Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 599/2021 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 599/2021

Fimmtudaginn 24. febrúar 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 10. nóvember 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. nóvember 2021, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 29. september 2021. Þann 20. október 2021 barst Vinnumálastofnun vottorð vinnuveitanda þar sem ástæða starfsloka kæranda er skráð sem uppsögn. Með erindi Vinnumálastofnunar, dags. 22. október 2021, var kæranda veittur frestur til að koma að frekari athugasemdum um starfslokin áður en ákvörðun yrði tekin í máli hans. Skýringar bárust stofnuninni þann 27. október 2021. Með ákvörðun, dags. 10. nóvember 2021, var kæranda tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt en með vísan til starfsloka hans hjá fyrrum vinnuveitanda væri bótaréttur hans hins vegar felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 10. nóvember 2021. Með bréfi, dags. 12. nóvember 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 16. desember 2021, og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 20. desember 2021, var greinargerðin kynnt kæranda. Athugasemdir bárust ekki.

 

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa þann 31. ágúst 2021 réttilega sagt upp starfi sínu hjá B. Engu að síður hafi B vísað kæranda umsvifalaust á dyr þann 10. september og hafi borið því við að hann hafi ekki mætt í vinnu frá því að hafa sagt upp störfum. Það sé ekki rétt því að kærandi hafi mætt í vinnu 1. og 2. september og síðan veikst af salmonellu. Kærandi hafi allan þann tíma unnið heima, þrátt fyrir að hafa verið alvarlega veikur. Kærandi hafi verið í sambandi við fyrirtækið vegna þessa og hafi upplýst eigandann um stöðu mála daglega. Meðfylgjandi kæru sé bréf sem kæranda hafi verið sent af lögfræðingi B og jafngildi tafarlausri uppsögn af hendi fyrirtækisins. Kæranda hafi ekki verið gefinn kostur á að vinna uppsagnarfrest og jafngildi þetta bréf því að vera sagt upp og sýni að B hafi sagt honum upp.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur þann 29. september 2021. Stofnuninni hafi borist staðfesting á starfstímabili frá fyrrum vinnuveitanda kæranda, B, þann 20. október 2021. Komi þar fram að kærandi hafi sjálfur sagt upp störfum hjá fyrirtækinu. Þá sé jafnframt á meðal gagna í máli kæranda bréf, dags. 9. september 2021, stílað á kæranda, er varði starfslok hans hjá B. Komi þar fram að kærandi hafi sjálfur sagt upp störfum hjá fyrirtækinu með uppsagnarbréfi, dags. 31. ágúst 2021. Í bréfinu sé greint frá því að þess hafi verið óskað af hálfu B að kærandi myndi ekki vinna „fullan uppsagnarfrest“, en kærandi hafi ekki mætt til vinnu frá því að hann hafi sagt upp störfum.

Með bréfi, dags. 22. október 2021, hafi Vinnumálastofnun óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda á ástæðum uppsagnar hans. Áréttað hafi verið að ef ástæða starfsloka væri eigin uppsögn eða ef rekja mætti uppsögn til eigin sakar starfsmanns gæti atvinnuleitandi þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysistrygginga á grundvelli 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þann 27. október 2021 hafi borist skýringar frá kæranda þar sem kærandi hafi greint frá því að hann hafi sjálfur sagt upp störfum þann 31. ágúst. Sökum veikinda hafi hann ekki getað mætt til vinnu eftir að hann hafi sagt starfi sínu upp. Kveði hann atvinnurekanda sinn hafa verið meðvitaðan um það.

Með bréfi, dags. 10. nóvember 2021, hafi kæranda verið tilkynnt sú ákvörðun Vinnumálastofnunar að samþykkja umsókn hans um atvinnuleysisbætur en með vísan til starfsloka hjá B hafi réttur kæranda til atvinnuleysisbóta verið felldur niður í tvo mánuði. Ákvörðunin um niðurfellingu bótaréttar hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Skýringar kæranda í kæru til úrskurðarnefndar séu samhljóða þeim skýringum sem hann hafi veitt Vinnumálastofnun. Kveði kærandi umrætt bréf vegna starfsloka sinna, dags. 9. september 2021, jafngilda tafarlausri uppsögn hans af hálfu B. Í ljósi þess að kæranda hafi ekki verið gefinn kostur á því að vinna uppsagnarfrest sinn telji kærandi að B hafi sagt honum upp.

Lög um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Í 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006 segi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem missir starf sitt af ástæðum sem hann sjálfur á sök á. Hinn tryggði skal uppfylla skilyrði laga þessara á biðtímanum skv. 1. mgr.“

Orðalagið „gildar ástæður“ hafi verið túlkað þröngt og fá tilvik hafi verið talin falla þar undir. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar komi fram að með ákvæðinu sé verið að undirstrika það markmið vinnumarkaðskerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Í ljósi þess sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þar sem annað starf sé ekki í boði. Þar sé jafnframt sérstaklega tekið fram að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður sem liggi að baki uppsögn séu gildar þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Þó sé í athugasemdum sérstaklega fjallað um tvenns konar tilvik sem séu talin heyra til gildra ástæða fyrir starfslokum. Annars vegar þegar um sé að ræða þau tilvik þegar maki hins tryggða hefji störf í öðrum landshluta og fjölskyldan hafi af þeim sökum þurft að flytja búferlum. Hins vegar séu það þau tilvik þegar uppsögn megi rekja til þess að atvinnuleitandi hafi sagt upp störfum af heilsufarsástæðum en sé að öðru leyti vinnufær. Í athugasemdum sé þó sérstaklega áréttað að við þær aðstæður sé gert að skilyrði að vinnuveitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ástæður áður en launamaðurinn hafi látið af störfum. Í ljósi þess að um matskennda ákvörðun sé að ræða sé Vinnumálastofnun falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggi falli að umræddri reglu. Vinnumálastofnun beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Af gögnum máls kæranda megi ekki annað ráða en að hann hafi sjálfur sagt upp starfi sínu hjá B með uppsagnarbréfi, dags. 31. ágúst 2021. Aftur á móti, með vísan til bréfs, dags. 9. september 2021, telji kærandi að B hafi sagt honum upp störfum. Af umræddu bréfi megi ráða að þess væri óskað að kærandi ynni ekki „fullan uppsagnarfrest“. Af staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra megi þó ráða að kærandi hafi fengið greiddan hefðbundinn uppsagnarfrest, sbr. 1. gr. laga nr. 19/1979 um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla.

Skýringar kæranda á starfslokum lúti að því að hann hafi ekki sagt upp störfum hjá fyrirtækinu og að fyrrverandi vinnuveitandi hans hafi slitið ráðningarsambandi. Vinnumálastofnun telji ljóst af fyrirliggjandi gögnum að kærandi hafi sjálfur sagt upp störfum hjá B. Því telji Vinnumálastofnun ekki unnt að fallast á að skýringar kæranda geti talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að staðfesta beri ákvörðun stofnunarinnar um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði með vísan til 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 54. gr. laganna er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem geti talist til gildra ástæðna í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagareglan verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt er bent á að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ráða megi af framangreindu að almennt beri að gera nokkuð ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið er hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.

Samkvæmt gögnum málsins sagði kærandi upp starfi sínu hjá B þann 31. ágúst 2021. Engar efnislegar skýringar hafa borist frá kæranda á ástæðum uppsagnarinnar heldur lúta skýringar hans að því að bréf sem hann hafi fengið frá fyrirtækinu þann 9. september 2021 hafi falið í sér tafarlausa uppsögn. Eins og fram hefur komið er ákvörðun um að umsækjandi skuli sæta biðtíma íþyngjandi ákvörðun. Að mati úrskurðarnefndarinnar verður því að gera þær kröfur að fyrirliggjandi gögn bendi eindregið til þess að rétt sé að beita því úrræði. Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hvílir sú skylda á stjórnvaldi að sjá til þess að eigin frumkvæði að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því. Markmið rannsóknarreglunnar er að tryggja að stjórnvaldsákvarðanir verði bæði löglegar og réttar. Ekki er að sjá af gögnum málsins að Vinnumálastofnun hafi gætt að þeirri skyldu sinni, enda var ekki óskað sérstaklega eftir frekari upplýsingum frá kæranda um ástæður þess að hann sagði upp störfum þann 31. ágúst 2021.

Með vísan til þess sem að framan er rakið er það mat úrskurðarnefndarinnar að Vinnumálastofnun hafi ekki upplýst mál kæranda nægjanlega, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga, áður en ákvörðun um að fella niður bótarétt hans var tekin. Hin kærða ákvörðun er því felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar Vinnumálastofnunar.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. nóvember 2021, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði, er felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar stofnunarinnar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum