Hoppa yfir valmynd
10. júní 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Ráðherra lætur vinna Vegvísi fyrir vetni og rafeldsneyti

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur ákveðið að láta vinna Vegvísi fyrir vetni og rafeldsneyti.

Ráðherra kynnti þessa ákvörðun á aðalfundi Orkuklasans nýverið, en nýting vetnis og rafeldsneytis var aðalefni fundarins.

„Nýting rafeldsneytis mun leika ákveðið lykilhlutverk við að ná markmiði Orkustefnu um að Ísland verði óháð jarðefnaeldsneyti, því það mun ekki hverfa af sjálfu sér; eitthvað verður að leysa það af hólmi,“ segir Þórdís Kolbrún.

„Áhersla okkar á rafeldsneyti endurspeglast nú þegar í aðgerðaáætlun Orkustefnunnar. Þar er í fyrsta lagi kveðið á um að styðja við rannsóknir og uppbyggingu vetnis- og rafeldsneytisframleiðslu. Í öðru lagi að kanna uppbyggingu innviða í tengslum við framleiðslu og flutning á vetni. Og í þriðja lagi að kanna möguleika til útflutnings á grænu vetni til lengri tíma í alþjóðlegu samstarfi. Vinna við þessar aðgerðir er þegar hafin en til að styðja enn frekar við markmiðið hef ég ákveðið að láta vinna sérstakan Vegvísi fyrir vetni og rafeldsneyti.“

Í fyrsta áfanga verður staða mála kortlögð, m.a. í samvinnu við alþjóðlega ráðgjafafyrirtækið Roland Berger og Landsvirkjun, en öllum er velkomið að koma á framfæri gögnum, upplýsingum og sjónarmiðum um málefnið. Í síðara áfanga verður haft nánara samráð við alla haghafa um þróun eiginlegs Vegvísis.

„Vegvísirinn er mikilvægur til að draga upp framtíðarsýn til næstu ára um rafeldsneyti, kortleggja hvernig það getur hjálpað okkur að verða óháð jarðefnaeldsneyti og draga fram aðra möguleika slíkrar framleiðslu með tilliti til verðmætasköpunar og samkeppnishæfni Íslands,“ segir Þórdís Kolbrún.

Ræða Þórdísar Kolbrúnar í heild sinni.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

7. Sjálfbær orka

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum