt við kæranda og honum tjáð að búið væri að skipuleggja ferð til Grikklands þann 18. maí 2021 og að hann ætti að fara í Covid-19 sýnatöku þann 17. maí 2021. Kærandi hafi greint frá því að ætla ekki að gera það. Þar sem afstaða kæranda lá fyrir hafi stoðdeild ekki haft samband við hann aftur.

Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 2. nóvember 2021, var kærandi upplýstur um afstöðu Útlendingastofnunar og stoðdeildar og gefinn frestur til að koma að andmælum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Andmæli kæranda bárust kærunefnd þann 3. nóvember 2021. Í svari kæranda vísar hann til úrskurða kærunefndar í málum nr. KNU21090009 og KNU21080046 frá 7. október 2021. Telur kærandi að aðstæður sínar séu sambærilegar aðstæðum kærenda í framangreindum úrskurðum. Þá vísar kærandi til þess að þann 19. október 2021 hafi 12 mánaða fresturinn í máli hans runnið út samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.  Fulltrúi stoðdeildar hafi í tvö skipti rætt við kæranda m.t.t. endursendingar til Grikklands en síðustu samskipti stoðdeildar við kæranda hafi verið fimm mánuðum og 9 dögum áður en 12 mánaða frestur í máli kæranda rann út. Þá sé ekki að sjá að frekari tilraunir hafi verið að gerðar af hálfu stoðdeildar til þess að undirbúa flutning á kæranda. Afstaða kæranda gagnvart endursendingu til Grikklands og Covid-19 sýnatöku hafi frá upphafi verið skýr og staðföst. Kærandi telur að framkvæmd stoðdeildar á undirbúningi flutnings kæranda hafi verið ómarkviss og að kærandi hafi ekki tafið mál sitt í skilningi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærunefnd tekur fram að flutningur umsækjenda um alþjóðlega vernd sem fengið hafa neikvæða niðurstöðu hér á landi í máli sínu er íþyngjandi ákvörðun og því eðlilegt að umsækjendur séu mótfallnir slíkum flutningi. Líkt og að framan greinir leið 12 mánaða fresturinn í máli kæranda þann 18. október 2021. Ljóst er að kærandi mætti ekki í fyrirhugaða sýnatöku þann 17. maí 2021 og lýsti þeirri afstöðu sinni að hann hygðist ekki gera það. Þannig kom kærandi í veg fyrir flutning sinn úr landi og tafði málsmeðferðina.

Með hliðsjón af framangreindu telur kærunefnd að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda  hafi verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af framangreindu leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er ekki uppfyllt.

Vegna tilvísunar í úrskurði kærunefndar í málum nr. KNU21090009 og KNU21080046 frá 7. október 2021, tekur kærunefnd fram að hún telur málsatvik í máli kæranda ekki sambærileg fyrrgreindum úrskurðum. Í fyrrgreindum málum taldi kærunefnd að þau samskipti sem hafi átt sér stað milli kærenda og stoðdeildar hafi einungis snúið að því að kanna almennt afstöðu kærenda til fyrirhugaðs flutnings til Grikklands. Í fyrirliggjandi máli kæranda var kæranda skýrlega tjáð að hann ætti að mæta í sýnatöku þann 17. maí 2021 vegna fyrirhugaðs brottflutnings daginn eftir. Kærandi lýsti afstöðu sinni að hann hygðist ekki ætla að fara í umrædda sýnatöku né fara til Grikklands.  

Í ljósi framangreinds er því ekki fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Endurupptöku á máli hans er þar með hafnað.

 

Úrskurðarorð:

Kröfu kæranda er hafnað.

The appellant‘s request is denied.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                            Sandra Hlíf Ocares

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum