Hoppa yfir valmynd
15. desember 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 477/2020 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 477/2020

Þriðjudaginn 15. desember 2020

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 8. september 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. ágúst 2020, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 30. júní 2020. Meðfylgjandi umsókn kæranda var vottorð frá fyrrverandi vinnuveitanda þar sem fram kemur að það hafi verið ákvörðun fyrirtækisins að segja kæranda upp. Með erindi Vinnumálastofnunar, dags. 11. ágúst 2020, var óskað eftir nánari upplýsingum frá fyrirtækinu um ástæðu uppsagnar kæranda. Umbeðnar upplýsingar bárust 18. ágúst 2020. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. ágúst 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt en með vísan til starfsloka hjá síðasta vinnuveitanda væri réttur til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 8. september 2020. Með bréfi, dags. 5. október 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 18. nóvember 2020, og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 23. nóvember 2020, var greinargerðin send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar tekur kærandi fram að hann skilji ekki hvers vegna hann þurfi að bíða launalaus í tvö mánuði og missa tekjutengdar bætur vegna uppsagnar. Þá vísar kærandi til þess að honum finnist þörfin á skýringum vegna uppsagnar vera full persónuleg fyrir ríkisstofnun.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Tilgangur laganna sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og hafi misst fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Hið sama gildi um þann sem missi starf sitt af ástæðum sem hann eigi sjálfur sök á, sbr. 1. mgr. 54. gr. laganna.

Í greinargerð með frumvarpi því, sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar, sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerðinni sé vísað til þess að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður, sem liggi að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi starf sitt, séu gildar þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan væri matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Ákvæðið geri því ráð fyrir að Vinnumálastofnun óski eftir og meti skýringar atvinnuleitenda hverju sinni.

Ljóst sé að kæranda hafi verið sagt upp störfum en ágreiningur málsins snúist um það hvort kærandi hafi misst starf sitt af ástæðum sem hann eigi sjálfur sök á í skilningi 54. gr. laga nr. 54/2006. Með hugtakinu sök í skilningi 1. mgr. 54. gr. laganna sé átt við tilvik sem séu þess eðlis að leggja megi þau að jöfnu við uppsögn af hálfu starfsmannsins, þ.e. að starfsmaður hafi mátt segja sér að hegðunin gæti leitt til uppsagnar, sbr. úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 4/2015. Í skýringum kæranda frá 8. júlí 2020 komi fram að það hafi verið ákvörðun fyrirtækisins að segja honum upp. Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu hafi kærandi hætt vegna brots á öryggisreglum. Kærandi hafi ekki gefið neinar skýringar á starfslokum sínum hjá fyrirtækinu.

Í ljósi framangreindra gagna og þess að kærandi hafi kosið að gefa ekki upp ástæður fyrir starfslokum sínum telji Vinnumálastofnun að kærandi skuli sæta tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysistrygginga samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Berist stofnuninni frekari skýringar frá kæranda muni stofnunin taka málið til endurumfjöllunar og líta til skýringa og sjónarmiða kæranda.

Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að greiðslur atvinnuleysisbóta skuli fyrst hefjast þegar kærandi hafi verið skráður hjá Vinnumálastofnun án bóta í tvo mánuði.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 54. gr. laganna er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Óumdeilt er að kæranda var sagt upp störfum en ágreiningur málsins lýtur að því hvort hann hafi sjálfur átt sök á uppsögninni. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem geti talist til gildra ástæðna í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagareglan verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt er bent á að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða.

Í skýringum fyrrum vinnuveitanda kæranda kemur fram að kærandi hafi hætt störfum vegna brots á öryggisreglum. Á þeim grundvelli tók Vinnumálastofnun ákvörðun um að fella niður bótarétt kæranda en hann lagði sjálfur ekki fram skýringar vegna þessa. Vinnumálastofnun hefur vísað til þess að berist stofnuninni frekari skýringar frá kæranda muni mál hans verða tekið fyrir á ný.

Eins og fram hefur komið er ákvörðun um að umsækjandi skuli sæta biðtíma íþyngjandi ákvörðun. Að mati úrskurðarnefndarinnar verður því að gera þær kröfur að fyrirliggjandi gögn bendi eindregið til þess að rétt sé að beita því úrræði. Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hvílir sú skylda á stjórnvaldi að sjá til þess að eigin frumkvæði að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því. Markmið rannsóknarreglunnar er að tryggja að stjórnvaldsákvarðanir verði bæði löglegar og réttar. Ekki er að sjá af gögnum málsins að Vinnumálastofnun hafi gætt að þeirri skyldu sinni, enda var ekki óskað sérstaklega eftir frekari upplýsingum frá fyrrum vinnuveitanda kæranda. Að mati úrskurðarnefndarinnar bar Vinnumálastofnun að gera það fyrst að kærandi kaus að gefa ekki upp skýringar vegna málsins.

Með vísan til þess sem að framan er rakið er það mat úrskurðarnefndarinnar að Vinnumálastofnun hafi ekki upplýst mál kæranda nægjanlega, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga, áður en ákvörðun um að fella niður bótarétt hans var tekin. Hin kærða ákvörðun er því felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar Vinnumálastofnunar.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. ágúst 2020, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði, er felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar stofnunarinnar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum