Hoppa yfir valmynd
6. nóvember 2019 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 96/2019 Úrskurður 6. nóvember 2019

Mál nr. 96/2019                     Eiginnafn:      Lucifer (kk.)

 

 

 

Hinn 6. nóvember 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 96/2019 en erindið barst nefndinni 14. október.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Þar sem nafnið Lucifer er eitt af nöfnum djöfulsins telur mannanafnanefnd ljóst að það geti orðið nafnbera til ama. Auk þess getur ritháttur nafnsins Lucifer ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem bókstafurinn c telst ekki til íslenska stafrófsins.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Lucifer (kk.) er hafnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum